Útkoman hjá Icelandair verri en búist var við

Und­an­farnir mán­uðir hafa verið erf­iðir fyrir íslenskan flug­iðnað.

Icelandair tap­aði 6,7 millj­örðum á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins, eða sem nemur rúm­lega 55 millj­ónum Banda­ríkja­dala.

Útkoman var lak­ari en spár grein­enda á mark­aði höfðu gert ráð fyrir. Grein­endur Lands­bank­ans og Arion banka höfðu gert ráð fyrir tapi upp á um 52 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 6,3 millj­arða tapi, en hjá IFS hafði verið gert ráð fyrir 5,5 millj­arða tapi.

Á síð­ustu tveimur árs­fjórð­ungum hefur félagið tapað 13,5 millj­örðum króna, og segir Bogi Nils Bogason, for­stjóri félags­ins, að rekstr­ar­um­hverfið hafi verið erfitt und­an­farin miss­eri, ekki síst vegna þess að sam­keppn­is­að­ilar hafi verið selja far­miða á ósjálf­bærum verðum.

Er þar vafa­lítið átt við WOW air, sem er farið í gjald­þrot, en mark­aðs­hlut­deild þess var rúm­lega 35 pró­sent í ferðum til og frá Íslandi þegar mest var.

Í til­kynn­ingu sem Icelandair sendi til kaup­hallar, vegna upp­gjörs­ins, í gær, segir að þrátt fyrir erf­iða stöðu séu lang­tíma­horfur félags­ins og íslenskrar ferða­þjón­ustu góðar.

Kyrr­setn­ing á 737 Max vélum Boeing, eftir tvö mann­skæð flug­slys í Indónesíu og Eþíópíu, þar sem sam­tals 346 létu lífið, er að reyn­ast Icelandair dýr. Félagið þarf að skera niður tvö pró­sent af sæta­fram­boði sínu í sumar, vegna þessa, en þrjár vélar félags­ins eru kyrr­settar vegna alþjóð­legs banns við notkun á vél­unum.

Heild­ar­tekjur Icelandair námu 248,6 millj­ónum Banda­ríkja­dala á fyrsta árs­fjórð­ungi, eða sem rúm­lega 30 millj­örðum króna, og lækk­uðu tekj­urnar um sjö pró­sent á milli ára. Eig­in­fjár­hlut­fallið lækk­aði um níu pró­sentu­stig á árs­fjórð­ungn­um, fór úr 32 pró­sent í lok árs­ins í 23 pró­sent.

Árétting: Upp­haf­lega stóð að Capacent hafi spáð, en IFS er hið rétta. Fréttin hefur verið upp­færð í sam­ræmi við það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár