Efling undirbýr verkfallsaðgerðir í borginni

Ákvörðun um að leggja fram til­lögu um verk­falls­boðun var tekin að loknum samn­inga­fundi í dag hjá rík­is­sátta­semj­ara. Viðræður halda áfram sam­hliða und­ir­bún­ingi verk­falls­að­gerða.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Samn­inga­nefnd Eflingar gagn­vart Reykja­vík­ur­borg hefur sam­þykkt til­lögu um vinnu­stöðvun sem áformað er að hefj­ist í febr­úar næst­kom­andi. Félags­menn þurfa að sam­þykkja til­lög­una og er und­ir­bún­ingur haf­inn á skrif­stofum Eflingar fyrir atkvæða­greiðslu. Samkvæmt til­lög­unni verða hálfir og heilir verk­falls­dagar með stig­vax­andi þétt­leika fyrri hluta febr­ú­ar­mán­uðar og ótíma­bundið verk­fall frá mánu­deg­inum 17. febr­úar næst­kom­andi.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Eflingu sem félagið sendi frá sér í dag.

Þá segir í til­kynn­ing­unni að ákvörðun um að leggja fram til­lögu um verk­falls­boðun hafi verið tekin að loknum samn­inga­fundi í dag hjá rík­is­sátta­semj­ara. Viðræður haldi áfram sam­hliða und­ir­bún­ingi verk­falls­að­gerða. Óskaði nefndin í dag eftir samn­inga­fundi með Reykja­vík­ur­borg næst­kom­andi fimmtu­dag.

„Við höfum fengið nóg“

[links]Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir við til­efnið að Reykja­vík­ur­borg hafi enga við­leitni sýnt til að koma til móts við vanda lág­launa­fólks­ins sem haldi uppi grunn­þjón­ustu borg­ar­innar eða til að standa við eigin fag­ur­gala um borg­ina sem vinnu­stað jöfn­uðar. Reykja­vík­ur­borg hafi sýnt starfs­fólki sínu á lægstu laun­unum van­virð­ingu í þessum við­ræðum, með fram­komu sinni, töfum og sinnu­leysi. „Við höfum fengið nóg. Við krefj­umst þess að gengið verði frá sann­gjörnum samn­ingi sem fyrst. Við bindum vonir við fund­inn í næstu viku.“

Rúmlega 1800 starfs­menn Reykja­vík­ur­borgar starfa undir kjara­samn­ingi Eflingar. Þar af eru yfir 1000 á leik­skólum, 710 í umönn­un­ar­störfum á vel­ferð­ar­sviði og um 140 í fjöl­breyttum störfum á umhverfis- og skipu­lags­sviði.

Nánari upp­lýs­ingar um fram­kvæmd atkvæða­greiðslu verða birtar á næstu dögum, sam­kvæmt Eflingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Pistill

Sandra B. Franks

Far­ald­ur­inn yfir­skyggði allt

Á við­burða­ríku ári sem nú er liðið yfir­skyggði Covid-19 far­ald­ur­inn allt annað. Hann reyndi veru­lega á starfs­þrek heil­brigð­is­starfs­manna og ekki síst okkur sjúkra­liða. Mörg okkar voru í fram­lín­unni. Aðrir sjúkra­liðar stóðu vakt­ina í störfum sem ekki voru síður mik­il­væg. Ég er mjög stolt af því hve frá­bær­lega sjúkra­liða­stéttin hefur staðið sig í Covid far­aldr­inum. Hann hefur svo sann­ar­lega beint athygl­inni...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár