Þróunarfræðilegur tilgangur fullnæginga

Full­næg­ingar kvenna hafa löngum verið ráð­gáta, þ.e.a.s. til­gangur þeirra þar sem þær virð­ast ekki nauð­syn­legar til að við­halda stofn­inum. En nýj­ustu rann­sóknir benda þó til ann­ars.

Full­næg­ingar karla hafa senni­lega aldrei verið ráð­gáta þró­un­ar­fræð­inga. Bæði vegna þess að upp­haf­lega voru þró­un­ar­fræð­ingar ein­göngu karlar en líka vegna þess að til­gangur sáð­láts er aug­ljós þegar kemur að því að búa til nýjan ein­stak­ling.

Full­næg­ingar kvenna hafa hins vegar löngum verið ráð­gáta, þ.e.a.s. til­gangur þeirra þar sem þær virð­ast ekki nauð­syn­legar til að við­halda stofn­inum. En nýj­ustu rann­sóknir benda þó til ann­ars.

Rann­sókn­ar­hópur við Uni­versity of Cincinnati hefur unnið að rann­sóknum á kyn­hegðun kan­ína í þeim til­gangi að skil­greina hvers vegna konur fá full­næg­ingar.

Rann­sókn­ar­hóp­ur­inn gengur út frá þeirri til­gátu að þar sem líf­eðl­is­fræðin á bak við full­næg­ingu er mjög flókin, þá er mjög ólík­legt að hún hafi þró­ast fyrir til­viljun. Lík­leg­ast er að ein­hverjir þró­un­ar­fræði­legir kraftar togi í þá eig­in­leika sem gefa konum hæfn­ina til að fá full­næg­ingu.

Margir hafa haldið því fram að til­gang­ur­inn sé ein­fald­lega að stuðla að því að konur stundi kyn­líf, þar sem afleið­ingar þess geta ekki bara verið sárs­auka­fullar heldur einnig lífs­hættu­legar (hér er vitnað í barns­fæð­ingar).

Hjá mörgum öðrum dýra­teg­undum hefur kyn­ferð­is­leg örvun kven­dýr­anna þann til­gang að koma af stað egg­losi. Rann­sókn­ar­hóp­ur­inn í Uni­versity of Cincinnati gekk því út frá því að svip­aðan til­gang væri að finna meðal mann­fólks.

Í rann­sókn sem birt­ist í vís­inda­rit­inu PNAS, er hóp­ur­inn að prófa hvaða áhrif það hefur á kven­dýrin að þegar efnið flu­ox­etine er til staðar. Flu­ox­etine minnkar líkur á full­næg­ingu hjá konum og því vildi hóp­ur­inn skoða hvort efnið hefði þau áhrif á kan­ínur að egg­los ætti sér ekki stað.

Þegar kan­ín­unum var gefið flu­ox­itine dag­lega í tvær vikur fækk­aði egg­losum um 30%. Það gefur til kynna að ferl­arnir sem flu­ox­itine hafa áhrif á, stjórni ekki bara full­næg­ingu kvenna heldur einnig getu kven­kyns kan­ína til að fjölga sér.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar benda til þess að full­næg­ing kvenna sé arf­leið frá sams­konar kerfi og fyr­ir­finn­ast í kan­ínum. Þar er kyn­ferð­is­leg örvun nauð­syn­leg til að egg­los fari af stað. Þar af leið­andi er hún mik­il­væg til þess að við­halda teg­und­inni.

Eins og áður kom fram er frekar ólík­legt að jafn flókið ferli og full­næg­ing þró­ist ef eng­inn til­gangur er með því fyrir teg­und­ina. Frekari rann­sóknir munu þó vænt­an­lega leiða í ljós hvort meiri þró­un­ar­fræði­legur ávinn­ingur séu af þessum ferlum eða hvort full­næg­ingar kvenna séu í dag bara skemmti­leg við­bót við líf­eðl­is­fræð­ina okkar mann­anna.

Umfjöll­unin birt­ist líka á Hvatinn.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár