Sólarhringsverkfall félagsmanna Eflingar og VR á hótelum og hjá hópbifreiðafyrirtækjum hófst á miðnætti. Ríflega 2000 félagar í Eflingu og VR taka þátt í verkfallinu en meirihluti þeirra starfar á 40 hótelum á félagssvæði stéttarfélaganna en hluti þeirra starfar hjá hópbifreiðafyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu.
Fjölmiðlabann á samninganefndir
Fulltrúa VR, Eflingar, Framsýnar, Verkalýðsfélags Akraness og Verkalýðsfélags Grindavíkur funduðu með fulltrúum SA í um níu klukkutíma í gær en fundinum var slitið hjá Ríkissáttasemjara á áttunda tímanum í gærkvöld án niðurstöðu. Ríkissáttasemjari setti fjölmiðlabann á samninganefndir deiluaðila í gær og ríkir því enn trúnaður um allt sem við kemur viðræðunum. [adspot]
Búist er við mikilli truflun á allri starfsemi hótelanna fjörutíu í dag en auk þess hafa verið felldar niður ferðir hópbifreiða. Þá fellur niður skólaakstur í Reykjavík í dag en aksturþjónusta fyrir fatlaða helst óbreytt.
Ágreiningur hefur verið um hvort verkfallið eigi að ná til bílstjóra sem ekki eru í Eflingu og talsverð óvissa ríkti í gær um hverjir myndu leggja niður störf í dag. Á RÚV er greint frá því að þeir starfsmenn Kynnisferða sem ekki eru félagsmenn í Eflingu fengu þau skilaboð frá sínum stéttarfélögum að þeir mættu vinna sín störf og mættu því til starfa í dag.
Verkfallinu lýkur á miðnætti
Lík og í verkfalli Eflingar fyrir tveimur vikum mun Efling standa fyrir dagskrá og aðgerðum í dag. Þannig verður samstöðufundur rútubílstjóra í Vinabæ og hótelstarfsfólk mun fara á milli hótela þar sem verða kröfustöður Verkfallinu lýkur á miðnætti í kvöld en næstu verkföll á vegum Eflingar og VR eru boðuð 28. og 29. mars ef ekki nást samningar fyrir þann tíma
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir