Breska þingið tók ráðin af ríkisstjórninni vegna Brexit

Þingmenn breska þings­ins sam­þykktu í gær­kvöldi að þingið myndi ráða ferð­inni í atkvæða­greiðslum um næstu skref í Brexit-við­ræð­unum. Þrír ráð­herrar sögðu af sér til að kjósa með til­lög­unni en alls hafa nú 27 ráð­herrar sagt af sér vegna Brexit.

Theresa May, forsætisráðherra Bretlands.
Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Mynd: EPA

Þingmenn breska þings­ins sam­þykktu í gær­kvöld að þingið myndi ráða ferð­inni í næstu atkvæða­greiðslum um hver næstu skref verða í Brexit-deil­unni. Þrír ráð­herrar úr rík­is­stjórn Theresu May sögðu af sér til að kjósa með til­lög­unni, sem lögð var fram af þing­manni Íhalds­flokks­ins. 329 þing­menn greiddu atkvæði með til­lög­unni en 302 voru á móti. Frá þessu er greint á BBC.

Mögulega kosið um aðra þjóðaratkvæðagreiðslu

Nið­ur­staða atkvæða­greiðsl­unnar þykir mik­ill ósigur fyrir May og rík­is­stjórn hennar en hún þýðir að þing­menn­irnir hafa tekið yfir dag­skrá­vald neðri mál­stofu breska þings­ins. Í atkvæða­greiðsl­unum á mið­viku­dag­inn verður þing­mönn­unum gert kleift að kjósa um ólíkar til­lögur að næstu skrefum í Brexit-deil­unni. Samkvæmt BBC þykir lík­legt að greidd verði atkvæði um „væg­ari“ út­göngu úr Evr­ópu­sam­band­inu, tolla­banda­lag við ESB og jafn­vel aðra þjóðar­at­kvæða­greiðsla um Brexit.

Atkvæða­greiðsl­urnar verða þó ekki bind­andi en þeim er ætlað að finna út hver raun­veru­legur vilji þings­ins er. Theresa May sagð­ist í kjöl­far nið­ur­stöð­unnar ekki getað lofað því að rík­is­stjórnin myndi fara eftir þeim til­lögum sem þingið sam­þykkir í atkvæða­greiðsl­unum. [adspot]

27 ráðherrar hafa nú sagt af sér vegna Brexit

Þrír ráð­herrar sögðu af sér til að greiða atkvæði með til­lög­unni, þeirra á meðal er Richard Harr­ington, við­skipta­ráð­herra Bret­lands. Í heild hafa nú 27 ráð­herrar sagt af sér vegna Brexit

Keir Starmer, skugga­ráð­herra Brexit-mála hjá Verka­manna­flokknum, kall­aði ósigur rík­is­stjórnar May nið­ur­læg­ingu en þrjá­tíu þing­menn Íhalds­flokks­ins greiddu atkvæði með til­lög­unni. Hann skrif­aði í Twitter-færslu að for­sæt­is­ráð­herr­ann hafi nú misst stjórn á eigin flokki, ráðu­neyti og öllu Brexit-ferl­inu. Jeremy Corbyn, leið­togi Verka­manna­flokks­ins, hrós­aði þing­inu fyrir ákvörðun sína og sagði jafn­framt að rík­is­stjórnin yrði að taka nið­ur­stöður atkvæða­greiðsl­unnar alvar­lega.

Frestun Brexit fer eftir atkvæðagreiðslunni

Leiðtog­ar Evr­ópu­sam­bands­ins hafa sam­þykkt áætlun um að fresta Brexit fram yfir 29. mars næst­kom­andi, sem er dag­setn­ing­in sem hingað til hef­ur verið miðað við. Samþykkt var að veita frest til 22. maí ef þingið sam­þykkir Brexit-samn­ing í vik­unni en ef ekki þá mun Evr­ópu­sam­bandið veita bretum frest til 12. apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár