Plast sem má endurvinna endalaust

Mögulega er til leið sem gerir okkur kleift að end­ur­vinna allt plast, enda­laust.

Þó plast sé nei­kvætt í þeim skiln­ingi að það safn­ast upp í umhverf­inu okkar hefur það góð áhrif á öðrum víg­stöðvum. Sem dæmi leiðir plast­pökkun mat­væla til lengri end­ing­ar­tíma sem þýðir minni mat­ar­sóun og þar af leið­andi minni orku­notkun í að fram­leiða vöru sem verður aldrei nýtt.

Matvæli sem eru pökkuð í plast eru létt til flutn­inga sam­an­borið við t.d. gler, sem á sama hátt þýðir minni orku sem fer í að flytja mat­væli milli landa. En allt þetta einnota plast sem við notum í þessum til­gangi safn­ast svo upp eftir að hafa þjónað til­gangi sínum.

Til að sefa umhverfisk­víð­ann innra með okkur getum við end­ur­unnið allt þetta einnota plast sem fellur til. Það er vissu­lega betra en að setja plastið beint í ruslið, en leysir þó ekki vand­ann. Einnota plast er enn fram­leitt í allt of miklu magni vegna þess að það er notað í allt of miklu magni.

Þegar plast er end­ur­unnið er yfir­leitt ekki hægt að nýta nema 30% af því til að búa til nýjan hlut úr plasti. Líftími plast­s­ins er líka stuttur í þeim skiln­ingi að það er ekki hægt að end­ur­vinna það oft. Til að fá sem mest útúr jákvæðum eig­in­leikum plast­s­ins væri því best að geta end­ur­unnið plastið 100% og enda­laust.

Plast er sam­sett úr sam­flétt­uðum kol­vetniskeðjum. Til að gefa plast­inu svo ákveðna eig­in­leika eins og sveigj­an­leika eða lit eru auka­hópar hengdir á kol­vetn­is­sam­eind­irnar.

Ástæða þess að við nýtum svo lítið hlut­fall plast­s­ins við end­ur­vinnslu er vegna allra þeirra auka sam­einda sem eru hengd á keðj­urnar. Þær eru mis­mun­andi og því erfitt að losa sam­eind­irnar frá kol­vetn­inu.

Rann­sókn­ar­hópur við Lawrence Berkeley National Laboratory birti nýlega rann­sókn í Nature þar sem þau lýsa smíði plast­ein­inga sem auð­velt er að með­höndla með til­liti til end­ur­vinnslu. Hug­myndin er að allir þessir auka­hópar sem gefa plast­inu ákveðna eig­in­leika hanga á kol­vetniskeðj­unni með efna­tengjum sem er auð­veld­ara að aftengja.

Efna­tengin eru þannig að keðj­urnar losna auð­veld­lega við auka­hópana og í sundur þegar plastið er lagt í sýru. Öfugt við önnur plast­efni sem notuð eru í heim­inum er auð­velt að losa kol­vetniskeðj­urnar við auka­hópana og þegar það hefur verið gert er auð­velt að móta keðj­urnar með nýjum auka­hópum til að búa til nýja gerð af plasti.

Mögulega verður hægt að end­ur­vinna allt plast sem búið er til með þessum hætti, enda­laust. Ef það verður að veru­leika getum við notið þeirra jákvæðu eig­in­leika sem plastið gefur okkur, minni mat­ar­sóun, létt­ari vörur o.s.fr. án þess að plastið safn­ist upp í umhverf­inu okkar.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatinn.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftlagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár