Það helsta hingað til: Afsögn Sigríðar Á. Andersen

Kjarninn tók saman helstu frétta­mál íslensks sam­fé­lags á fyrstu mán­uðum árs­ins 2019. Eitt mál sem stendur þar upp úr er afsögn dóms­mála­ráð­herra og dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í Lands­rétt­ar­mál­inu.

Sigríður Á. Andersen þegar hún yfirgaf sinn síðasta ríkisráðsfund. Að minnsta kosti í bili.
Sigríður Á. Andersen þegar hún yfir­gaf sinn síð­asta rík­is­ráðs­fund. Að minnsta kosti í bili. Mynd: Bára Huld Beck

Hvað?

„Ég mun ekki gera það. Ég hef ekki ástæðu til þess.“ Þetta sagði Sigríður Á. Andersen, þá dóms­mála­ráð­herra,Í hádeg­is­fréttum RÚV þriðju­dag­inn 12. mars 2019 þegar hún var spurð hvort hún myndi segja af sér vegna dóms Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í Lands­rétt­ar­mál­inu sem birtur hafði verið um morg­un­inn.

[links]Rúmum sól­ar­hring síðar, klukkan 13:49 síð­degis mið­viku­dag 13. mars, var boðað til blaða­manna­fundar í dóms­mála­ráðu­neyti sem skyldi hefj­ast 41 mín­útu síðar. Á þeim fundi lýsti Sigríður afstöðu sinni til Lands­rétt­ar­máls­ins í löngu máli, sagði að nið­ur­staðan hefði komið henni „veru­lega á óvart“ og að hún ætl­aði að stíga til hliðar sem ráð­herra á meðan að verið væri að fjalla meira um Lands­rétt­ar­málið og vinna úr þeirri stöðu sem upp var komin. Hún hefði skynjað að hennar per­sóna kynni að hafa trufl­andi áhrif á frek­ari með­ferð máls­ins.

Það er hins vegar ekki hægt að stíga til hliðar tíma­bundið sem ráð­herra. Stjórn­skipun lands­ins gerir ein­fald­lega ekki ráð fyrir því. Sigríður var að segja af sér emb­ætti.

Af hverju?

Dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins í Lands­rétt­ar­mál­inu fól í sér áfell­is­dóm fyrir bæði Sigríði og Alþingi fyrir það hvernig haldið var á skipan 15 dóm­ara við Lands­rétt í byrjun júní 2017. Gagnvart Sigríði fyrir að hafa brotið stjórn­sýslu­lög með því að breyta list­anum um til­nefnda dóm­ara frá þeim lista sem hæf­is­nefnd hafði skilað af sér, og fært fjóra dóm­ara af þeim lista en sett aðra fjóra inn á hann án þess að rann­saka og rök­styðja þá ákvörðun með nægj­an­legum hætti. Alþingi fyrir að hafa kosið um skipan dóm­ar­anna allra í einu, í stað þess að kjósa um hvern fyrir sig.

Nið­ur­staðan var skýr. Í dómnum var fall­ist á það dóm­ar­arnir fjórir sem bætt var á list­ann væru ólög­lega skip­aðir og gætu þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, þar sem ólög­lega skip­aðir dóm­arar gætu ekki tryggt rétt­láta máls­með­ferð. Ferlið sem beitt var við skipun dóm­ar­anna við Lands­rétt hafi orðið „til þess að valda skaða á því trausti sem dóm­stóll í lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi þarf að vekja hjá almenn­ingi og braut í bága við það grund­vall­ar­at­riði að dóm­stóll sé lög­leg­ur, eina af meg­in­reglum rétt­ar­rík­is­ins.“

Hver var niðurstaðan?

Kjarninn greindi frá því 13. mars að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefði lagt lín­urnar um að Sigríður þyrfti að segja af sér. Hún kom sjón­ar­miðum sín­um, um að dóms­mála­ráð­herra yrði að axla ábyrgð á þeirri óvissu sem upp væri komin í dóms­kerf­inu eftir dóm­inn skýrt á fram­færi við for­menn sam­starfs­flokk­anna í rík­is­stjórn, Sig­urð Inga Jóhanns­son, for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á fundi for­mann­anna að morgni 13. mars.

Eftir sem áður var ekki end­an­lega ljóst, að Sig­ríður Á. Andersen myndi segja af sér, fyrr en hún gerði það sjálf á blaða­manna­fundi í dóms­mála­ráðu­neyt­inu, sem hófst klukkan 14:30 þann sama dag.

Á þeim tíma­punkti - það er þegar blaða­manna­fund­ur­inn fór fram - kom til greina að slíta rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu ef Sig­ríður myndi ekki segja af sér og axla ábyrgð á þeirri stöðu sem upp væri komin í starfi Lands­rétt­ar, eftir nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans.

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir tók tíma­bundið við sem dóms­mála­ráð­herra en sinnir áfram fyrri ráð­herra­störfum líka. Búist er við því að nýjum ráð­herra úr röðum Sjálf­stæð­is­flokks­ins verði bætt við rík­is­stjórn­ina á næstu vikum.

Þann 9. apríl síð­ast­lið­inn ákvað íslenska ríkið að óska eftir end­ur­skoðun yfir­deildar Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu á dómnum sem féll 12. mars. Lík­legt er að nið­ur­staða um það hvort yfir­deildin taki dóm­inn til end­ur­skoð­unar fáist innan fárra mán­aða.

Í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sagði for­sæt­is­ráð­herra að ekki væri hafið yfir allan vafa hvort að nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins ætti bara við um þá fjóra dóm­ara sem voru skip­aðir ólög­lega af þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, eða alla dóm­ara við rétt­inn. Það þyrfti meiri skýr­leika í nið­ur­stöð­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

þaðhelsta2019

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár