Karolina Fund: Vatnið, gríman og geltið

Vatnið, gríman og geltið er saga af þung­lyndi, sjálfs­vígstil­raunum, dulúð vatns­ins, grímunum sem við berum öll og gelt­andi, svörtum hundum. Sagan er byggð á upp­lifun höf­undar á geð­sjúk­dómum.

Silja Björk er 27 ára skúffu­skáld og ötull tals­maður geð­heil­brigð­is­mála. Hún hefur skrifað fjölda greina um mál­efnið, veitt ótal við­töl og var þátt­tak­andi í sjón­varps­þátt­unum Bara geð­veik,sem voru sýndir á Stöð 2 haustið 2016. Hún er einnig einn stofn­andi #éger­ekkitabú sam­fé­lags­miðla­bylt­ing­ar­innar og hélt fyr­ir­lestur á TEDx ráð­stefnu í Hörpu vorið 2014, um upp­lifun mína af sjálfs­vígs­hugs­unum. Fyr­ir­lest­ur­inn er titl­aður „The Taboo of Depression" og má finna á YouTube og er fyr­ir­lest­ur­inn með rúm 140.000 áhorf.

Bókin er sjálfsævi­skeiðs­saga og ákvað Silja Björk að gefa hana sjálf út til að halda sann­leiks­gildum sög­unnar. Markmið söfn­un­ar­innar er að safna fyrir yfir­lestri, rit­stjórn og umbroti bók­ar­innar, útgáfu hennar og litlu fögn­uð­ar­teiti. SIlja Björk byrj­aði að skrifa þessa bók fyrir sex árum, löngu áður en hún vissi að þetta gæti orðið bók. Henni leið mjög illa eftir inn­lögn­ina á geð­deild og þurfti að koma til­finn­ing­unum frá sér og not­aði skrifin til þess.

[adspot]Eftir rúm­lega ár af skrifum ákvað hún að einn dag­inn skyldi þessi bók koma út. Nú þegar hand­ritið er nán­ast til­búið var ekk­ert henni að van­bún­aði að hefja hóp­fjár­mögnun og bíður hún spennt eftir að söfn­unin náist.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Ég er greind með þung­lyndi og kvíða og sum­arið 2013 reyndi ég að fremja sjálfs­víg og end­aði í kjöl­farið inni á geð­deild. Eftir þetta mikla áfall, að reyna sjálfs­víg og vera lögð inn, fannst mér ég þurfa að skrifa frá mér hugs­anir mínar. Ég byrj­aði ein­fald­lega bara á því að setj­ast fyrir framan tölv­una og skrifa án þess að hugsa. Ég greip í skrifin þegar mér leið illa eða þegar ég þurfti að vinna úr ein­hverju, sam­bands­slitum, geð­deild­inni, sjálfs­vígs­hugs­un­unum og hvernig leið mín lá þangað. Það var ekki fyrr en ári eftir að ég hafði skrifað fyrstu setn­ing­arnar að ég las yfir text­ann almenni­lega og hugs­aði með mér að þetta gæti kannski orðið að bók. Síðan þá hef ég unnið í hand­rit­inu, síð­ustu sex ár eða svo, bætt við, breytt og tekið út og ég held að þessi langi tími með hand­rit­inu sé engin til­viljun. Ég hef þroskast mikið og lært á þessum tíma, ég hef aðra sýn á atburð­ina og það gefur mér vald á text­anum sem ég hafði kannski ekki fyrst eftir geð­deild­ina.

Verk­efnið er bók. Bókin fjallar um eins og áður segir, geð­sjúk­dóma og afleið­ingar sjálfs­vígstil­rauna. Þetta er sagan mín, hún er öll sönn en ég leyfi mér að skreyta frá­sögn­ina á ljóð­rænan hátt. Vatnið, gríman og geltið er því ekki þurr ævi­saga og upp­taln­ing á sjúk­dóms­ein­kennum heldur fágæt inn­sýn í hug­ar­heim veikrar konu á erf­iðum tímum. Ég tala um allt og ekk­ert, gjör­sam­lega hisp­urs­laust og í bók­inni leyn­ast ýmis leynd­ar­mál sem ég hef engum sagt. Tit­ill­inn er vísun í þrjár meg­in­mynd­lík­ingar sem ég vinn með í text­anum, vatnið táknar eilífa hringrás lífs­ins, von­ina og end­ur­fæð­ingu. Grím­urnar vísa í þær grímur sem við berum sem sjúk­lingar, grímur sem við notum til að fela veik­indi okkar og van­líðan og geltið er vísun í gam­al­gróna mynd­lík­ingu þess að þung­lyndið sé eins og að eiga svartan hund, sem eltir þig um allt og ásækir þig. Bókin er þannig ljóð­ræn og fag­ur­fræði­lega frá­brugðin hefð­bundnum ævi­sögu­frá­sögnum.

Margar hendur vinna létt verk og ég hefði aldrei getað staðið að þessu verk­efni ef ekki væri fyrir stuðn­ing frá fjöl­skyldu minni og vinum sem hafa lesið hand­ritið spjald­anna á milli í gegnum árin og komið með góða punkta. Það hefur ekki verið auð­velt, enda eru kaflar um fjöl­skyld­una mína og vin­konur mínar, og það er örugg­lega ekki auð­velt að lesa svona um sjálfan sig. Bókin hefur hjálpað okkur í sam­ein­ingu að takast á við áfallið og til­finn­ingar okkar og ég vona að það verði inn­blástur fyrir les­endur mína. Ég vil líka þakka Ísak, kærast­anum mínum og teym­inu mínu, þeim Frank og Sillu sem hafa hjálpað mér að setja upp sam­fé­lags­miðla­her­ferð fyrir Karolina Fund. Það koma kynn­ing­ar­mynd­bönd á næstu vikum sem verður spenn­andi að fylgj­ast með, þar sem ég ræði við þrjá þekkta geð­sjúk­linga um geð­heil­brigð­is­mál.

Ég vil síðan þakka stuðn­ing ykkar allra sem styrkið verk­efnið, það er ómet­an­legt að hafa tæki­færi til þess að láta drauma sína ræt­ast á þennan hátt og ég hlakka til að geta boðið í útgáfu­teiti og áritað bæk­urnar fyrir ykkur!“

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

geðheilbriðismál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár