Landspítalinn tekur þátt í samnorrænu lyfjaútboði

Land­spít­al­inn vill auka afhend­ingar­ör­yggi lyfja með sam­nor­rænu lyfja­út­boði.

Land­spít­al­inn mun taka þátt í fyrsta sam­nor­ræna lyfja­út­boð­inu ásamt Lyfjainn­kaupa­stofnun Dan­merkur og Lyfjainn­kaupa­stofn­unar Noregs. Útboðs­gögnin hafa nú verið birt, en alls er þar óskað eftir til­boðum í sex lyf: Met­hotrexat, ana­grelid, mer­openem, ond­an­setron, gentamicin og paracetamol. Frá þessu er greint á vef Land­spít­al­ans.

Farið er í sam­eig­in­legt útboð til þess að auka afhend­ingar­ör­yggi lífs­nauð­syn­legra lyfja sem mikil verð­sam­keppni ríkir um.

Í frétt Land­pít­al­ans segir að und­an­farið hafi skortur á eldri lyfjum verið vax­andi vanda­mál. Sá lyfja­skortur sé ein af ástæðum þess að löndin þrjú hafi unnið að sam­eig­in­legu útboði.

Heil­brigð­is­ráð­herrar Noregs og Dan­merkur skrif­uðu undir sam­komu­lag um að hefja sam­eig­in­leg kaup á ákveðnum lyfjum í fyrra­haust. Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur ekki skrifað undir sam­komu­lagið en sam­kvæmt frétt Land­spít­al­ans mun hún skrifa undir við­auka við sam­komu­lagið.

Hulda Harð­ar­dóttir, verk­efna­stjóri lyfjainn­kaupa hjá Land­spít­al­anum, segir þessa nor­rænu sam­vinnu hafa verið mjög ánægu­lega og lær­dóms­ríka og að mjög mik­il­vægt sé fyrir lítið land eins og Ísland að fá að vera með í slíkri vinnu. „Það er von okkar að sam­vinna sem þessi geti m.a. aukið afhend­ingar­ör­yggi á þeim lyfjum sem hafa verið í skorti und­an­farið. Þetta er fyrsta sam­eig­in­lega nor­ræna lyfja­út­boðið með þessum hætti, tak­ist það vel, verður það mikið til­hlökk­unar efni að taka þátt í fleiri sam­eig­in­legum nor­rænum lyfjainn­kaupum í fram­tíð­inni,“ segir hún. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár