Fyrsta konan af erlendum uppruna tekur við embætti varaformanns Eflingar

Agnieszka Ewa Ziółkowska hefur tekið við emb­ætti vara­for­manns Eflingar. For­mað­ur­inn segir tíma­bært að stétt­ar­fé­lög end­ur­spegli sinn félags­skap.

Sólveig Anna Jónsdóttir og Agnieszka Ewa Ziółkowska
Sólveig Anna Jóns­dóttir og Agnieszka Ewa Ziółkowska Mynd: Efling

Agnieszka Ewa Ziółkowska hefur tekið við emb­ætti vara­for­manns Eflingar en þetta er í fyrsta sinn sem kona af erlendum upp­runa gegnir þessu emb­ætti. Frá þessu greinir Efling á Facebook-síðu sinni í dag.

„Við erum ótrú­lega glöð að bjóða vel­komna í emb­ætti nýjan vara­for­mann Eflingar, Agnieszku Ewu Ziółkowska! Hún hefur verið Efl­ing­ar­með­limur í tólf ár, fyrst þegar hún starf­aði við þrif hjá ISS og svo sem strætó­bíl­stjóri hjá Almenn­ings­vögnum Kynn­is­ferða. Þar var hún trún­að­ar­maður í fjögur ár. Starfs­fólk þar er nú með best skipu­lögðu hópum félags­manna stétt­ar­fé­lags­ins,“ segir í færsl­unni.

Í frétt Eflingar kemur fram að Agnieszka hafi komið á starfs­manna­fund hjá félag­inu í morgun og heilsað upp á starfs­fólk.

Söguleg stund

Agniezska kemur frá Póllandi og hefur búið og starfað á Íslandi síð­ast­liðin 12 ár, fyrst við þrif hjá ISS og svo sem strætó­bíl­stjóri hjá Almenn­ings­vögnum Kynn­is­ferða. Þar var hún trún­að­ar­maður í fjögur ár og segir í frétt Eflingar að starfs­fólk þar sé nú með best skipu­lögðu hópum félags­manna stétt­ar­fé­lags­ins.

Sólveig Anna segir þetta vera sögu­lega stund, þegar kona af erlendum upp­runa tekur við vara­for­manns­emb­ætti í íslensku stétt­ar­fé­lagi, en helm­ingur félags­manna Eflingar er aðflutt verka­fólk. „Það er tíma­bært að stétt­ar­fé­lög end­ur­spegli sinn félags­skap,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár