Lægstu launin en besta staðan - Hagræðing í kortunum

Uppgjör þriggja stærstu banka lands­ins sýnir að staða þeirra er um margt sterk, en arð­semin þeirra bendir til þess að frek­ari hag­ræð­ing er í píp­unum. Launa­lægsti banka­stjór­inn stýrir þeim banka sem skil­aði besta árangrinum í fyrra.

Tíu ára afmæl­isár Arion banka, Íslands­banka og Lands­bank­ans, er nú form­lega búið og má segja að það sé loks­ins komin nokkuð skýr mynd á efna­hags­reikn­inga bank­ana eftir for­dæma­lausa end­ur­reisn banka­kerf­is­ins, á grunni inn­lendra eigna­safna hinna föllnu banka, Kaup­þings, Glitnis og gamla Lands­bank­ans.

Það sem helst ein­kennir bank­ana er ákveð­inn hæga­gangur í rekstri og um margt krefj­andi aðstæður til að skila við­un­andi arð­semi. Þrátt fyrir nokkurn útlána­vöxt, þá er arð­semi fremur lág, tæki­færi til vaxtar á örmark­aðnum íslenska tak­mörkuð, í kóln­andi hag­sveiflu, og margt bendir til þess að frek­ari hag­ræð­ing sé í kort­unum í starf­semi þeirra.

Und­an­farna daga hefur umræða um laun banka­stjóra verið áber­andi, enda kjara­deilur í algleym­ingi og við­kvæm staða á borði rík­is­sátta­semj­ara.

Það sem kveikti neist­ann í þeirri umræðu var 82 pró­sent hækkun launa banka­stjóra Lands­bank­ans, Lilju Bjarkar Ein­ars­dóttur, en hún er með 3,8 millj­ónir í mán­að­ar­laun. Athygl­is­vert er, þegar rýnt í rekstur bank­anna, að hún er með lang­sam­lega lægstu launin meðal banka­stjóra þriggja stærstu bank­anna, þrátt fyrir að hún stýri stærsta bank­anum sem um þessar mundir skilar einnig bestu rekstr­ar­kenni­töl­unum, þegar horft er til mark­aðs­hlut­deildar, arð­semi eigin fjár og kostn­að­ar­hlut­falls í rekstri.

Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, var með 5,3 millj­ónir á mán­uði í fyrra, og heild­ar­laun Hösk­uldar Ólafs­sonar voru 6,2 millj­ónir á mán­uði.

Sé rýnt í rekstr­ar­kenni­tölur var arð­semi eig­in­fjár minnst hjá Arion banka. Mark­aðsvirði Arion banka er nú 150 millj­arðar króna en eigið fé í lok árs var 200,9 millj­arðar. Það þýðir að mark­aðsvirðið er nú 74,6 pró­sent af eigin fénu, sem telst fremur lágt í alþjóð­legum sam­an­burði við banka sem eru skráðir á markað. Þó eru dæmi um banka sem eru verð­lagðir neðar á þennan mæli­kvarða.

Banka­sýsla rík­is­ins, sem fer með eign­ar­hluti rík­is­ins í fjár­mála­kerf­inu, hefur krafið stjórn Íslands­banka og banka­ráð Lands­bank­ans skýr­inga á launa­þróun banka­stjóra, en bæði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hafa gagn­rýnt launa­þróun banka­stjóra rík­is­bank­ana, og meðal ann­ars sagt að hún sé ekki í sam­ræmi við til­mæli þáver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Bene­dikts Jóhann­es­sonar, frá árinu 2017.

Hér að neðan verður farið yfir fimm mik­il­væga þætti, þegar horft er til rekstrar bank­anna eins og hann birt­ist í upp­gjörum þeirra fyrir árið 2018.

1. Sá grund­vall­ar­munur er á bönk­unum, að Arion banki er í einka­eigu á meðan íslenska ríkið er eig­andi Íslands­banka og Lands­bank­ans. Eign rík­is­ins í Lands­bank­anum er 98,2 pró­sent en bank­inn sjálfur á 1,5 pró­sent og aðrir - að mestu starfs­menn bank­ans - eiga 0,3 pró­sent hlut. Stærstu eig­endur Arion banka - sem er skráður á markað á Íslandi og í Svíþjóð, í Nasadaq kaup­hallir - er Kaupskil ehf. með 32,7 pró­sent hlut, Taconic Capital með 10 pró­sent hlut, Attestor Capital með 8,9 pró­sent, Och-Ziff Capital með 6,6 pró­sent, Goldman Sachs Funds með 3,4 pró­sent hlut og Landsdowne Funds með 3 pró­sent hlut. Eign­ar­haldið er að miklu leyti enn hjá kröfu­höfum gamla Kaup­þings, eða aðila sem tengj­ast þeim hópi. Kaupþing, eig­andi Kaup­skila, ætlar að selja að lág­marki tíu pró­sent af hlut sínum í bank­anum á næstu vikum, og er það nú í und­ir­bún­ingi.

2. Eig­in­fjár­staða bank­anna er nokkuð traust, sé horft til sam­setn­ingu þess. Sam­an­lagt var eigið fé bank­anna þriggja 616,8 millj­arðar króna í lok árs 2018. Svo það sé sett í sam­hengi fyrir almenn­ing, þá er það upp­hæð sem nemur um 14,3 pró­sentum af heild­ar­eignum íslenskra líf­eyr­is­sjóða, en þær nema nú um 4.300 millj­örðum.

Sé horft til þessa mæli­kvarða þá er Lands­bank­inn með tölu­vert meira eigið fé en hinir bank­arnir tveir, enda er hann stærstur bank­anna og með mesta mark­aðs­hlut­deild heilt á litið. Eigið fé bank­ans nam í lok árs 239,6 millj­örðum króna. Arion banki var með 200,9 millj­arða króna eigið fé í lok árs­ins og Íslands­banki með 176,3 millj­arða. Eig­in­fjár­hlut­föll bank­anna eru há í alþjóð­legum sam­an­burði, á bil­inu 22 til 25 pró­sent. Eig­in­fjár­kröfur FME eru einnig háar í alþjóð­legu sam­hengi, en lág­mark­s­við­mið FME er 20 pró­sent.

3. Hagnaður bank­anna hefur verið að drag­ast nokkuð saman og varð sú raunin á árinu 2018. Sam­an­lagður hagn­aður bank­anna var 37,7 millj­arðar króna, eða sem nemur um 6,1 pró­sent af heildar eig­infé þeirra. Hagnaður Lands­bank­ans var 19,3 millj­arðar og er lagt til að greiddir verið 9,9 millj­arðar í arð til rík­is­ins vegna árs­ins.

Hjá Arion banka var hagn­að­ur­inn 7,8 millj­arðar og sagði Hösk­uldur Ólafsson, banka­stjóri, það vera undir vænt­ingum. Lagt er til að tíu millj­arðar verði greiddir til eig­enda í arð vegna rekstr­ar­ins í fyrra, og er það hluti af þeirri sýn hlut­hafa og stjórn­enda Arion banka að minnka eigin fé bank­ans og greiða út arð til eig­enda. Hjá Íslands­banka var hagn­að­ur­inn 10,6 millj­arðar og er lagt til að greiddir verði í arð 5,3 millj­arðar til eig­and­ans, það er rík­is­ins. Sam­an­lagðar arð­greiðslur til rík­is­ins frá rík­is­bönk­unum vegna árs­ins 2018 nema því 15,2 millj­örðum króna.

4. Arðsemi eigin fjár hjá bönk­unum var mis­mun­andi, en hún var minnst hjá Arion banka, aðeins 3,7 pró­sent. Það telst lágt í alþjóð­legum sam­an­burði, jafn­vel þó arð­semi eig­in­fjár hjá bönkum hafi farið almennt lækk­andi á und­an­förnum miss­erum. Rík­is­bank­arnir voru með mun meiri arð­semi á þennan mæli­kvarða. Lands­bank­inn var með 8,2 pró­sent arð­semi eig­in­fjár og Íslands­banki 6,1 pró­sent. Rík­is­bank­arnir skila því mun meiri arð­semi en Arion banki.

5. Eitt af því sem oft er horft til, þegar hag­kvæmni rekstrar hjá bönkum er metið, er kostn­að­ar­hlut­fall þeirra. Það er hlut­fall rekstr­ar­kostn­aðar miðað við tekjur. Hjá Íslands­banka var þetta hlut­fall 66 pró­sent. Það telst hátt í alþjóð­legum sam­an­burði. Lands­bank­inn er með mun lægra hlut­fall en bæði Íslands­banki og Arion banki, eða 45,5 pró­sent. Friðrik Soph­us­son, stjórn­ar­for­maður Íslands­banka, sagði í sam­tali við Kjarnann að það væri alveg skýrt mark­mið bank­ans að lækka kostn­að­ar­hlut­fallið, en það fór þó hækk­andi á milli áranna 2017 og 2018. Markmið bank­ans er að vera í kringum 55 pró­sent.

Arion banki var með kostn­að­ar­hlut­fall upp á 56,9 pró­sent, en á fjórða árs­fjórð­ungi var það 60,3 pró­sent. Búast má við því að bank­arnir muni reyna að lækka þetta hlut­fall enn frekar, einkum Arion banki og Íslands­banki. Starfs­mönnum Arion banka hefur farið fækk­andi að und­an­förnu en starfs­gildi voru 904 í lok árs 2018 en þau voru 949 í lok árs 2017.

Sama er uppi á ten­ingnum hjá Íslands­banka en starfs­menn voru þar 834 í lok árs 2018 og hefur farið fækk­andi. Hjá Lands­bank­anum starfa nú 919 en í lok árs 2017 voru þeir 1034. Meðaltal stöðu­gilda var hins 961 á árinu 2018. Starfs­mönnum fækk­aði því þó nokkuð á árinu 2018, en sé mið tekið af kostn­að­ar­hlut­falli má gera ráð fyrir að sú þróun haldi áfram. Sam­an­lagt voru starfs­menn í bönk­unum þremur um það bil 2.730 í árs­lok 2018.

Öfundsverð staða, þrátt fyrir allt

Sé horft til fremur stuttrar sögu bank­anna, frá því þeir urðu til upp úr rústum föllnu bank­anna í hruni fjár­mála­kerf­is­ins í októ­ber 2008, þá er staða þeirra sterk og traust að mörgu leyti, og kannski sér­stak­lega þegar horft til alþjóð­legs sam­an­burðar. Bank­arnir starfa að nær öllu leyti ein­göngu á Íslandi og áhættu­söm lán eru ekki fyr­ir­ferða­mikil í rekstr­inum, eftir mikla hreinsun í kjöl­far hruns­ins. Til fram­tíðar litið skiptir þetta miklu máli fyrir fjár­mála­kerfi lands­ins, ekki síst í ljósi mik­illa breyt­inga sem fjár­mála­geir­inn er að ganga í gegnum með breyttu reglu­verki og nýjum tækni­mögu­leikum. Á tíu ára starfs­af­mæli þriggja stærstu bank­anna má segja að helsti styrkur þeirra sé sá, að efna­hags­reikn­ing­arnir eru skýrir og gagn­sæir, ólíkt því sem var fyrir hrunið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár