Ekki bæta svefninn upp um helgar

Með því að bæta upp svefn­inn um helgar erum við að eyði­leggja svefn­inn fyrstu tvær til þrjár næt­urnar vik­una á eftir.

Margir kann­ast við að vera í „svefnskuld“ eftir langa vinnu­viku. Dagarnir ein­hvern veg­inn rúma ekki öll þau verk­efni sem við ætlum okkur að leysa svo það bitnar á svefn­inum. Til að bæta upp fyrir það leyfum við okkur að sofa lengur um helgar, en það er lík­lega ekki lausnin, sam­kvæmt rann­sókn sem birt­ist í Current Biology.

Þegar við fáum ekki nægan svefn fer lík­ams­takt­ur­inn úr skorðum. Líkaminn er m.a. orku­laus og við sækj­umst í að borða meira til að við­halda orku­þörf­inni. Þetta getur t.d. leitt til auk­innar lík­ams­þyngdar, auk þess minnkar insúl­ín­næmi lík­am­ans sem þýðir að lík­am­inn á erf­ið­ara með að taka upp ork­una sem við gefum honum.

Í rann­sókn hóps­ins við Háskól­ann í Colorado voru ýmsir líf­eðl­is­fræði­legir þættir skoð­aðir eins og insúlín næmi og lík­ams­þyngd. Einnig var fylgst með þátt­tak­endum og orku­inn­töku þeirra yfir dag­inn.

Þátt­tak­endum var skipt í þrjá hópa, einn hóp­ur­inn fékk nægan svefn (níu klukku­stundir) níu nætur í röð, sá næsti fimm klukku­stunda svefn níu nætur í röð og sá þriðji fékk fimm klukku­stunda svefn í fimm nætur, tvær nætur þar sem þátt­tak­endur réðu svefni sínum sjálfir og svo tvær nætur þar sem svefn­inn var styttur niður í fimm klukku­stundir á ný.

Hóparnir tveir sem ekki fengu nægan svefn sýndu strax breytta orku­inn­töku, þ.e. þau sóttu öll í meiri mat á kvöldin auk þess minnk­aði insúlín-næmi þeirra. Þetta ástand var stöðugt meðan hóp­arnir fengu ekki nægan svefn.

Þegar hópur númer þrjú fékk svo að bæta upp svefn­inn sinn, „um helg­ina“, minnk­aði orku­þörfin og þau hættu að snarla á kvöldin. En þrátt fyrir það breytt­ist insúl­ín­næmið ekki.

Þegar kom svo aftur að svefn­litlum nóttum var hóp­ur­inn verr staddur í sam­an­burði við hóp­inn sem svaf ein­ungis fimm klukku­stundir níu nætur í röð. Ástæðan var sú að auk þess að hafa meiri orku­þörf og vera með minna insúl­in­næmi þá var lík­ami þátt­tak­enda einnig dott­inn úr takti, þ.e. lík­ams­klukkan hafði seinkað sér um þá klukku­stund sem þau sváfu lengur yfir helg­ina.

Lík­ams­klukkan okkar passar uppá að við seytum réttum horm­ónum á réttum tíma, sem aftur stjórnar svefn­mynstri okkar og svefn­gæðum. Það má því segja að með því að bæta upp svefn­inn um helgar erum við að eyði­leggja svefn­inn fyrstu tvær til þrjár næt­urnar vik­una á eftir.

Skilaboð rann­sak­enda eru því, senni­lega svipuð og við höfum heyrt áður, að nægj­an­legur og umfram allt reglu­legur svefn er lyk­ill­inn að góðri heilsu. Þetta eru kannski ágæt­is­skila­boð inn í helg­ina.

Fréttin birt­ist fyrst á vef Hvatans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár