Ísland á gráa listann vegna peningaþvættis

Ísland hefur verið sett á gráa lista FATF ásamt Mongólíu og Simbabve. Aðgerðir sem ráð­ist hefur verið í síð­ast­liðið eitt og hálft ár reynd­ust ekki nægj­an­legar.

Ísland hefur verið sett á gráan lista alþjóð­legu sam­tak­ana Fin­ancial Act­ion Task Force (FATF) vegna ónógra varna gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Ísland bæt­ist á list­ann ásamt Mongólíu og Simbabve. Kjarninn hefur gögn undir höndum sem sýna þetta. Mannlíf greindi fyrst frá. 

Af list­anum fara Eþíópía, Sri Lanka og Túnis. Á meðal ann­arra ríkja sem þar er að finna, og talin eru að séu með alvar­lega ann­marka á sviði varna gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, eru Kambódía, Jemen, Sýrland og Panama.

[links]Bretland og Banda­ríkin ýttu á að Ísland yrði sett á list­ann, meðal ann­ars til að skapa for­dæmi fyrir því að hart sé tekið á slökum vörnum gagn­vart pen­inga­þvætti. Evr­ópu­sam­bandið og flest aðild­ar­ríki þess studdu hins vegar að Ísland fari ekki á list­ann.

Í yfir­lýs­ingu FATF sem verður birt vegna þessa kemur fram að Íslandi hafi tekið stór skref í átt að því að taka á þeim málum sem voru í ólagi hjá rík­inu vegna pen­inga­þvætt­is­varna, en að FATF hefði ekki getað að fullu leyti kannað hvort að inn­leið­ing aðgerð­anna væri nægj­an­leg í ljósi þess að þær eru svo nýtil­komnar.

Í einu af fjöl­mörgum frum­vörpum sem keyrð hafa verið í gegn síð­ustu mán­uði til að laga íslenskt lagaum­hverfi þannig að það sam­ræm­ist eðli­legum kröfum sam­fé­lags sem vill ekki að pen­inga­þvætti sé til staðar hjá sér er farið yfir hvað ger­ist ef Ísland endar á list­an­um. Þar seg­ir: „Bregð­ist ríki ekki við kröfum FATF hafa aðild­ar­ríkin sam­mælst um að beita hvert annað þrýst­ingi með því að setja ríki á sér­stakan lista FATF yfir „ósam­vinnu­þýð“ ríki eða ríkja­svæði. Felst þrýst­ing­ur­inn m.a. í því að fara fram á að við­skipti við aðila sem búsettur er í við­kom­andi ríki sæti auk­inni áreið­an­leika­könn­un, gerðar séu strang­ari kröfur um hvers konar fjár­mála­starf­semi, stofnun úti­búa, dótt­ur­fé­laga og umboðs­skrif­stofa og jafn­vel útgáfu aðvar­ana um að við­skipti við aðila þess­ara ríkja geti falið í sér hættu á pen­inga­þvætti eða fjár­mögnun hryðju­verka. Dæmi eru um að erlend fyr­ir­tæki og fjár­mála­stofn­anir hafi frekar kosið að slíta við­skipta­sam­böndum við við­kom­andi ríki, þar á meðal milli­banka­við­skipt­um, í stað þess að fram­kvæma aukna áreið­an­leika­könnun (e. de-risk­ing). Það getur því haft veru­lega nei­kvæð áhrif á fjár­mála­kerfið í heild sinni og trú­verð­ug­leika Íslands á alþjóða­vett­vangi ef ekki er brugð­ist við til­mælum FATF fljótt og örugg­lega.“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði við RÚV í gær að það yrðu gríð­ar­leg von­brigði ef Ísland myndi lenda á list­anum. „Það ætti í raun og veru aðeins að vera eitt atriði að vera útistand­andi af öllum þeim atriðum sem voru nefnd í upp­haf­legu skýrsl­unni um þessi 51 atriði þannig það eru ákveðin von­brigði. Svo er ákveðin óvissa sem virð­ist fylgja því, við höfum dæmi um að þessi listi hefur lítil áhrif en að sjálf­sögðu er mér annt um okkar orð­spor og ég tel að þarna sé verið að bregð­ast ansi hart við þeirri stöðu sem raun­veru­lega er uppi.“

Kapphlaup við tímann til að lenda ekki á listanum

Kjarn­inn hefur fjallað ítar­lega um þá stöðu sem hefur verið uppi í vörnum Íslands gagn­vart pen­inga­þvætti á und­an­förnum árum. FATF skil­aði skýrslu um varnir Íslands gegn pen­inga­þvætti og fjár­­­mögnun hryðju­verka í apríl í fyrra. Nið­­ur­­staða hennar var að Ísland fékk fall­ein­kunn. Lagaum­hverfi, virkni eft­ir­lits og fram­­fylgd var í lama­­sessi að mati FAT­F.

[adspot]Íslandi var gefið fram á mitt ár 2019 til að bregð­­ast við. Ef úrbætur yrðu ekki nægj­an­­leg­­ar, og Ísland færi á lista FATF yfir ósam­vinn­u­þýð ríki myndi það, að mati inn­­­lendra hags­muna­að­ila, leiða til þess að orðstír og trú­verð­ug­­leiki Íslands á alþjóða­vett­vangi biði veru­­legan hnekki. Lík­urnar á auk­inni erlendri fjár­fest­ingu myndu drag­ast saman og áhrif á láns­hæf­is­mat íslenskra fyr­ir­tækja, meðal ann­ars fjár­mála­stofn­ana, yrðu óum­flýj­an­leg.

Kjarn­inn greindi frá því í lok ágúst að Ísland hefði skilað FATF eft­ir­­­fylgn­is­­­skýrslu vegna aðgerða sem Ísland hefur gripið til til að bæta varnir sínar gegn pen­inga­þvætti og fjár­­­­­mögnun hryðju­verka, snemma í sum­­­­­ar. Skýrslan var tekin til umræðu á fundi FATF þann 19. júní síð­­­ast­lið­inn.

Í eft­ir­fylgn­is­skýrslu sem birt var snemma í sept­em­ber kom fram að Ísland hefði upp­­­fyllt 28 af 40 til­­­mælum sem FATF gerði kröfu um að lög­­­gjöf ríkja þurfi að upp­­­fylla. Ísland upp­­­fyllir ell­efu til­­­mæli að hluta en ein til­­­mæli, sem lúta að starf­­semi almanna­heilla­­fé­laga, töld­ust enn óupp­­­fyllt. Ráð­ist var í að keyra í gegn lög um þau fyrr í þessum mán­uði, og virt­ist þing­heimur þá vera að vakna til vit­undar um alvar­leika máls­ins.

Einn maður árum saman

Pen­inga­þvætt­is­skrif­stofa var lengi starf­­rækt innan Efna­hags­brota­­deildar rík­­is­lög­­reglu­­stjóra. Þar starf­aði einn ein­stak­l­ingur og árangur af starf­­sem­inni lít­ill sem eng­inn.

Skrif­­stofan var færð yfir til emb­ættis hér­­aðs­sak­­sókn­­ara um mitt ár 2015. Ólafur Þór Hauks­­son, hér­­aðs­sak­­sókn­­ari, var spurður af því í sjón­­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut 3. októ­ber 2018 hvort aðgerðir Íslend­inga til að koma í veg fyrir að pen­inga­þvætti hefðu verið við­un­andi á und­an­­förnum árum. „Þessu eru auðsvar­að,“ sagði Ólaf­­ur, „nei það er það ekki.“

Skýrsla FATF ýtti veru­­lega við málum hér­­­lend­­is. Það þurfti að bregð­­ast við þessum athuga­­semdum hratt, auk þess sem fyrir lá að fjórða pen­inga­þvætt­is­til­skipun Evr­­ópu­­sam­­bands­ins yrði tekin upp í samn­ingnum um Evr­­ópska efna­hags­­svæðið (EES) í des­em­ber 2018.

Starfs­hópur á vegum dóms­­mála­ráð­herra var því settur í að semja frum­varp um heild­­ar­end­­ur­­skoðun á lögum um pen­inga­þvætti og fjár­­­mögnun hryðju­verka.

Sú vinna skil­aði því að Sig­ríður Á. And­er­sen dóms­­mála­ráð­herra lagði fram frum­varp um ný heild­­ar­lög 5. nóv­­em­ber síð­­ast­lið­inn. Málið var afgreitt frá efna­hags- og við­­skipta­­nefnd 12. des­em­ber og síð­­­ari tvær umræður kláraðar dag­inn án ann­­arra ræð­u­halda en Brynjars Níels­­son­­ar, sem mælti fyrir nefnd­­ar­á­liti um málið sem full­­trúar alla flokka skrif­uðu und­­ir.

Frum­varpið varð að lögum með öllum greiddum atkvæðum þing­­manna þann sama dag. Þau tóku gild 1. jan­úar 2019.

Í grein­­ar­­gerð með frum­varp­inu sagði að nauð­­syn­­legt yrði að fara í heild­­ar­end­­ur­­skoðun á gild­andi lögum þar sem gera þarf veru­­legar úrbætur á lög­­unum til að upp­­­fylla þær lág­­marks­­kröfur sem gerðar eru á alþjóða­vett­vangi.

Skylt að til­­kynna um grun­­sam­­leg við­­skipti

Á meðal þeirra breyt­inga sem nýju lögin hafa í för með sér er að ákvæði um ein­stak­l­inga „í áhætt­u­hópi vegna stjórn­­­mála­­legra tengsla“ eru ítar­­legri en í gömlu lög­­un­­um. Til þessa hóps telj­­ast þeir sem eru eða hafa verið hátt­­settir í opin­berri þjón­ustu, nán­asta fjöl­­skylda þeirra og ein­stak­l­ingar sem vitað er að eru nánir sam­­starfs­­menn þeirra. Sam­­kvæmt nýju lög­­unum þurfa til­­kynn­inga­­skyldir aðil­­ar, t.d. bankar eða aðrar fjár­­­mála­­stofn­an­ir, að hafa við­eig­andi „kerfi, ferla og aðferðir til að meta hvort inn­­­lendur eða erlendur við­­skipta­­maður eða raun­veru­­legur eig­andi sé í áhætt­u­hópi vegna stjórn­­­mála­­legra tengsla.“

[adspot]Það var ákvæði um raun­veru­­lega eig­endur gert ítar­­legra. Þannig þurfi til að mynda að gera grein­­ar­mun á laga­­legum eig­endum og raun­veru­­legum eig­endum t.d. fjár­­vörslu­­sjóða sem oft eru ein­ungis skráðir í eigu fjár­­­stýr­ing­­ar­­fyr­ir­tækja án þess að fyrir liggi hvaða ein­stak­l­ingar eigi fjár­­mun­ina sem í sjóð­unum eru.

Pen­inga­þvætt­is­skrif­stofa hér­­aðs­sak­­sóknar fékk nýtt nafn, skrif­­stofa fjár­­­mála­­grein­inga lög­­­reglu. Starfs­­mönnum hennar hefur verið fjölgað mjög, fjár­­munir hafa verið settir í að kaupa upp­­lýs­inga­­kerfi til að taka á móti og halda utan um til­­kynn­ingar um pen­inga­þvætti og eft­ir­lit með starf­­semi innan banka hefur verið eflt. Öllum opin­berum aðilum er nú skylt að til­­kynna henni um grun­­sam­­leg við­­skipti og sú til­­kynn­ing­­ar­­skylda víkur allri þagn­­ar­­skyldu stjórn­­­valda til hlið­­ar­.

Þving­un­ar­úr­ræði og við­­ur­lög

Með nýju lög­­unum var skipun og hlut­verk stýri­hóps um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­­­mögnun hryðju­verka lög­­­fest. Helstu verk­efni stýri­hóps­ins sam­­kvæmt frum­varp­inu, verða að tryggja yfir­­­sýn, sam­hæf­ingu og stefn­u­­mótun í mála­­flokkn­­um.

Í stýri­hópnum eiga sæti full­­trúar þeirra stjórn­­­valda sem eiga aðkomu að mála­­flokkn­um, sem eru m.a. dóms­­mála­ráðu­­neyt­ið, atvinn­u­­vega- og nýsköp­un­­ar­ráðu­­neyt­ið, fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyt­ið, Fjár­­­mála­eft­ir­litið og aðrir eft­ir­lits­að­ilar með lög­­un­um, Seðla­­banki Íslands, Toll­­stjóri, skatt­yf­­ir­völd, Hér­­aðs­sak­­sókn­­ari og Lög­­regla höf­uð­­borg­­ar­­svæð­is­ins.

Þá verða veru­­legar breyt­ingar hvað varðar þving­un­ar­úr­ræði og við­­ur­lög. Hingað til hafa eft­ir­lits­að­ilar með pen­inga­þvætti og fjár­­­mögnun hryðju­verka á Íslandi nefn­i­­lega ekki haft við­eig­andi úrræði til þess að bregð­­ast við lög­­brot­­um. Sektir voru einu við­­ur­lögin sam­­kvæmt gömlu lög­­unum sem eft­ir­lits­að­ilar gátu gripið til. Í alvar­­legri brotum var hins vegar hægt að ákæra.

Hvöss brynn­ing og óvið­un­andi ástand

Kjarn­inn greindi frá því að Unnur Gunn­­ar­s­dótt­ir, for­­stjóri Fjár­­­mála­eft­ir­lits­ins, hafi skrifað pistil í nýj­­­ustu útgáfu Fjár­­­­­mála, rits stofn­un­­­ar­inn­­­ar, sem kom út seint ágúst, þar sem fram kom að þegar FATF hafi fellt áfell­is­­dóm sinn yfir lög­­­­­gjöf og eft­ir­liti Íslend­inga með pen­inga­þvætti og fjár­­­­­mögnun hryðju­verka í fyrra­vor hafi „Fjár­­­mála­eft­ir­litið og ýmsir aðrir [feng­ið] hvassa brýn­ingu um að taka til hend­inni og verða við úrbóta­­­kröfum alþjóða­­­sam­­­fé­lags­ins.“

[adspot]Kjarn­inn greindi frá því 31. maí síð­­ast­lið­inn að FME hefði fram­­kvæmt athugun á aðgerðum Arion banka gegn pen­inga­þvætti og fjár­­­mögnun hryðju­verka. Slík athugun á Arion banka hófst í októ­ber 2018 og leiddi til þess að eft­ir­litið gerði marg­hátt­aðar athuga­­semdir við brotala­mir hjá bank­­anum í jan­úar 2019.

Fjár­­­mála­eft­ir­litið hefur ekki viljað svara því hvort yfir standi athugun á aðgerðum Lands­­bank­ans, Íslands­­­banka og Kviku banka gegn pen­inga­þvætti og fjár­­­mögnun hryðju­verka. Það seg­ist þó hafa fram­­kvæmt tæp­­lega 20 athug­­anir hjá til­kynn­ing­ar­skyldum aðilum sem lúta eft­ir­liti stofn­un­­ar­innar frá árinu 2017 og nú standi yfir þrjár slíkar athug­an­­ir. Það kunni að vera að gagn­­sæ­istil­kynn­ingar verði birtar vegna þeirra athug­ana innan tíð­­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár