Malasískur auðkýfingur kaupir meirihluta í Icelandair Hotels

Dótt­ur­fé­lag mala­síska fjár­fest­inga­fé­lags­ins Berjaya Corporati­on er við það að ganga frá kaup­samn­ingi á 80 pró­sent hlut í Icelanda­ir Hotels, sam­kvæmt heim­ildum Við­skipta­Mogg­ans. Félagið var stofnað af mala­síska auð­kýf­ingnum Vincent Tan.

Icelandairgroup vinnur nú að loka­drögum að sölu­samn­ingi á 80 pró­sent hlut í Icelandair Hotels, dótt­ur­fé­lagi Icelandair Group. Kaup­and­inn er dótt­ur­fé­lag mala­síska fjár­fest­inga­fé­lags­ins Berjaya Corporation. Frá þessu er greint í Við­skipta­Mogg­anum í dag.

Um tvö þúsund hótelherbergi

[links]Icelandair Group til­kynnti í maí á síð­asta ári að félagið hefði ákveðið selja Icelandair Hotels og fast­eignir sem til­heyra hót­el­rekstri, en sam­tals rekur fyr­ir­tækið 13 hót­el. Þá rekur fyr­ir­tækið einnig tíu sum­ar­hótel undir merkjum Eddu hót­ela um allt land. Um er að ræða alls 1.937 her­bergi á land­inu öllu, 876 í Reykja­vík og 450 her­bergi á lands­byggð­inni í rekstri allt árið en þar að auki 611 Eddu hót­el­her­bergi í sum­ar­rekstri. Samkvæmt heim­ildum Við­skipta­Mogg­ans hugð­ist Icelandair Group selja félagið í heild en mun nú halda eftir fimmt­ungs­hlut af því.

Stærsta fyrirtæki í Malasíu

Berjaya Corporation, sem var stofnuð af millj­arða­mær­ingnum Vincent Tan en hann er einnig eig­anda breska knatt­spyrnu­fé­lags­ins Cardiff City. Berjaya Corporation sem er eitt stærsta fyr­ir­tæki í Malasíu. Fjár­festir það meðal ann­ars í lottó- og fjár­hættu­spila­starf­semi, hót­elum og öðrum fast­eigna­verk­efnum, fjar­skipta­þjón­ustu, mat­væla- og drykkj­ar­fram­leið­endum, dreif­ingar­fyr­ir­tækjum, bíla­sölum og hinum ýmsu fram­leiðslu­fyr­ir­tækjum, svo eitt­hvað sé nefnt.

Í febr­úar síð­ast­liðnum var greint frá því að dótt­ur­fé­lag Berjaya Corporation, Berjaya Reykja­vik Invest­ment, væri að ganga frá kaupum á fast­eign­inni að Geirs­götu 11 á Miðbakka við gömlu höfn­ina í Reykja­vík. Selj­endur eru félögin Fiski­tangi og Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur sem eru að stærstum hluta í eigu Guð­mundar Krist­jáns­sonar, útgerð­ar­manns og for­stjóra HB Granda.

Útkoman verri en búist var við

Icelandair tap­aði 6,7 millj­örðum á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins, eða sem nemur rúm­lega 55 millj­ónum Banda­ríkja­dala. Útkoman var lak­ari en spár grein­enda á mark­aði höfðu gert ráð fyr­ir. Á síð­ustu tveimur árs­fjórð­ungum hefur félagið tapað 13,5 millj­örðum króna. Bogi Nils Boga­son, for­stjóri félags­ins, sagði að rekstr­ar­um­hverfið flug­fé­lags­ins hefði verið erfitt und­an­farin miss­eri, ekki síst vegna þess að sam­keppn­is­að­ilar hafi verið selja far­miða á ósjálf­bærum verð­u­m.

Í til­kynn­ingu sem Icelandair sendi til kaup­hall­ar, vegna upp­gjörs­ins, segir að þrátt fyrir erf­iða stöðu séu lang­tíma­horfur félags­ins og íslenskrar ferða­þjón­ustu góð­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár