Byggingar Háskóla Íslands verða loks opnar á ný

Á mánu­dag verða bygg­ingar Háskóla Íslands opn­aðar fyrir nem­endum á ný í fyrsta skipti frá því sam­komu­bann var sett á 16. mars. Rektor Háskóla Íslands segir þetta stóran áfanga í því að færa líf allra í eðli­legt horf.

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, var meðal gesta á upplýsingafundi almannavarna í dag.
Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, var meðal gesta á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Mynd: Lögreglan

Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, segir ótrú­lega sam­stöðu og þraut­seigju hafa ein­kennt starfs­menn og nem­endur síð­ustu vik­urnar. Bygg­ingar skól­ans verða opn­aðar á ný á mánu­dag en þeim var lokað vegna sam­komu­banns þann 16. mars. „Að sjálf­sögðu munum við hlýta öllum til­mælum,“ sagði Jón Atli á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. „Við erum öll almanna­varnir og verðum það áfram þar til yfir lýkur.“

Á mánu­dag, 4. maí, verða fyrstu skrefin í aflétt­ingu sam­komu­banns tekin. Þá mun leik- og grunn­skóla­starf kom­ast í eðli­legt horf og fram­halds­skólar og háskólar sömu­leiðis geta opnað bygg­ingar sínar fyrir nem­endum með þeim fjölda­tak­mörk­unum og öðru sem áfram verður í gildi.

Bygg­ingar háskóla Íslands eru þrjá­tíu tals­ins. „Þetta er stórt sam­fé­lag,“ sagði Jón Atli. Ráð­staf­anir verða gerðar til að hægt verði að virða tveggja metra regl­una og fjölda­tak­mark­anir sem mið­ast frá og með mánu­deg­inum við fimm­tíu manns. Próf­tíma­bil stendur nú yfir og sér­stök lesrými verða skil­greind í ákveðnum bygg­ingum og í skóla­stofum ef þörf reynd­ist á.

„Þá er spurn­ingin, hver er lær­dóm­ur­inn og liggja tæki­færi í þessum aðstæðum? Háskóli Íslands hefur eins og allar kennslu­stofn­anir lands­ins þurft að bregð­ast hratt við og end­ur­skipu­leggja alla starf­sem­ina nán­ast á einni nóttu,“ sagði Jón Atli.

Öll kennsla hafi verið gerð raf­ræn og sömu sögu er að segja um próf og fundi. Það hefur gengið mjög vel.

En háskóli er sam­fé­lag. Og þó að fjar­nám hafi gef­ist vel séu sam­skipti augliti til auglitis ennþá mik­il­væg. „Það er nauð­syn­legt að þung­inn byggi áfram á mann­legum sam­skiptum, rök­ræðum og gagn­kvæmri virð­ingu innan bygg­inga háskól­ans.“

Nú er unnið að þróun og skipu­lagi sér­staks sum­ar­náms. Boðið verður upp á und­ir­bún­ings­nám­skeið fyrir ein­stakar greinar eða fyrir háskóla­nám almennt. „Við erum að skoða alls konar mögu­leika,“ sagði Jón Atli. Hvað náms­fram­boð varðar segir Jón það líta vel út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár