Verkföll hjá BSRB hefjast að óbreyttu í byrjun mars

Verk­föllin munu hafa mikil áhrif á almanna­þjón­ust­una enda munu þau ná til starfs­fólks í heil­brigð­is­þjón­ust­unni, þar með talið á Land­spít­al­anum, og í skólum, leik­skólum og á frí­stunda­heim­ilum.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB. Mynd: Bára Huld Beck

Yfir­gnæf­andi meiri­hluti félaga í öllum aðild­ar­fé­lögum BSRB sem lokið hafa atkvæða­greiðsluum verk­falls­boðun sam­þykkti boðun verk­falls. Verk­falls­að­gerðir munu hefj­ast mánu­dag­inn 9. mars, tak­ist samn­ingar ekki fyrir þann tíma.

Um 87,6 pró­sent þeirra sem tóku þátt í atkvæða­greiðsl­unum sam­þykktu boðun verk­falls hjá sínu félagi. Um 8,1 pró­sent voru and­víg boðun verk­falls og 4,3 pró­sent skil­uðu auðu í atkvæða­greiðsl­unum. Það er því ljóst að um 15.400 félags­menn í aðild­ar­fé­lögum BSRB eru á leið í verk­falls­að­gerðir eftir rúmar tvær vikur.

Alls stóðu 17 aðild­ar­fé­lög BSRB fyrir atkvæða­greiðslu um verk­falls­boðun sem stóð frá 17. til 19. febr­úar. Félags­menn í 15 félögum sam­þykktu að boða til aðgerða. Hjá einu félagi, Starfs­manna­fé­lagi Garða­bæjar, náð­ist ekki næg þátt­taka í atkvæða­greiðsl­unni. Um 41 pró­sent greiddu atkvæði en 50 pró­sent félags­manna þurfa að greiða atkvæði svo verk­falls­boðun sé lög­leg. Atkvæða­greiðsla hjá einu félagi, Lands­sam­bandi slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­manna, er enn í gangi og verða nið­ur­stöður kynntar þegar þær liggja fyrir.

Þátt­takan í atkvæða­greiðslum aðild­ar­fé­lag­anna var almennt afar góð, segir í til­kynn­ingu frá BSRB. Að með­al­tali tóku um 65 pró­sent félags­manna í hverju félagi þátt í atkvæða­greiðsl­unum en þátt­takan fór allt upp í tæp­lega 98 pró­sent í ein­stökum félögum.

Verk­föllin munu hafa mikil áhrif á almanna­þjón­ust­una enda munu þau ná til starfs­fólks í heil­brigð­is­þjón­ust­unni, þar með talið á Land­spít­al­anum, og í skólum, leik­skólum og á frí­stunda­heim­ilum. Þá mun starfs­fólk í sund­laugum og íþrótta­húsum auk starfs­manna sem sinna þjón­ustu við aldr­aða og fólk með fötlun leggja niður störf, svo ein­hver dæmi séu nefnd.

Tvíþættar verkfallsaðgerðir

Boðuðum verk­falls­að­gerðum má skipta í tvo hluta. Annars vegar mun þorri félags­manna hjá rík­inu, Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga og Reykja­vík­ur­borg leggja niður störf á ákveðnum dögum. Þessi hópur mun leggja niður störf dag­ana 9. og 10. mars, 17. og 18. mars, 24. og 26. mars og 31. mars og 1. apríl.

Í hinum hlut­anum eru smærri hópar starfs­manna sem verða í ótíma­bundnu verk­falli frá og með 9. mars. Í þeim hópi eru meðal ann­ars starfs­menn í grunn­skólum og leið­bein­endur á frí­stunda­heim­ilum á nær öllu höf­uð­borg­ar­svæð­inu auk Akraness. Að óbreyttu má því reikna með að frí­stunda­heim­ilin verði lokuð frá upp­hafi verk­falls þar til samn­ingar takast. Í þeim hópi eru einnig starfs­menn hjá Skatt­inum og sýslu­manns­emb­ættum um allt land.

Þessar aðgerðir munu halda áfram fram í dymbil­viku, en hafi samn­ingar ekki tek­ist fyrir 15. apríl munu félags­menn aðild­ar­fé­laga BSRB sem starfa hjá ríki og sveit­ar­fé­lögum fara í ótíma­bundið alls­herj­ar­verk­fall þar til samn­ingar hafa tek­ist.

Félags­menn í eft­ir­töldum félögum hafa sam­þykkt boðun verk­falls:

  • Félag opin­berra starfs­manna á Aust­ur­landi
  • Félag opin­berra starfs­manna á Vest­fjörðum
  • FOSS, stétt­ar­fé­lag í almanna­þjón­ustu
  • Kjölur – stétt­ar­fé­lag starfs­manna í almanna­þjón­ustu
  • Sameyki – stétt­ar­fé­lag í almanna­þjón­ustu
  • Sjúkra­liða­fé­lag Íslands
  • Starfs­manna­fé­lag Dala- og Snæ­fells­nes­sýslu
  • Starfs­manna­fé­lag Fjalla­byggðar
  • Starfs­manna­fé­lag Fjarða­byggðar
  • Starfs­manna­fé­lag Hafn­ar­fjarðar
  • Starfs­manna­fé­lag Húsa­víkur
  • Starfs­manna­fé­lag Kópavogs
  • Starfs­manna­fé­lag Mos­fells­bæjar
  • Starfs­manna­fé­lag Suð­ur­nesja
  • Starfs­manna­fé­lag Vest­manna­eyja

Þrjú félög til við­bótar; Lands­sam­band lög­reglu­manna, Toll­varða­fé­lag Íslands og Félag starfs­manna stjórn­ar­ráðs­ins, hafa lýst yfir stuðn­ingi við aðgerð­irnar, en félags­menn þeirra hafa ekki verk­falls­rétt og munu félögin því ekki boða til sam­bæri­legra aðgerða, segir í til­kynn­ingu BSRB. Þá styðja fanga­verðir, sem eru í Sameyki en hafa ekki verk­falls­rétt, aðgerð­irnar þó þeir verði að standa utan við þær. Þá er atkvæða­greiðslu um verk­falls­boðun ekki lokið hjá Lands­sam­bandi slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­manna.

Félögin hafa verið kjara­samn­ings­laus frá 1. apríl 2019, eða í á ell­efta mánuð.

Kjara­samn­ings­við­ræður munu halda áfram sam­hliða und­ir­bún­ingi verk­falls­að­gerða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár