Nær helmingur fyrirtækja telur mögulegt að fjölga hlutastörfum

Ein leið til að auka þátt­töku þeirra sem eru skerta vinnu­getu er að fjölga hluta­störfum en aðeins 23 pró­sent af öllum störfum á land­inu eru hluta­störf. Alls sögð­ust 49 pró­sent fyr­ir­tækja í nýrri könnun telja það mögu­legt að fjölga hluta­störfum.

Nær helm­ingur fyr­ir­tækja, 45 pró­sent, sem tóku þátt í fyr­ir­tækja­rann­sókn Gallups töldu mögu­legt að fjölga hluta­störfum á vinnu­staðnum þeirra. Í fyrra voru 46.000 ein­stak­lingar utan vinnu­mark­aðar af ýmsum ástæðum. Ein leið til að auka þátt­töku þeirra sem eru með skerta vinnu­getu er að fjölga hluta­störfum en aðeins 23 pró­sent af öllum störfum á land­inu eru hluta­störf. Þetta kemur fram í grein í árs­riti VIRK 2019.

70 prósent fyrirtækja með starfsmann með skerta starfsgetu

Í grein Jónínu Waagfjörð, svið­stjóri þró­unar atvinnu­teng­ingar hjá VIRK, er greint frá fyrstu nið­ur­stöðum rann­sóknar, sem Vel­ferð­ar­ráðu­neytið stýrði, þar sem kann­aðir voru styðj­andi og hindr­andi þættir fyrir atvinnu­þátt­töku ein­stak­linga með skerta starfs­getu út frá sjón­ar­miðum atvinnu­rek­andi. Könnunin var meðal íslenskra fyr­ir­tækja sem fram­kvæmd var af Gallup dag­ana 20. júní til 14. sept­em­ber 2018. Stærð úrtaks­ins var 1313 fyr­ir­tæki en 205 af þeim komu úr upp­lýs­inga­grunni VIRK.

Í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar kemur fram að 69 pró­sent þeirra fyr­ir­tækja, sem tóku þátt í könn­un­inni, höfðu verið með einn eða fleiri starfs­menn með skerta starfs­getu á vinnu­staðnum á síð­ustu 5 árum.

Þá kom fram í könn­un­inni að algeng­asta ástæða þess að vinnu­staðir höfðu ekki ráðið fólk með skerta starfs­getu til vinnu, þar sem eng­inn slíkur starfs­maður hafði starfað á síð­ustu 5 árum, var að ekki væru hentug störf í boði innan vinnu­stað­ar­ins.

Þegar spurt var um reynslu fyr­ir­tækj­anna af því að ráða starfs­fólk með skerta starfs­getu á vinnu­stað­inn en hún var í flestum til­fellum mjög eða frekar góð. Einungis 4 pró­sent sögðu reynsl­una hafa verið frekar eða mjög slæma.

5600 utan vinnumarkaðar vegna veikinda eða tímabundið ófær um að vinna

Árið 2018 voru 249.900 ein­stak­lingar á vinnu­aldri, 16 til 74 ára, á Íslandi en af þeim voru um 46.000 ein­stak­lingar utan vinnu­mark­aðar af ýmsum ástæðum. Rúmlega 36 pró­sent þeirra sem voru utan vinnu­mark­aðar voru fjar­ver­andi vegna örorku eða fötl­unar, eða um 11.000 manns, en 5.600 voru fjar­ver­andi vegna veik­inda eða vegna þess þau voru tíma­bundið ófær um að vinna.[adspot]

Í grein­inni segir að þátt­taka á vinnu­mark­aði sé mis­mun­andi milli hinna ýmsu þjóð­fé­lags­hópa. Atvinnu­þátt­taka ein­stak­linga með skerta starfs­getu er um 61 pró­sent, en um 82 pró­sent hjá ein­stak­lingum sem eru það ekki. Þegar ein­stak­lingar með skerta starfs­getu eru á vinnu­mark­að­inum þá eru þeir mun lík­legri til að vera í hluta­störfum í sam­an­burði við þá sem eru með fulla starfs­getu eða um 19 pró­sents sam­an­borið við 7 pró­sent þeirra sem eru með fulla starfs­getu.

Aðeins 23 prósent af öllum störfum hlutastörf

Rann­sóknir hafa sýnt að það að vera með vinnu er mik­il­vægt fyrir bæði heilsu og vel­ferð ein­stak­lings­ins og því er sam­kvæmt grein­inni mik­il­vægt að auka þátt­töku þessa hóps á vinnu­mark­aði. Fjölgun hluta­starfa á íslenskum vinnu­mark­aði er ein leið til þess að mati grein­ar­höf­undar en sam­kvæmt tölum frá Hag­stof­unni eru ein­ungis 23 pró­sent af öllum störfum í land­inu skil­greind sem hluta­störf.

Þegar ein­stak­lingar með skerta starfs­getu eru á vinnu­mark­að­inum þá eru þeir mun lík­legri til að vera í hluta­störfum í sam­an­burði við þá sem eru með fulla starfs­getu. Í nið­ur­stöðu könn­un­ar­innar kemur fram að 45 pró­sent fyr­ir­tækj­anna töldu mögu­legt að fjölga hluta­störfum á vinnu­staðnum þeirra.

Þá kom fram í könn­un­inni að vinnu­veit­endur með fyrri reynslu af því að ráða ein­stak­linga með skerta starfs­getu voru mark­tækt lík­legri til að vilja ráða aftur slíka starfs­menn á næstu tveimur árum og þeir voru lík­legri til að telja mögu­legt að fjölga hluta­störfum á vinnu­staðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár