Ætla að huga að aðgerðum í byrjun næsta árs

Formaður BSRB segir að ef við­horf við­semj­enda þeirra breyt­ist ekki snar­lega á nýju ári þá megi búast við að þau fari að huga að aðgerðum snemma á næsta ári.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB. Mynd: Bára Huld Beck

Við­semj­endur BSRB geta ekki sýnt félags­mönnum þá óvirð­ingu að draga við­ræður um nýjan kjara­samn­ing von úr viti og nú er kom­inn tími til að opin­berir starfs­menn beiti þeim vopnum sem þeir hafa til að þrýsta á um gerð kjara­samn­ings.

Þetta kemur fram í pistli sem Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB, skrifar og birt­ist á vef­síðu banda­lags­ins í dag. Í pistl­inum fer hún yfir stöð­una í kjara­við­ræð­unum og öðrum verk­efnum sem BSRB hefur sinnt á árinu sem er að líða.

„Við erum að vinna að mestu breyt­ingum á vinnu­tíma opin­berra starfs­manna frá því lög um 40 stunda vinnu­viku voru sett fyrir nærri hálfri öld síðan og það skiptir máli að vanda til verka. Stytting vinnu­vik­unnar án launa­skerð­ingar hefur verið krafa BSRB um langt ára­bil og þegar ekki sér til lands eftir níu mán­aða við­ræður er ljóst að við þurfum að end­ur­skoða aðferða­fræð­ina,“ skrifar hún.

Hún segir jafn­framt að í gegnum tíð­ina hafi opin­berir starfs­menn þurft að standa í harð­vít­ugri bar­áttu til að ná fram mik­il­vægum kjara­bótum. Þar hafi skipt gríð­ar­miklu máli sú góða sam­staða sem náðst hafi og sá þrýst­ingur sem sam­einað afl rúm­lega 22 þús­und félags­manna í aðild­ar­fé­lögum BSRB geti beitt.

Fólk verður að geta lifað af á launum sínum

Sonja telur að á nýju ári þurfi opin­berir starfs­menn á þess­ari sam­stöðu að halda enn á ný. Full sam­staða sé innan BSRB um að ekki verði gengið til kjara­samn­inga nema fólk geti lifað af á launum sínum, vinnu­vikan verði stytt hjá bæði dag­vinnu­fólki og gengið verði enn lengra hjá vakta­vinnu­fólki, tekið verið skref í átt að jöfnun launa á milli almenna og opin­bera vinnu­mark­að­ar­ins og samið verði um bætt starfs­um­hverfi og launa­þró­un­ar­trygg­ingu.

Hún segir að tím­inn sé runn­inn frá þeim. „Við getum ekki beðið samn­ings­laus, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð. Við­semj­endur geta ekki sýnt okkar félags­mönnum þá van­virð­ingu að draga samn­inga­við­ræður von úr viti. Nú þurfum við að beita þeim vopnum sem við höfum til að tryggja þetta mikla hags­muna­mál. Breytist við­horf við­semj­enda okkar ekki snar­lega á nýju ári má búast við að við förum að huga að aðgerðum snemma á næsta ári,“ skrifar hún.

Hægt er að lesa pistil­inn í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár