Hvenær við borðum hefur áhrif á heilsufar okkar

Hlutfall ein­stak­linga sem glíma við offitu í Banda­ríkj­unum hefur farið úr 15 í 40 pró­sent á rúmum 40 árum. Að vaka og borða þegar fólk ætti frekar að sofa gæti haft meiri áhrif á þyngd en það að borða óhollan mat á mat­máls­tíma.

Ofþyngd og offita virð­ast kannski vera þreytt hug­tök í umræð­unni, enda ætti holda­far ekki að skipta nokkru máli. Það sem þó skiptir máli er heilsu­far okkar og því miður er það svo að offita er tengd við aukna áhættu á fjölda sjúk­dóma.

Offita hefur auk­ist gríð­ar­lega síð­ast­liðin 30 ár, í Banda­ríkj­unum hefur hlut­fall ein­stak­linga sem glíma við offitu farið úr 15 pró­sent árin 1976-1980 upp í 40 pró­sent árið 2019. Á sama tíma glíma 33 pró­sent Banda­ríkja­manna við ofþyngd, ástand sem er oft und­an­fari offitu. Ætla má að allir þessir ein­stak­lingar þurfi í gegnum ævina á meira heil­brigð­is­þjón­ustu að halda í sam­an­burði við þá sem eru í kjör­þyngd.

Það er af þessum ástæðum sem rann­sóknir sem snúa að offitu og ofþyngd eru mik­il­vægar. Það skiptir máli að skilja hvað ger­ist í lík­am­anum til að skilja hvernig er hægt að koma í veg fyrir það, til að hámarka lífs­gæði ein­stak­linga, a.m.k. hvað heilsu­far þeirra varðar.

Rannsókn sem unnin var við Uni­versity of Virginia, sem fram­kvæmd var í músum, bendir til þess að lík­ams­klukkan geti bæði haft áhrif á hvað við borðum og hvernig við vinnum úr því. Rann­sóknin var birt í Current Biology snemma í þessum mán­uði.

Í rann­sókn hóps­ins í Virginu var fylgst með músum sem fengu mis­mun­andi fæði yfir nokkra vikna skeið. Annars vegar fékk hópur af músum það sem mætti kall­ast nátt­úru­legt fæði og hins vegar fékk hópur af músum orku­ríkt fæði, þ.e. kalor­íu­ríkt fæði. Í báðum til­fellum var mat­ur­inn aðgengi­legur hvenær sem er sól­ar­hrings­ins.

Munurinn á milli hópanna kom á óvart, en mýsnar sem fengu orku­rík­ari mat voru lík­legri til að borða allan sól­ar­hring­inn, þ.e. milli þess sem gæti talist mál­tíð en einnig voru þær lík­legri til að borða á hvíld­ar­tímum. Þessar mýs voru líka lík­legri til að fitna.

Þegar mýs sem ekki mynda dópamín, verð­launa­boða­efni sem við losum þegar við borðum góðan mat, fengu sömu með­ferð voru nið­ur­stöð­urnar aðrar. Þegar engin verð­launa­boð­efni voru til staðar héldu mýsnar réttum takti, óháð því hvort fæðan þeirra var orku­rík eða ekki.

Lík­ams­klukkan er það sem stjórnar takti lík­ama okkar, segir okkur hvenær við erum þreytt og hvenær við erum svöng. Þessi klukka slær takt­inn þegar kemur að öllum líf­eðl­is­fræði­legum ferlum í hverri frumu lík­ama okkar og er því, eins og gefur að skilja, mjög mik­il­vægt tæki til að við­halda heil­brigðum lík­ama.

Lífs­stíll sem setur þennan takt úr skorðum getur því haft meiri áhrif en virð­ist við fyrstu sýn. Að vaka og borða þegar við ættum að sofa hefur, sam­kvæmt þess­ari rann­sókn, jafn­vel meiri áhrif á okkur en að borða óhollan mat á mat­máls­tímum.

Fréttin birt­ist fyrst á vef Hvatans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár