Telur fjársterka aðila kaupa fjölmiðla til að koma hagsmunum sínum á framfæri

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur að hækka eigi end­ur­greiðslur til fjöl­miðla úr 18 í 25 pró­sent að nýju. Það segir að eign­ar­hald á fjöl­miðlum hafi færst á hendur fjár­sterkra aðila sem standa fyrir til­tekna skil­greinda hags­muni í íslensku atvinnu­lífi.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur brýnt að stuðn­ingur við fjöl­miðla af almannafé hafi það að meg­in­mark­miði að styðja við fjöl­ræði og fjöl­breytni. „Í þessu sam­bandi hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið í huga að eign­ar­hald stærri einka­rek­inna fjöl­miðla hefur í vax­andi mæli þró­ast á þann veg að eign­ar­haldið hefur færst á hendur fjár­sterkra aðila sem standa fyrir til­tekna skil­greinda hags­muni í íslensku atvinnu­lífi. Í sumum til­vikum blasir við að ráð­stöfun þess­ara aðila á fjár­munum í fjöl­miðla­rekstur hefur það meg­in­mark­mið að Ijá hags­munum við­kom­andi aðila enn sterk­ari rödd og vinna þeim þannig frek­ari fram­gang.“

[links]Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um frum­varp um stuðn­ing við öflun og miðlun frétta. Frestur til að skila inn umsögnum um frum­varp­ið, sem hefur það meg­in­mark­mið að veita um 400 millj­ónum króna úr opin­berum sjóðum til einka­rek­inna fjöl­miðla, rann út síð­ast­lið­inn föstu­dag.

Í umsögn þess segir enn fremur að við ofan­greindar aðstæður, þar sem fjár­sterkir aðilar sem standi fyrir til­tekna skil­greinda hags­muni í íslensku atvinnu­lífi nýti fjöl­miðla í sinni eigu til að vinna hags­munum sínum fram­gang, sé mik­il­vægt að stjórn­völd hagi stuðn­ingi sínum við fjöl­miðla þannig að þeir aðilar eða hags­muna­öfl sem hafa úr minni fjár­munum að moða geti einnig komið sínum mál­stað á fram­færi. „Ættu stjórn­völd að þróa almenn við­mið um stuðn­ing með þetta í huga, án þess að afstaða sé tekin til við­kom­andi lög­mætra hags­muna eða þeim mis­munað.“

Lægri endurgreiðslur vinni gegn smærri miðlum

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur að öll skil­yrði fyrir stuðn­ingi sem miði að, eða hafi þau áhrif, að opin­ber stuðn­ingur verður fyrst og fremst stærri og öfl­ugri fjöl­miðlum til gagns, á kostnað smærri fjöl­miðla, séu óheppi­leg út frá þessum sjón­ar­hóli. „Slík skil­yrði fá raunar illa sam­ræmst mark­miðum um fjöl­ræði og fjöl­breytni yfir­höfuð. Að þessu leyti tekur Sam­keppn­is­eft­ir­litið undir athuga­semdir ýmissa smærri fjöl­miðla, sem fram hafa komið, sem benda á að breyt­ingar á frum­varp­inu, frá fyrri útgáfu, sem horfa til strang­ari skil­yrða fyrir stuðn­ingi (og lægra end­ur­greiðslu­hlut­falls), vinni gegn smærri fjöl­miðlum og þar með fjöl­breytni og fjöl­ræði.“

[adspot]Eft­ir­litið ítrekar líka fyrri athuga­semd sína við frum­varpið, sem sett var fram þegar það var í sam­ráðs­ferli, um að end­ur­greiðslur nái ekki til sér­hæfðra fjöl­miðla sem fjalli um afmarkað efni eða afmark­aða þætti sam­fé­lags­ins. Dæmi um slíka fjöl­miðla, sem hafa gagn­rýnt frum­varpið, er Fótbolti.net, sem fjallar ein­vörð­ungu um knatt­spyrnu.

Í umsögn­inni segir enn fremur að hug­myndir sem fram hafi komið sem fela í sér að almenn­ingur geti með ein­hverjum hætti haft áhrif á hvert stuðn­ingur rennur séu allra gjalda verðar. „Sé það vilji lög­gjafans að almenn­ingur styrki fjöl­miðla, í þessu sam­hengi með greiddum sköttum, er hægt að færa rök fyrir því að almenn­ingur væri best til þess fallin að útdeilda þeim fjár­munum. Ein leið í því sam­hengi væri að gera skatt­skyldum aðilum kleyft að velja hvert styrkur hvers skatt­greið­anda rynni sam­hliða skilum á skatt­skýrslu.“

Kjarninn er einn þeirra fjöl­miðla sem upp­fyllir þau skil­yrði sem sett eru fyrir stuðn­ings­greiðslum eins og frum­varpið er í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár