Landlæknir mótmælti auknu aðgengi að áfengi á sund- og baðstöðum

Breyting á reglu­gerð sem heim­ilar að veita áfengi í tak­mörk­uðu magni á bað­stað tók gildi í byrjun sept­em­ber. Embætti land­læknis var­aði við að slíkt yrði leyft.

Bláa lónið
Bláa lónið Mynd: Skjáskot

Embætti land­læknis gerði alvar­legar athuga­semdir í byrjun sum­ars við drög að breyt­ingu á reglu­gerðum um bað­staði í nátt­úr­unni og um holl­ustu­hætti á sund- og bað­stöðum.

Breyt­ing­arnar vörð­uðu veit­inga­þjón­ustu á bað­stöðum, svo sem í afþrey­ing­ar­laugum, en þær tóku gildi þann 5. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Þá kom fram á sam­ráðs­gátt stjórn­valda að bað­staðir í nátt­úr­unni, eins og til að mynda Bláa lónið, hefðu um ára­bil boðið upp á tak­mark­aðar veit­ingar á baðsvæðum og hefði þar verið farið eftir þeim verk­lags­reglum sem fram koma í starfs­leyfi.

Lagt var til með breyt­ing­unum að kveðið yrði á um í reglu­gerð­inni að heim­ilt væri að veita áfengi í tak­mörk­uðu magni á bað­stað og að fjallað yrði um það í örygg­is­reglum og starfs­leyfi.

Embætti land­læknis skil­aði inn umsögn á sam­ráðs­gátt í sumar en emb­ættið var­aði við til­lögu stjórn­valda varð­andi áfengi á bað­stöðum. „Sú breyt­ing sem lögð er til er til þess fallin að auka enn frekar aðgengi að áfengi og er lík­leg til að auka enn á flækju og erf­ið­leika þeirra sem sinna gæslu og bera ábyrgð á öryggi gesta. Það að auki eru bað­staðir fjöl­skyldu­staðir þar sem börn eru tíðir gestir, ein eða með fjöl­skyldu,“ stendur í umsögn­inni.

Ekki til fyrirmyndar fyrir börn

Það að áfengi yrði gert að vöru sem til­heyrði heil­brigðri úti­veru og heilsu­rækt væri ekki til fyr­ir­myndar fyrir börn og sendi þau skila­boð að notkun áfengis væri hluti af því að stunda bað­staði. Þá væru jafn­framt vís­bend­ingar um að notkun áfengis á bað­stöðum gæti leitt til auk­innar hættu á slysum.

Að mati land­læknis var óljóst hvert mark­miðið væri með umræddri breyt­ingu á reglu­gerð­inni. „Í reglu­gerð um holl­ustu­hætti á sund- og bað­stöðum kemur skýrt fram að ein­stak­lingum undir áhrifum áfengis eða ann­arra vímu­efna er ekki heim­ill aðgangur að sund- og bað­stöðum. Ætla má að umrædd reglu­gerð­ar­breyt­ing fari ekki saman við til­vitnað ákvæði í þess­ari reglu­gerð,“ segir í umsögn emb­ættis land­læknis.

Vandséð að stefnubreytingin væri í takt við stefnu stjórnvalda í áfengis- og vímuvörnum

Þá taldi land­læknir vand­séð að þessi opin­bera stefnu­breyt­ing væri í takt við stefnu stjórn­valda í áfengis- og vímu­vörnum til árs­ins 2020. Yfir­mark­mið stefn­unnar er sam­fé­lag sem ein­kenn­ist af heil­brigðu umhverfi þar sem ein­stak­lingum stafi ekki hætta af notkun eða mis­notkun áfengis eða ann­arra vímu­gjafa.

Meðal þeirra aðgerða sem lagðar eru til í stefn­unni, til að ná yfir­mark­mið­inu, væri að tak­marka aðgengi að áfengi og öðrum vímu­gjöfum. Í loka­orðum stefn­unnar segir meðal ann­ars: „Mik­il­vægt er við alla ákvarð­ana­töku stjórn­valda er varðar áfengi, ólög­leg vímu­efni og mis­notkun ávana- og fíkni­lyfja og vefauk­andi stera að lýð­heilsu­sjón­ar­mið séu höfð að leið­ar­ljósi ásamt bestu þekk­ingu á virkum og árang­urs­ríkum aðferðum. Einnig er mik­il­vægt að virkja allt sam­fé­lagið til skiln­ings og sam­stöðu um aðgerðir og við­horf til áfengis og ann­arra vímu­gjafa.“

Brýnt að stíga varlega til jarðar

Samkvæmt emb­ætti land­læknis er afar brýnt að stíga var­lega til jarðar við allar aðgerðir sem lík­legar eru til þess að auka aðgengi að áfengi og eru þar með lík­legar til að hafa áhrif á heilsu og við­horf þjóð­ar­innar. „Gera verður kröfu um að slíkar aðgerðir séu vel rök­studdar og ígrund­aðar. Tillaga sem er til þess fallin að auka áfeng­is­notkun þjóðar og hafa heilsu­fars­leg áhrif á að fara í gegnum lýð­heilsu­mat þar sem lagt er mat á lík­leg bein og óbein áhrif af breyt­ing­unum,“ segir að lokum í umsögn­inni.

Eftir að málið fór í gegnum sam­ráðs­gátt voru þær breyt­ingar gerðar að settur var inn aðlög­un­ar­tími til að finna réttar eða hent­ugar umbúðir og til­greint var að breyt­ingin varð­aði afþrey­ing­ar­laugar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lýðheilsumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár