Fræðslubæklingur lítur dagsins ljós – Liður í aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Nýr fræðslu­bæk­lingur hefur verið gef­inn út sem bein­ist að því að fræða almanna­heilla­fé­lög um góða stjórn­ar­hætti til að koma í veg fyrir að starf­semi þeirra sé mis­notuð.

Stýri­hópur dóms­mála­ráð­herra um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka hefur gefið út nýjan fræðslu­bæk­ling sem bein­ist að því að fræða almanna­heilla­fé­lög um góða stjórn­ar­hætti til að koma í veg fyrir að starf­semi þeirra sé mis­notuð. Frá þessu er greint á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Almanna­heilla­fé­lag er ýmist lög­að­ili eða félaga­sam­tök sem fást aðal­lega við að safna eða ráð­stafa fé í þágu góð­gerða, mennta og mann­úðar, eða fyrir trú­ar­legan, menn­ing­ar­legan eða félags­legan til­gang. Í þessum nýja bæk­lingi segir að slík félög gegni mik­il­vægu sam­fé­lags­legu hlut­verki. Um sé að ræða félög sem taka þátt í hvers konar góð­gerð­ar­starfi sem varða meðal ann­ars hús­næði, sam­fé­lags­lega þjón­ustu, menntun, heil­brigði, íþrótta­starf og menn­ing­ar­starf. Almanna­heilla­fé­lög hér á landi eru meðal ann­ars skráð trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög, sjóðir og stofn­anir sem starfa sam­kvæmt stað­festri skipu­lags­skrá, sjálfs­eign­ar­stofn­anir og önnur almanna­heilla­fé­lög.

Í bæk­lingnum kemur fram að líkt og önnur félög geti almanna­heilla­fé­lög verið mis­notuð með ýmsum hætti. Dæmi um slíka mis­notkun sé til að mynda pen­inga­þvætti, fjár­svik, skatt­svik og fjár­mögnun hryðju­verka. Þessu fræðslu­efni, sem byggir á til­mælum Alþjóð­lega fjár­mála­að­gerð­ar­hóps­ins, er ætlað að efla skiln­ing almanna­heilla­fé­laga á því hvernig þau geta verið mis­notuð til fjár­mögn­unar hryðju­verka og hvernig megi draga úr hættu á mis­notkun.

Gagnsæi í meðferð fjármuna og traust fjárhagslegt eftirlit dregur úr misnotkun

„Þótt að hér sé áhersla lögð á leið­bein­ingar til að draga úr mögu­legri mis­notkun á almanna­heilla­fé­lögum til fjár­mögn­unar hryðju­verka, nýt­ast þær einnig til að draga úr áhættu á ann­ars konar fjár­hags­legri mis­notkun,“ segir í bæk­lingnum.

Margt bendir til þess að almanna­heilla­fé­lög séu helst útsett fyrir mis­notkun af hryðju­verka­sam­tökum þegar þau reka þjón­ustu á svæðum með virka eða mikla hryðju­verkaógn. Almanna­heilla­fé­lög sem veita þjón­ustu á slíkum svæðum virð­ast verða við­kvæm­ari fyrir mis­notkun við áföll á borð við nátt­úru­ham­farir eða sam­bæri­leg áföll þegar eft­ir­spurn eftir fjár­magni almanna­heilla­fé­lag­anna eykst. Skyndi­leg aukin eft­ir­spurn eftir fjár­munum félag­anna eykur álag á starfs­menn, sem kann að leiða til þess að yfir­sýn og fylgni við verk­ferla verður minni.

Þá kemur fram í bæk­lingnum að gagn­sæi í með­ferð fjár­muna og traust fjár­hags­legt eft­ir­lit dragi úr mis­notkun. Almanna­heilla­fé­lög ættu að stuðla að gagn­sæi við með­ferð fjár­muna með því að koma upp verk­lagi svo rekja megi fjár­muni, þjón­ustu, útbúnað og milli­færslur félags­ins til að draga úr hættu á fjár­mögnun hryðju­verka.

Ísland fékk fall­ein­kunn

Kjarn­inn hefur fjallað ítar­lega um slakar varnir Íslend­inga gegn pen­inga­þvætti und­an­farin miss­eri. Í byrjun jan­úar síð­ast­lið­ins greindi Kjarn­inn frá því að í fyrra­vor hefði Ísland fengið aðvör­un. Annað hvort myndu stjórn­völd taka sig til og inn­leiða almenni­legar varnir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka eða landið myndi verða sett á lista alþjóð­legu sam­tak­anna F­in­anci­al Act­ion Ta­sk ­Force (FATF) um ósam­vinnu­þýð ríki.

[links]Ólafur Þór Hauks­son, hér­aðs­sak­sókn­ari, var spurður út í það í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut 3. októ­ber síð­ast­lið­inn hvort aðgerðir Íslend­inga til að koma í veg fyrir að pen­inga­þvætti hefðu verið við­un­andi á und­an­förnum árum. „Þessu eru auðsvar­að,“ svar­aði Ólaf­ur, „nei, það er það ekki.“

Í úttekt sam­tak­anna um stöðu mála á Íslandi, sem var gerð opin­ber í apríl 2018, fengu varnir Íslands gegn pen­inga­þvætti fall­ein­kunn. Íslandi var gefið fram á mitt ár 2019 til að bregð­ast við. Ef úrbætur yrðu ekki nægj­an­leg­ar, og Ísland færi á lista FAT­F ­yfir ósam­vinnu­þýð ríki myndi það, að mati inn­lendra hags­muna­að­ila, leiða til þess að orðstír og trú­verð­ug­leiki Íslands á alþjóða­vett­vangi biði veru­legan hnekki.

Ef Ísland yrði sett á slíkan lista myndi það einnig leiða til þess að gerðar yrðu strang­ari kröfur til lands­ins og aðila sem þar búa um hvers konar fjár­mála­starf­semi, stofnun úti­búa, dótt­ur­fé­laga og umboðs­skrif­stofa og jafn­vel útgáfu aðvar­ana um að við­skipti við íslenska aðila sem gætu falið í sér hættu á pen­inga­þvætti.

Ný lög tóku gildi

Skýrsla FAT­F ýtti veru­lega við málum hér­lend­is. Bregðast þurfti við þessum athuga­semdum hratt, auk þess sem fyrir lá að fjórða ­pen­inga­þvætt­is­til­skip­un ­Evr­ópu­sam­bands­ins yrði tekin upp í samn­ingnum um Evr­ópska efna­hags­svæðið (EES) í des­em­ber 2018.

Starfs­hópur á vegum dóms­mála­ráð­herra var því settur í að semja frum­varp um heild­ar­end­ur­skoðun á lögum um pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Sú vinna skil­aði því að Sig­ríður Á. And­er­sen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, lagði fram frum­varp um ný heild­ar­lög þann 5. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Málið var afgreitt frá efna­hags- og við­skipta­nefnd 12. des­em­ber síð­ast­lið­inn og síð­ari tvær umræður kláraðar dag­inn eftir án ann­arra ræðu­halda.

Frum­varpið varð að lögum með öllum greiddum atkvæðum þing­manna þann sama dag. Þau tóku gildi þann 1. jan­úar 2019.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu sagði að nauð­syn­legt væri að fara í heild­ar­end­ur­skoðun á gild­andi lögum þar sem gera þyrfti veru­legar úrbætur á lög­unum til að upp­fylla þær lág­marks­kröfur sem gerðar eru á alþjóða­vett­vangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár