Sjö prósent tekjusamdráttur og 6,7 milljarða króna tap

Síðustu mán­uðir hafa verið Icelandair erf­iðir, en for­stjór­inn seg­ist bjart­sýnn á stöðu félags­ins til fram­tíðar litið.

Heild­ar­tekjur Icelandair námu 248,6 millj­ónum Banda­ríkja­dala á fyrsta árs­fjórð­ungi, eða sem rúm­lega 30 millj­örðum króna, og lækk­uðu tekj­urnar um sjö pró­sent á milli ára. Eig­in­fjár­hlut­fallið lækk­aði um níu pró­sentu­stig á árs­fjórð­ungnum, fór úr 32 pró­sent í lok árs­ins í 23 pró­sent.

Tap félags­ins á árs­fjórð­ungnum var 55,1 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 6,7 millj­örðum króna. Á síð­ustu sex mán­uðum hefur félagið því tapað 13,5 millj­örðum króna, en tapið á síð­asta fjórð­ungi árs­ins í fyrra nam 6,8 millj­örðum króna.

Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair, segir í til­kynn­ingu að krefj­andi aðstæður hafi verið á mörk­uðum, ekki síst vegna sam­keppni við félög sem hafi verið ósjálf­bær verð á far­miðum. Líklegt er að hann eigi þar við WOW air, en eins og kunn­ugt er þá er félagið farið á haus­inn og er í slita­með­ferð þessi miss­erin. „Farþegum félags­ins til Íslands fjölg­aði um 13% á fyrsta árs­fjórð­ungi, far­þegum frá Íslandi um 10% en far­þegum milli Evrópu og N-Ameríku fækk­aði um 2%. Rekstur félags­ins var hins vegar krefj­andi eins og við bjugg­umst við og var rekstr­ar­nið­ur­staðan í takt við áætl­anir. Þróun far­gjalda var nei­kvæð milli ára, sem skýrist meðal ann­ars af mik­illi sam­keppni við flug­rek­endur sem boðið hafa upp á ósjálf­bær far­gjöld. Jafn­framt var áfram­hald­andi þrýst­ingur á far­gjöld milli Evrópu og N-Ameríku. Inn­leið­ingar- og þjálf­un­ar­kostn­aður vegna sex nýrra flug­véla sem félagið hafði gert ráð fyrir að taka í notkun hafði nei­kvæð áhrif auk þess sem ein­skiptis­kostn­aður féll til vegna kyrr­setn­ingar B737 MAX flug­véla,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Bogi Nils ítrekar enn fremur, að lang­tíma­horfur félags­ins - og íslenskrar ferða­þjón­ustu - séu góðar. „Lang­tíma­horfur félags­ins eru góðar og með sam­stilltu átaki um mótun og inn­leið­ingu heild­stæðrar stefnu, er fram­tíð íslenskrar ferða­þjón­ustu björt. Það er ánægju­legt að reynslu­mik­ill alþjóð­legur fjár­festir deili þess­ari fram­tíð­ar­sýn með okkur en kaup banda­ríska fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins PAR Capital Mana­gement á 11,5% hlut í félag­inu fyrir um 47 millj­ónir USD (rúma 5,6 millj­arða) voru kynnt í apríl sl. Fjár­fest­ingin mun efla félagið enn frekar og styrkja sam­keppn­is­hæfni þess til fram­tíðar.“

Mark­aða­svirði Icelandair var 43,5 millj­arðar í lok dags, en eigið fé félags­ins var tæp­lega 52 millj­arðar í lok mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár