Tala um COVID-byltinguna í kennsluháttum

Skóla­starfið í Tækni­skól­anum færð­ist allt yfir í fjar­nám í sam­komu­banni en ákveðnir þættir náms­ins verða ekki unnir við stofu­borðið þar sem skortir yfir­leitt renni­bekki, gufu­pressur og vél­sagir, segir rektor skól­ans.

Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans.
Hildur Ingv­ars­dóttir, skóla­meist­ari Tækni­skól­ans. Mynd: Lögreglan

Eftir helgi munu um 800 nem­endur Tækni­skól­ans mæta í skól­ann á ný til að ljúka verk­legum þáttum í námi sínu. Þetta verður þó gert í skömmtum og á tveggja vikna tíma­bili. Alls eru um 2.600 nem­endur í marg­vís­legu námi í Tækni­skól­anum og reynt verður að ljúka önn­inni í fjar­námi eins og hægt er. „En svo eru ákveðnir þættir náms­ins sem ekki verða gerðir við stofu­borðið,“ sagði Hildur Ingv­ars­dóttir, skóla­meist­ari Tækni­skól­ans á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Við stofu­borðið skorti „yfir­leitt renni­bekki, málm­suðu­bása, gufu­pressur og vél­sagir“.

Á mánu­dag, 4. maí, verða fyrstu skrefin í aflétt­ingu sam­komu­banns tekin. Þá mun leik- og grunn­skóla­starf kom­ast í eðli­legt horf og fram­halds­skólar og háskólar sömu­leiðis geta opnað bygg­ingar sínar fyrir nem­endum með þeim fjölda­tak­mörk­unum og öðru sem áfram verður í gildi.

Í Tækni­skól­anum hefur verið útbúið „sautján síðna excel-skjal af skipu­lagi og 800 stunda­skrár“ til að öllum til­mælum sótt­varna­læknis verði hægt að fram­fylgja. „Við munum að sjálf­sögðu fara eftir stíf­ustu reglum um tveggja metra fjar­lægð og svo fram­vegis.“

Hildur sagði að kenn­arar og nem­endur hefðu almennt verið mjög útsjón­ar­samir og lausn­a­mið­aðir við að finna leiðir til að halda kennslu og námi áfram þrátt fyrir gjör­breyttar aðstæður.

[links]„Stundum tölum við um COVID-bylt­ing­una í kennslu­háttum,“ sagði Hildur. „Við tókum stórt stökk fram á við á svip­stundu.“ Allir hafi lært gríð­ar­lega margt á stuttum tíma. Tæknin var oft fyrir hendi en ekki nýtt en nú varð að nota hana. „Fjar­námið hefur gengið vonum framar en ekki vand­kvæða­laust.“ Eitt það sem runnið hefur ræki­lega upp fyrir mörgum er hvað nær­veran skiptir miklu máli. Þannig séu margir fullir til­hlökk­unar að mæta aftur í skól­ann í haust.

„Ég held að við verðum með öfl­ugri fram­halds­skóla vegna þess að við komum með alls konar hluti út úr [ástand­inu] sem við getum tekið inn í áfram­hald­andi nám.“

Næstu daga og vikur munu nem­endur á öllum skóla­stigum leggja sig fram við að klára önn­ina. Hildur hvatti alla for­eldra og aðra for­ráða­menn til að hvetja nem­endur til dáða og styðja eins og þeim frekast er unnt. Loka­sprett­ur­inn er framundan. Allir ættu að leggja mikið á sig við að styðja nem­endur til að ljúka önn­inni en stuðn­ingur fjöl­skyldna og sam­fé­lags­ins skiptir máli.

Hildur sagði miklu máli skipta að nem­endur hald­ist í námi og að brott­hvarf verði sem minnst. Ýmislegt hafi verið gert til að reyna að tryggja það. Hún sagð­ist ekki vita hversu margir hafi dottið út úr námi í Tækni­skól­anum síð­ustu vikur og vonar að fjar­kennslan hafi ekki bitnað á gæðum kennsl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár