Fjölmiðlanefnd vill draga fram raunverulegt eignarhald og yfirráð yfir fjölmiðlum

Stjórn­sýslu­nefnd sem ann­ast eft­ir­lit með fjöl­miðlum segir að breyt­ingar sem gerðar voru á loka­sprett­inum á frum­varpi um stuðn­ings­greiðslur til fjöl­miðla bitni á smærri fjöl­miðlum en hafi engin áhrif á væntar greiðslur til stærstu miðla lands­ins.

Fjöl­miðlar sem eru í eigu félaga sem stað­sett eru í ríkjum þar sem gagn­sæi eign­ar­halds á fyr­ir­tækj­unum er ekki opin­bert geta komið sér undan því að fjöl­miðla­nefnd sann­reyni upp­gefið eign­ar­hald þeirra. Nefndin telur að Alþingi þurfi að taka sér­stak­lega afstöðu til þess hvort gera þurfi þær kröfur að fjöl­miðlar fái ekki væntar stuðn­ings­greiðslur frá hinu opin­bera nema hægt sé að sann­reyna eign­ar­hald félaga með gögnum auk þess sem hún telur brýnt að breyta lögum með þeim hætti að hún fái heim­ildir til að afla allra þeirra ganga sem til þarf til að sann­reyna eign­ar­hald á fjöl­miðlum. „Það sama gildir um upp­lýs­ingar um yfir­ráð sem skap­ast með öðrum hætti en beinu eign­ar­haldi.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögn fjöl­miðla­nefndar um frum­varp um stuðn­ing við öflun og miðlun frétta. Frestur til að skila inn umsögnum um frum­varpið, sem hefur það meg­in­mark­mið að veita um 400 millj­ónum króna úr opin­berum sjóðum til einka­rek­inna fjöl­miðla, rann út síð­ast­lið­inn föstu­dag.

Breytingin bitnar mest á smærri fjölmiðlum

Frum­varpið hefur átt margra ára aðdrag­anda. Það var kynnt í sam­ráðs­gátt í jan­úar 2019 og því var fyrst dreift á Alþingi 20. maí sama ár. Ekki náð­ist hins vegar að mæla fyrir því fyrr en 16. des­em­ber sama ár. Þá hafði verið gerð sú breyt­ing frá fyrri útgáfum að vænt end­ur­greiðslu­hlut­fall til þeirra fjöl­miðla sem upp­fylla skil­yrði fyrir end­ur­greiðslu var lækkað úr 25 í 18 pró­sent. Fjárhæð hámarks­end­ur­greiðslu hefur þó ekki breyst og er ennþá 50 millj­ónir króna.

[adspot]Í umsögn fjöl­miðla­nefndar segir að þrátt fyrir lækkun hlut­falls end­ur­greiðslu muni að öllum lík­indum þau einka­reknu fjöl­miðla­fyr­ir­tæki sem eru stærst, Árvakur, Sýn og Torg, eftir sem áður fá hámarks­end­ur­greiðslu, alls 50 millj­ónir króna. „Viðbúið er að breyt­ingin muni bitna mest á smærri fjöl­miðlum þar sem rekstr­ar­kostn­aður þeirra er ekki nógu hár til að ná upp í hámarks­end­ur­greiðsl­una. Lægra hlut­fall end­ur­greiðslu þýðir því ein­fald­lega að þeir fá lægri fjár­hæð end­ur­greidda þrátt fyrir óbreytta hámarks­end­ur­greiðslu. Í athuga­semdum í grein­ar­gerð við 3. gr. frum­varps­ins segir að sú leið að end­ur­greiða einka­reknum fjöl­miðlum hluta þess kostn­aðar sem fellur til við að afla og miðla fréttum, frétta­tengdu efni o.fl. sé ekki aðeins hugsuð sem stuðn­ingur við stærri fjöl­miðla með sterkar rit­stjórnir, heldur jafn­framt sem stuðn­ingur við smærri miðla, þ.m.t. stað­bundna fjöl­miðla sem gegna mik­il­vægu menn­ingar- og lýð­ræð­is­hlut­verki í smærri byggðum. Með áður­greindri lækkun hlut­falls end­ur­greiðslu án þess að lækka hámark­end­ur­greiðslu til sam­ræmis er þó ljóst að hún hefur mest áhrif á smærri miðla en lík­lega engin á þá stærri.“

Þarf að skýra betur hvernig heildarfjárhæðinni verður skipt

Í frum­varp­inu var einnig gert ráð fyrir sér­stökum við­bót­ar­stuðn­ingi til fjöl­miðla. Eftir sam­ráðs­ferli í upp­hafi árs í fyrra voru gerðar þær breyt­ingar á því að bæta honum við, en um var að ræða allt að 5,15 pró­sent af launum alls starfs­fólks á rit­stjórn sem fellur undir lægra skatt­þrep tekju­skatts­stofna. Kostn­aður við það var met­inn um 170 millj­ón­ir króna og uppi­staðan af þeirri greiðslu átti að rata til stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tækj­anna þriggja.

[links]Í því frum­varp­inu sem mælt var fyrir í des­em­ber hafði hlut­fall sér­stöku við­bót­ar­greiðsl­unnar verið lækkað í 4,0 pró­sent. Ætla má að kostn­aður við hana myndi því verða rúm­lega 130 millj­ónir króna miðað við sömu for­sendur og lágu fyrir í fyrri kostn­að­ar­á­ætlun.

Fjöl­miðla­nefnd segir í umsögn sinni að ekki sé ljóst sam­kvæmt frum­varp­inu hvort að end­ur­greiðsla kostn­aðar gangi framar og að sér­stakur stuðn­ingur mæti afgangi ef upp kæmi sú staða að heild­ar­fjár­hæðin sem sett hefur verið í mála­flokk­inn á fjár­lögum, alls 400 millj­ónir króna, dyggði ekki yfir báða flokka. Að mati fjöl­miðla­nefndar vantar því að skýra betur hvernig þessum allt að 400 millj­ónum króna verði skipti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár