Bergsteinn hættir sem framkvæmdastjóri UNICEF

Fram­kvæmda­stjóri UNICEF hefur sagt upp störfum. Samtökin munu aug­lýsa starfið um helg­ina.

Bergsteinn Jónsson
Berg­steinn Jónsson Mynd: UNICEF

Berg­steinn Jónsson hefur ákveðið að hætta sem fram­kvæmda­stjóri UNICEF en hann hefur gegnt starf­inu síðan árið 2014. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu hjá UNICEF í dag.

Þá kemur fram hjá UNICEF að hann hafi starfað hjá sam­tök­unum frá árinu 2006 en að nú ætli hann að breyta til. UNICEF mun aug­lýsa eftir nýjum fram­kvæmda­stjóra um helg­ina.

„Við erum skilj­an­lega með böggum hildar á þessum tíma­mótum en nú er sú staða komin upp að við leitum að nýjum leið­toga. Ein­stak­lingi sem brennur af sama hug­sjóna­eldi fyrir rétt­indum og vel­ferð barna um allan heim og Beggi hefur gert síð­ustu fjórtán árin,“ segir í færsl­unni.

Samkvæmt UNICEF hefur Berg­steinn „fylgt þessu litla krafta­verki sem er lands­nefnd UNICEF á Íslandi frá því að hún var á barns­skónum.“ Hann hafi verið þar þegar hún sleit þeim og leitt hana svo gegnum ung­lings­árin, vöxt og vaxt­ar­verki að næsta kafla í glæstri sögu. Nú sé kom­inn tími á að „næsti snill­ingur taki við kefl­inu, góðu búi og þeim ótal krefj­andi og ótrú­lega spenn­andi verk­efnum sem fyrir liggja á næst­unni. Með hóp af frá­bæru sam­starfs­fólki á ynd­is­legum vinnu­stað, auð­vitað.“

„Við vorum heppin að fá að starfa með Begga, UNICEF var heppið að fá að njóta starfs­krafta hans og þá ekki síst börnin um allan heim sem hann hefur hjálpað og barist fyrir í gegnum starf­sem­ina hér á Íslandi. Við munum sakna hans,“ segir í færsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

góðgerðarstarf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár