Um 2 þúsund hótelherbergi Icelandair til sölu

Icelandair Group hefur ákveðið að setja hótel sín í sölu­ferli. Um er að ræða 1.937 hót­el­her­bergi. 876 í Reykja­vík og 450 á lands­byggð­inni.

Icelandair Group hefur ákveðið að selja Icelandair Hotels og fast­eignir sem til­heyra hót­el­rekstri, en sam­tals rekur fyr­ir­tækið 13 hótel. Þá rekur fyr­ir­tækið einnig tíu sum­ar­hótel undir merkjum Eddu hót­ela um allt land.

Í til­kynn­ingu frá félag­inu segir Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelandair Group, að fyr­ir­tækið sé nú að stíga skref í sam­ræmi við nýtt skipu­lag, sem kynnt var í upp­hafi árs­ins. „Við kynntum nýtt skipu­lag í upp­hafi árs­ins þar sem við skiptum starf­semi félags­ins í tvennt; ann­ars vegar alþjóða­flug­starf­semi og hins vegar fjár­fest­ingar í flug­starf­semi og ferða­þjón­ustu. Við stígum nú næsta skref og höfum ákveðið að hefja ferli sem miðar að því að selja meiri­hluta í hót­el­fé­lagi okkar; Icelandair Hotels. Við horfum með sama hætti á þær fast­eignir sem til­heyra þessum rekstri. Icelandair Hotels er í fremstu röð á Íslandi, hefur sterka mark­aðs­stöðu, er vel rekið og með frá­bært starfs­fólk. Við höfum fundið fyrir miklum áhuga á félag­inu að und­an­förnu, bæði frá inn­lendum og erlendum aðilum. Markmið okkar með þess­ari breyt­ingu er að skerpa enn frekar á kjarna­starf­semi okkar, alþjóða­flug­starf­sem­inni. Þar ætlum við að fjár­festa í frek­ari vexti félags­ins, í staf­rænum lausnum, auk­inni sjálf­virkni og nýjum flug­vélum,“ segir Björgólfur.

Gengi hluta­bréfa Icelandair Group hefur fallið nokkuð að und­an­förnu, eða um 14,1 pró­sent það sem af er ári. Mark­aðsvirði félags­ins er nú 65 millj­arðar en mest hefur það verið um 180 millj­arðar á und­an­förnum fimm árum.

Hótelin þrettán sem Icelandair Group reka eru Reykja­vík Natura, Reykja­vík Marina, Hilton Reykja­vík Nordica, Canopy Reykja­vik | City Centre, Reykja­vík Konsúlat Hótel og Hótel Alda. Á lands­byggð­inni eru Icelandair hótel á Akureyri, við Mývatn og á Héraði. Einnig eru sér­leyf­is­hótel á Flúðum, Klaustri, Hamri og í Vík.

Um er að ræða alls 1.937 her­bergi á land­inu öllu, 876 í Reykja­vík og 450 her­bergi á lands­byggð­inni í rekstri allt árið en þar að auki 611 Eddu hót­el­her­bergi í sum­ar­rekstri. Þá stefna Icelandair Hotels að opnun nýs hót­els við Aust­ur­völl í sam­starfi við Hilton árið 2019.

Samhliða ákvörðun um að setja Icelandair Hotels í sölu­ferli hefur verið ákveðið að Iceland Travel og VITA verði hluti af kjarna­starf­semi Icelandair Group. Til­gangur þess er að styrkja enn frekar sölu­starf­semi á pakka­ferðum og tengdum þjón­ustu­þáttum innan Icelandair Group.

Hagnaður Icelandair Group í fyrra nam um 37 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um fjórum millj­örðum króna. Fyr­ir­tækið var með eigið fé upp á tæp­lega 600 millj­ónir Banda­ríkja­dala í lok árs, eða sem nemur um 60 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár