Skemmtiferð sjávarútvegsfyrirtækis endar í sóttkví

Sjötíu manns frá Pat­reks­firði, yfir 10 pró­sent bæj­ar­búa, þurfa að fara í 14 daga sótt­kví eftir ferð til Tenerife. Um er að ræða hóp frá fisk­vinnslu­fyr­ir­tæki, starfs­menn þess til lands og sjávar og maka þeirra.

Hópurinn var á Tenerife í skemmtiferð.
Hópurinn var á Tenerife í skemmti­ferð. Mynd: Pexels

Sjötíu íbúar á Pat­reks­firði þurfa að fara í 14 daga sótt­kví við kom­una til lands­ins, en um er að ræða hóp sem fór í skemmti­ferð á Tenerife á vegum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Odda, starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins til lands og sjávar og maka þeirra.

Tuttugu manns úr hópnum komu til lands­ins í gær og ráð­gert er að fimm­tíu komi á morgun. Rúmlega 10 pró­sent íbúa á Pat­reks­firði verða þannig í sótt­kví næstu tvær vik­urnar, en bæj­ar­búar eru um 700 tals­ins.

Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða hefur verið í sam­bandi við far­ar­stjóra hóps­ins, sem segir alla ein­kenna­lausa. Haft verður sam­band við alla við kom­una til lands­ins til að skerpa á fyr­ir­mælum um sótt­kví, sam­kvæmt færslu stofn­un­ar­innar á Facebook.

Bannað að vera utandyra

Starfs­maður fyr­ir­tæk­is­ins, sem enn er staddur á Tenerife, segir við Kjarnann að vinnsla hjá fyr­ir­tæk­inu muni ekki leggj­ast alveg af þrátt fyrir að meiri­hluti starfs­manna sé á leið í sótt­kví. Á annan tug starfs­manna fór ekki með í skemmti­ferð­ina og munu þeir geta haldið uppi lág­marks­vinnslu hjá fyr­ir­tæk­inu.

Nær algört útgöngu­bann er í gildi á Spáni og hefur sól­þyrstum Pat­reks­firð­ingum sem enn eru á svæð­inu verið bannað að fara út í sund­laug­ar­garð, sam­kvæmt frá­sögn sama starfs­manns. Tæplega 8.000 smit hafa greinst í land­inu til þessa, rúm­lega hund­rað þeirra á Kanarí­eyjum.

Tæplega 300 manns hafa lát­ist vegna COVID-19 á Spáni, en flest eru smitin í borgum á meg­in­land­inu og lang­flest í Madríd og nágrenni eða á fjórða þús­und, sam­kvæmt frétt spænska blaðs­ins El País.

Mikilvægt að halda reglur um sóttkví

Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða segir að ófærð hafi sett strik í ferða­lög fyrri hóps­ins hér inn­an­lands og að mögu­legt sé að seinni hóp­ur­inn verði einnig í basli við að koma sér heim vegna veð­urs.

„Þrátt fyrir þetta er mik­il­vægt að reglur um sótt­kví verði haldnar til að minnka líkur á smiti,“ segir í til­kynn­ingu stofn­un­ar­innar. Engin stað­fest COVID-19 smit hafa til þessa greinst á Vest­fjörðum, en í umdæm­inu eru sem stendur 11 manns í sótt­kví eftir, sam­kvæmt vef­síð­unni covid.is. Fjöldi þeirra marg­fald­ast því núna á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár