Öðru hverju rúmi á einni bráðageðdeild lokað í fjórar vikur

Frá og með deg­in­um í dag verður þjón­usta veru­lega skert á einni af þremur bráða­geð­deildum Landspít­al­ans. Um helm­ingi rúm­anna á deild­inni, 15 af 31 rúmi, verður lokað og munu þau standa lokuð fram yfir versl­un­ar­manna­helgi.

Um helm­ingi rúma á einni af þremur bráða­geð­deildum Land­spít­al­ans verður lokað frá og með deg­inum í dag og munu þau standa lokuð næstu fjórar vik­urnar. Þetta er neyð­ar­ráð­stöfun sem gripið er til vegna skorts á fé og fag­fólki, einkum hjúkr­un­ar­fræð­ingum, á spít­al­anum. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Ekki forsvaranlegt að geðheilbrigðisþjónusta sé skert ár eftir ár

Á deild­inni 33A eru rúm fyrir 31 sjúk­ling en frá og með deg­inum í dag og fram yfir Versl­un­ar­manna helgi verða plássin 16. María Ein­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri geð­viðs Land­spít­al­ann, segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að sjálf­vígs­hætta sé algeng­asta ástæða þess að fólk er lagt inn á deild­ina. María segir jafn­framt að þetta sé lík­lega tíunda sum­arið í röð þar sem fækka þurfi rúmum á deild­inni. „Í fyrra þurftum við að loka í sex til sjö vikur og við höfum fundið það, þegar við höfum opnað öll rúmin aftur, að það er upp­söfnuð þörf, því þá leita gríð­ar­lega margir til okkar,“ segir María.

Anna Gunn­hildur Ólafs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Geð­hjálpar, segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að það sé ekki for­svar­an­legt að geð­heil­brigð­is­þjón­usta sé skert ár eftir ár. Hún segir hana koma fólki með geð­sjúk­dóma afar illa og ekki í neinu sam­ræmi við yfir­lýsta stefnu yfir­valda um mik­il­vægi góðrar geð­heil­brigð­is­þjón­ustu.

Hún bendir á að fólk veik­ist ekk­ert síður á sumrin en á öðrum tíma árs­ins. Ýmsir hátíð­is­dagar og frí geti oft erf­ið­ari en aðrir tímar árs­ins fyrir fólk með geð­rask­anir. Hún ítrekar að stjórn­mála­menn þurfi að standa við lof­orð sín og tryggja stöðugt fjár­magn til geð­heil­brigð­is­mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

geðheilbriðismál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár