Kórónuveiran – ekki ósigrandi óvinur

Rit­stjóri Hvatans, sem sér­hæfir sig í vís­inda­fréttum, fer yfir helstu atriði varð­andi útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum.

Það þarf varla að kynna sögu SARS - CoV - 2, veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum og hræðir nú jarð­ar­búa með útbreiðslu sinni. Þó flestir þekki veiruna eru þó örfá atriði sem geta vaf­ist fyrir fólki.

Hvers vegna allur þessi við­bún­aður? Veiran greind­ist fyrst á Íslandi 28. febr­úar síð­ast­lið­inn og síðan þá hefur stíf aðgerð­ar­á­ætlun verið í gangi til að hindra útbreiðslu hennar. Ónæm­is­kerfi okkar hefur aldrei hitt þessa veiru áður og þess vegna eru miklar líkur á því að við veikj­umst þegar við hittum veiruna.

Þegar við veikj­umst er alls ekki víst að það verði alvar­legt - raunar er það ólík­legt þar sem nær 80 - 90% þeirra sem sýkj­ast fá væg ein­kenni. Ein­hverjir fá þó alvar­legri ein­kenni og þess vegna er mik­il­vægt að heil­brigð­is­kerfið hafi getu til að taka á móti þeim sem á þurfa að halda.

Er veiran hættu­leg? Dán­ar­tíðni af völdum veirunnar, í heim­inum, eins og staðar er í dag er um 4%. Af þeim sem veikj­ast alvar­lega eða deyja eru lang­flestir aldr­aðir eða með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. Það er þess vegna mik­il­vægt að við sem sam­fé­lag verndum þessa ein­stak­linga sem eru lík­legri til að veikj­ast alvar­lega.

[adspot]Venju­lega verndum við þessa ein­stak­linga með bólu­setn­ingum. Það er að segja með því að gefa þessum við­kvæmu hópum bólu­setn­ingu, svo þau séu ónæm fyrir veirunni. Líka með því að bólu­setja stóran hluta sam­fé­lags­ins, þannig búum við til hjarð­ó­næmi, sem skilar sér í því að svona sjúk­dómar ná sér aldrei á strik.

Er bólu­setn­ing á leið­inni? Því miður er staðan þannig núna að við eigum enga bólu­setn­ingu við SARS - CoV - 2, veirunni sem veldur COVID-19. Strax um ára­mót, þegar veiran upp­götv­að­ist, fóru af stað aðgerðir til að búa til bólu­efni gegn veirunni.

Starfs­hópur innan NIH (National Institute of Health í Banda­ríkj­unum) var svo bjart­sýnn að lofa bólu­setn­ingu strax í vor. Bólu­efnið, sem er reyndar verið að þróa m.a. í Ástralíu, er þá búið til útfrá DNA röð veirunnar. Venju­lega eru bólu­efni búin til með prótínum úr veirum en að nota DNA röð­ina, upp­skrift­ina af prótín­unum gæti flýtt fyrir ferl­inu.

Þrátt fyrir það er enn langt í land með bólu­efni og til að draga enn frekar úr vonum okkar þá hefur ekki enn tek­ist að þróa bólu­efni gegn SARS - CoV, kór­óna veirunni sem olli Severe Acute Respiratory Syndrome (SARS) árin 2002-2003.

Hvað með lyf? Veirur eru ekki sér­lega með­færi­legar, þegar kemur að lyfjum. Sýkingar sem orsakast af veirum er ekki hægt að með­höndla með sýkla­lyfjum, vegna þess að virkni þeirra felst í að drepa bakt­er­íur, veirur eru bara allt annar flokkur.

Rann­sóknir á virkni SARS - CoV - 2 benda til þess að veiran sýkir lungna­frumur okkar með því að bind­ast við við­taka á yfir­borði frumn­anna sem heitir Ang­iot­ensin Converting Ensyme 2 (ACE2). Eftir að bind­ing hefur orðið kemur til sög­unnar ensím sem heitir TMPRSS2, og hjálpar veirunni inní frum­urnar.

Mögulega væri hægt að nota hindra á ens­ímið TMPRSS2, sem lyf gegn COVID-19. Rannsókn sem birt var í Cell í byrjun mars sýnir að lyfið virkar vel gegn veirunni sem olli SARS árið 2002-2003 og að lyfið hefur einnig ákveðna virkni gegn veirunni sem veldur COVID-19. Enn sem komið er hafa rann­sókn­irnar þó ein­ungis farið fram í frumu­ræktun.

Þangað til... Við munum því þurfa að bíða eitt­hvað eftir bólu­setn­ingum og mögu­legum lyfjum sem virka gegn veirunni sem veldur COVID-19. Veiran fer hratt yfir en við getum öll lagt okkar af mörkum til að hægja á henni.

  1. Þvo hendur vel með sápu og forð­ast að snerta and­litið. Þetta er mik­il­vægt vegna þess að helsta leið veirunnar í lík­ama okkar er gegnum þessa leið. Við snertum eitt­hvað sem smit­aður ein­stak­lingur hefur hnerrað eða hóstað á, þannig kemst veiran á hend­urnar á okkur. Þegar við síðan snertum and­litið er lík­legt að veiran kom­ist af hönd­unum yfir í munn, nef eða augu, þar sem veiran finnur sér inn­gang inní frum­urnar.
  2. Ekki hósta eða hnerra útí loftið, hvort sem þú telur þig smit­aðan eða ekki. Best er að beina hóstum/hnerrum í oln­boga­bót til að koma í veg fyrir að agnir með veirum ber­ist útí and­rúms­loftið.
  3. Ef við finnum fyrir ein­kennum er mik­il­vægt að halda sig heima og halda fjar­lægt frá öðru fólki. Reynum að smita ekki aðra meðan við leyfum ónæm­is­kerf­inu að takast á við veiruna.

Hugsum vel um ónæm­is­kerfið! Það eru líka nokkrar leiðir til að stuðla að auð­veld­ari bata og halda ónæm­is­kerf­inu sterku. Það er algengur mis­skiln­ingur að þessar leiðir felist í því að borða bragðvondar jurtir eða sleppa fæðu sem gæti verið erfða­breytt. Slíkar aðgerðir hafa að öllum lík­indum engin áhrif á ónæm­is­kerfið.

Það sem hins vegar hefur áhrif á ónæm­is­kerfið er hvíld, góður næt­ur­svefn er nefni­lega gulls ígildi. Hollur, góður og fjöl­breyttur matur stuðlar líka að því að lík­am­inn hafi öll þau vítamín og stein­efni sem ónæm­is­kerfið þarf til að berj­ast við sýk­ingar.

Hreyfing stuðlar einnig að heil­brigðum lík­ama og þar með heil­brigðu ónæm­is­kerfi. Auk þess dregur hreyf­ing úr streitu sem er lík­lega einn stærsti þátt­ur­inn í að styrkja ónæm­is­kerfið - þ.e. reyna að draga úr streitu.

Tökum öll þátt! Næstu vikur eða mán­uðir munu senni­lega vera strembnir, meðan við náum tökum á þessum far­aldri. Verum góð hvert við annað (með lág­marks­snert­ingu þó) og sinnum okkar hlut­verki sem almanna­varnir.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár