Apple kynnir uppfærslur

Atli Stefán Yngvason fjallar um nýj­ustu upp­færslur Apple en þó svo að end­an­leg sölu­vara séu tækin frá fyr­ir­tæk­inu eða þjón­usta sem tækin nýta, þá eru stýri­kerfin mik­ill áhrifa­þáttur í kaupá­kvörðun við­skipta­vina Apple.

Apple mun hefja tækni­ráð­stefn­una WWDC í dag með lyk­il­ræðu um hvað sé í vændum í stýri­kerfum Apple. World Wide Developers Conference tækni­ráð­stefnan hóf göngu sína árið 1987 í Santa Clara í Kali­forníu og hefur hún verið haldin árlega síðan. Ráð­stefnan leiðir saman Apple og þau sem þróa hug­búnað fyrir vörur og þjón­ustu Apple. Ráð­stefnan er nokkrir dagar, en lyk­il­ræðan fyrsta dag­inn er þar sem feit­ustu bit­arnir eru kynntir.

Stýrikerfin skipta máli

Þó svo að end­an­leg sölu­vara séu tækin frá Apple eða þjón­usta sem tækin nýta, þá eru stýri­kerfin mik­ill áhrifa­þáttur í kaupá­kvörðun við­skipta­vina Apple. Apple fram­leiðir í dag stýri­kerfin macOS, iOS, WatchOS og tvOS. Vin­sælasta stýri­kerfið þeirra er án efa iOS sem er notað af iPhone og iPad snjall­tækj­unum. Á kynn­ingu Apple í vor kom fram að iOS stýri­kerfið sé í notkun á millj­arð tækja (billion pockets) dag hvern.

Hvað er í vændum?

iOS 13

Næsta útgáfan af iOS er óhappa­talan 13 og er margt bita­stætt búið að leka. iOS13 verður í boði fyrir bæði iPhone og iPad. Apple er alltaf dug­legt að upp­færa eldri tæki og talið er að iPhone 6S og nýrri fái iOS13. iPad mini 3 og iPad Air 2 og nýrri fá einnig iOS13.

Dekkra viðmót fyrir iPhone

Stýri­kerfið MacOS fékk dökkt við­mót á síð­asta ári með Mojave upp­færsl­unni. Frá því hefur „dark mode” farið um eins og eldur í sinu og nú er komið að iPhone og iPad. Allt sem áður var hvítt í stýri­kerf­inu getur nú verið dökkt, sem sumir vilja meina að sé betra fyrir augun. Ekki nóg með það, heldur getur það náð niður raf­magns­þörf ef sím­inn er með OLED skjár (iPhone X og iPhone XS) því þeir skjáir ná að slökkva á svörtum dílum ólíkt LCD skjám.

Hljóðstyrkur færist til hliðar

Þegar það er hækkað og lækkað, þá kemur stór flötur á miðjan skjá­inn til að sýna styrk hljóðs og blokkerar það er á skjánum. Nú loks­ins, eftir mörg ár af því að betri iOS öppin for­riti sér aðrar leiðir fyrir hljóð­styrk (Twitter til dæmis), ætlar Apple að færa hljóð­styrk­inn til hliðar og rétt svo að minnka flöt­inn.

Finndu ... eitthvað?

Find my Phone eig­in­leik­inn fer loks­ins að tala um að finna aðra hluti, sem hann hefur reyndar fundið lengi vel. Find my Phone og Find my fri­ends munu renna saman í eitt, og bjóða upp á Find network eig­in­leika sem opnar á að stað­setja tæki þó svo það sé sam­bands­laus.

Betri svefn

Bedtime eig­in­leik­inn í Clock app­inu á að fá tals­verða upp­færslu og á iPhone að fá eitt­hvað sem heitir sleep mode eða svefn­still­ingu. Svefn­still­ingin á að kveikja á Do not dist­urb, slökkva á öllum til­kynn­ingum og dimma skjáin þegar hann er læstur.

[adspot]

Nýtt útlit á flest Apple öpp

Mail, Messages, Rem­ind­ers, Maps og Health munu öll fá ný við­mót og slatta af nýj­ungum. Messages fá prófíl-mynd, Maps fer að nýta mest not­aða staði betur, verk í Rem­ind­ers verður raðað betri máta, og Health fer að fylgj­ast með tíð­ar­hring og lyfja­töku.

iPad verður meiri tölva

Sagan segir að iPad hafi átt að fá stóra upp­færslu í fyrra en átti að koma spjald­tölv­unni nær því að vera far­tölva, en hafi verið frestað til að ein­blína á afköst og villur í iOS12. En núna á veru­lega að upp­færa iPad með nýju við­móti, ein­hvers konar glugga-við­móti, stuðn­ingi við geymslu­pláss og tölvu­mýs.

Meira heilbrigði í WatchOS 6

Apple Watch snjallúrið mun einnig fá ást og fær nýja útgáfu af WatchOS. Úrið fær sína eigin app-verslun, og ný öpp frá Apple: Voice Memos, Calculator og Books. Health appið er svo með nýja eig­in­leika sem virka í úrinu fyrir tíðir og áminn­ingar fyrir að taka lyf. Það’ verður nokkuð af nýjum skífum fyrir úrið: Gradient, California dial, X-Large og ný Solar-skífa. Skíf­urnar fá líka nýja eig­in­leika (complications) til að nýta sér: staðan á hljóð­bókum, staða á raf­hlöðu heyrna­tækja, umhverf­isi­há­vaða­mæl­ing og regn­fall.

MacOS ekki gleymt

MacOS fær fleiri Marzipan-öpp, sem eru hönnuð til að virka á iPhone, iPad og Mac-tölvum. Screen time, Siri shortcuts, Rem­ind­ers og Book öppin af iPhone munu koma yfir á Mac. Þetta er þróun sem mun halda áfram næstu árin, þar sem mest af hug­bún­að­ar­þróun mun verða fyrir iPhone og iPad. Með þessu móti verður hægt að samnýta tals­vert af vinn­unni við að smíða öppin.

Verða einhver Apple-tæki kynnt?

Það er ekki úr mynd­inni að ein­hver tæki verði kynnt. Apple hefur oft kynnt tæki á WWDC, en þá aðal­lega Mac og iPad-tölvur. Frægasta kynn­ingin er reyndar iPhone 4 sem þurfti að flýta vegna þess að starfs­maður týndi frum­gerð af sím­anum á bar sem end­aði höndum fjöl­miðla. Talið er að Apple muni svipta hul­unni af Mac pro borð­tölv­unni sem hefur lengi verið í þróun. Mac pro eru mjög öfl­ugar tölvur með fyr­ir­tæki í huga eins og kvik­mynda­fram­leið­endur, tölvu­leikja­fram­leið­endur eða AR/VR-efn­is­fram­leið­endur. Samhliða því verður skjár kynntur, fyrir Mac pro tölvur (og í þeim verð­flokki). Skjárinn er tal­inn vera 31,6 tommur og með 6K upp­lausn. Hann verður EKKI ódýr.

Heimildir:

https://9to5mac.com/2019/05/28/ios-13-screenshots-dark-mode-more/

https://9to5mac.com/2019/05/31/wwdc-2019-roundup/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár