Ónæmisfruma sem eyðir krabbameinum

Er kannski hægt að bólu­setja fólk svo við myndum öll ákveðna týpu af frumum og verðum þá nán­ast ónæm fyrir krabba­meini?

Það er svo ótrú­legt hvernig manns­lík­am­inn berst gegn kvillum allan lið­langan dag­inn. Senni­lega er ónæm­is­kerfið það varn­ar­kerfi sem vinnur mesta vinn­una í því efnum.

Eitt af þeim kvillum sem ónæm­is­kerfið reynir eftir fremsta megni að koma í veg fyrir er hinn skæði sjúk­dómur krabba­mein. Það heppn­ast mun oftar en við höldum, en því miður þá getur ónæm­is­kerfið ekki alltaf haldið í við þann klóka sjúk­dóm sem krabba­mein eru.

Ónæm­is­kerfið sveimar um lík­amann allan dag­inn í leit að frumum sem hafa misst heil­brigði sitt, t.d. vegna sýk­inga eða krabba­meina. Lík­ams­frumur okkar vilja nefni­lega lifa í sátt og sam­lyndi við umhverfi sitt og láta því vita með boðum á yfir­borði sínu um það hvort eitt­hvað hefur farið úrskeiðis.

Þannig láta krabba­meins­frumur, á fyrstu stigum, ónæm­is­kerfið vita þegar grípa þarf inn í. Frumur ónæm­is­kerf­is­ins, svo­kall­aðar T dráps­frumur, bind­ast þá við krabba­meins­frum­urnar og eyða þeim. En á ákveðnum tíma­punkti finna krabba­meins­frum­urnar sér leið til að sneiða fram­hjá þessu varn­ar­kerfi.

[adspot]Síðan vís­inda­menn upp­götv­uðu virkni ónæm­is­kerf­is­ins í vörnum gegn krabba­meini hefur sú hug­mynd verið þeim ofar­lega í huga að reyna að kveikja aftur á merkja­kerfi frumn­anna til að virkja ónæm­is­kerfið. Enn sem komið er höfum við ekki getað skil­greint virkni ónæm­is­kerf­is­ins nægi­lega vel til að nýta þessa virkni sem með­ferð­ar­úr­ræði.

Til­tölu­lega nýlega fór virkjun á ónæm­is­kerf­inu reyndar að verða vítt notuð með­ferð gegn krabba­meinum í blóði, þ.e. hvít­blæði. Í slíkum til­fellum er T frumum safnað úr sjúk­ling eða heppi­legum gjafa, þeim erfða­breytt til að ráð­ast á krabba­meinið og síðan rækt­aðar upp til að koma þeim aftur inn í lík­ama sjúk­lings­ins.

Rannsókn sem birt­ist í Nature Immunology fyrr á þessu ári gefur núna vonir um að fljót­lega verði komin sam­bæri­leg með­ferð­ar­úr­ræði sem hægt er að nota gegn krabba­meinsæxlum, þ.e. krabba­meinum ekki ein­ungis krabba­meinum í blóði.

Rann­sóknin var unnin við Cardiff í Bret­landi. Rann­sókn­ar­hóp­ur­inn var að rann­saka ónæm­is­frumur þegar þau rák­ust á gerð T frumna sem þekktu krabba­meins­frumur úr hinum ýmsu líf­færum og eyddu þeim.

T frum­urnar eru með sér­stakan við­taka sem þekkir prótín í krabba­meins­fru­munum sem heitir MR1. MR1 er til staðar í lík­ams­frumum okkar og frum­urnar nota til að láta ónæm­is­kerfið vita ef sýk­ing hefur náð ból­festu í frumunni. Þetta sama prótín nota T frum­urnar til að þekkja krabba­meins­frumur, þó ekki á nákvæm­lega sama hátt.

Rann­sókn­ar­hóp­ur­inn við Cardiff próf­aði T frum­urnar í frumu­rækt með krabba­meins­frumu­línum úr hinum ýmsu manna­líf­færum. Það virt­ist ekki skipta máli úr hvers konar krabba­meini frum­urnar komu, T frum­urnar þekktu þær alltaf sem krabba­meins­frumur og eyddu þeim.

Þegar rann­sókn­ar­hóp­ur­inn próf­aði svo að rækta heil­brigðar manna­frumur með T fru­munum þá voru áhrifin ekki þau sömu. Það eru ein­stak­lega góðar fréttir því það bendir til að T frum­urnar geti með nokkuð góðum hætti gert grein­ar­mun á krabba­meins­frumum og heil­brigðum frumum.

Þessi nýja týpa af T frumum vekur þó óhjá­kvæmi­lega fjöl­margar spurn­ingar líka. Er hugs­an­lega hægt að nota þennan við­taka til að erfða­breyta T frumum úr sjúk­lingi of nota þær svo til að eyða krabba­meinum? Hafa allir erfða­efnið (upp­skrift­ina) sem þarf til að mynda við­tak­ann, en erum bara ekki að nota hann. Er kannski hægt að bólu­setja fólk svo við myndum öll þessa týpu af T frumum og verðum þá nán­ast ónæm fyrir krabba­meini?

Þó nið­ur­stöður rann­sókn­ar­hóps­ins í Cardiff lofi sann­ar­lega góðu þá er enn langt í land áður en við getum svarað þessum spurn­ingum hér að ofan. Virkni í frumu­rækt er ekki það sama og virkni inn í lík­ama. Það gæti t.a.m. verið vand­kvæðum háð að koma T fru­munum á réttan stað í lík­am­anum svo þær gætu eytt krabba­meinum sem eru til staðar.

Frekari rann­sóknir eru í píp­unum hjá rann­sókn­ar­hópnum í Cardiff til að skoða t.a.m. hvaða ferlar það eru sem fara í gang. Það verður svo sann­ar­lega spenn­andi að fylgj­ast með fram­gangi mála í þessum rann­sóknum.

Umfjöll­unin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár