Buffett gefur 350 milljarða í góðgerðarstarf

Warren Buffett hefur skipu­lega gefið frá sér ríf­lega 14 pró­sent hlut í Berks­hire Hathaway á tíu árum.

Fjár­festir­inn virti, Warren Buffett, sem er 85 ára gam­all, hefur gefið frá sér hlutafé í félag­inu Berks­hire Hathaway, að virði 2,86 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 350 millj­örðum króna. Um þetta var til­kynnt í gær.

Hluta­bréfin til­heyra nú góð­gerð­ar­sjóði Bill and & Melinda Gates Foundation og fjórum góð­gerð­ar­sjóðum sem fjöl­skylda Buffetts stýrir.

Frá því árið 2006, þegar Buffett til­kynnti um að hann ætl­aði sér að gefa meira en 90 pró­sent af eignum sínum til góð­gerð­ar­mála, hefur hann gefið 24,6 millj­arða Banda­ríkja­dala frá sér, eða sem nemur ríf­lega þrjú þús­und millj­örðum króna.

Samtals gaf Buffett frá sér um 19,6 millj­ónir hluta í Berks­hire Hathaway, sem allt voru svo­nefnd B-hluta­bréf, sem ekki fylgir atkvæða­réttur á hlut­hafa­fundum. Stærstur hluti bréf­anna fór til The Gates Foundation, sem er sjóður sem ein­blínir á styrki til mennt­unar- og heil­brigð­is­mála. Hann fékk 14,6 millj­ónir hluta í fyrr­nefndu félagi.

Óhætt er að segja að Buffett hafi verið dug­legur við að styðja við góð­gerð­ar­starf, frá því hann til­kynnti um ákvörðun sína árið 2006. Hann á ennþá um 18 pró­sent í Berks­hire Hathaway, en hefur skipu­lega gefið frá sér nærri fjórtán pró­sent hlut í félag­inu á und­an­förnum tíu árum, en heild­ar­eign hans í félag­inu var rúm­lega 32 pró­sent fyrir tíu árum.

Áður en til­kynnt var um gjöf­ina frá Buffett, var hann þriðji á lista Forbes yfir rík­ustu menn heims með heild­ar­eignir upp á ríf­lega 68 millj­arða Banda­ríkja­dala. Bill Gates var efstur á list­anum með 77 millj­arða Banda­ríkja­dala og spænski fast­eigna­fjár­festir­inn Amacio Ortega var annar með heild­ar­eignir upp á 74 millj­arða Banda­ríkja­dala.

Buffett hefur stýrt Berks­hire Hathaway frá því árið 1965 með ein­stökum árangri. Það á meðal ann­ars stóra eign­ar­hluti í Coca Cola, IBM, Wells Fargo, Geico trygg­ing­ar­fé­lag­inu, og BNSF rail­road.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

góðgerðarstarf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár