Höskuldur: Afkoman fyrir árið í heild undir væntingum

Þrátt fyrir 7,8 millj­arða hagnað Arion banka í fyrra segir banka­stjór­inn, Hösk­uldur Ólafsson, að afkoman fyrir árið 2018 hafi valdið von­brigðum.

Hagnaður sam­stæðu Arion banka á fjórða árs­fjórð­ungi 2018 nam 1,6 millj­arði króna sam­an­borið við 4,1 millj­arðs króna tap á sama tíma­bili 2017, og var hagn­að­ur­inn á árinu 2018 7,8 millj­arðar króna. Á árinu 2017 var hagn­að­ur­inn hins vegar 14,4 millj­arðar.

„Afkoma Arion banka á fjórða árs­fjórð­ungi var undir vænt­ingum og sama má segja um árið í heild. Við sjáum hins vegar jákvæða þróun í grunn­starf­semi bank­ans og það er ánægju­legt að sjá að vaxta­munur hækkar á fjórða árs­fjórð­ungi í sam­ræmi við mark­mið okkar. Erfiðar aðstæður á hluta- og skulda­bréfa­mörk­uðum og ekki síst hrær­ingar í flug­rekstri settu mark sitt á starf­sem­ina, bæði á fjórð­ungnum og á árinu í heild. Eitt helsta verk­efni þessa árs verður að auka arð­semi í rekstri bank­ans og hafa ýmis verk­efni verðið sett í gang með það að mark­miði. Það er engu síður ljóst að það er erfitt verk­efni að ná við­un­andi arð­semi án umtals­verðra hækk­ana á útlána­vöxtum þegar rík­is­valdið við­heldur ofur­sköttum á banka­kerfið og eft­ir­lits­að­ilar bæta við eig­in­fjár­kröfum og öðrum álögum,“ segir Hösk­uldur Ólafsson, banka­stjóri Arion banka, í til­kynn­ingu til kaup­hallar.

Arðsemi eigin fjár var 3,2 pró­sent á fjórða árs­fjórð­ungi 2018 sam­an­borið við 7,3 pró­sent á sama tíma­bili árið 2017, en það telst fremur lág arð­semi í banka­rekstri. Arðsemi var 3,7 pró­sent sam­an­borið við 6,6 pró­sent arð­semi á árinu 2017.

Mark­aðsvirði bank­ans, sem skráður er tví­hliða á íslenska og sænska Nasdaq mark­að­inn, er nú 154 millj­arðar en eigið fé Arion banka var 200,9 millj­arðar í lok árs. Það þýðir að mark­aðsvirði bank­ans er nú 76 pró­sent af eigin fé hans.

Stjórn bank­ans leggur til að tíu millj­arða króna arður verði greiddur eða sem sam­svarar 5 krónum á hlut. Arð­greiðslan er liður í áfram­hald­andi hag­ræð­ingu á sam­setn­ingu eigin fjár bank­ans, segir í til­kynn­ingu.

Heild­ar­eignir námu 1.164,3 millj­örðum króna í árs­lok 2018 sam­an­borið við 1.147,8 millj­arða króna í árs­lok 2017.

Eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans var 22,0% í árs­lok 2018 en var 24,0% í árs­lok 2017. Hlutfall almenns eig­in­fjár­þáttar 1 nam 21,2% í árs­lok, sam­an­borið við 23.6% í árs­lok 2017.

Hösk­uldur segir í til­kynn­ingu að unnið sé að sölu á Valitor í sam­starfi við Citi bank­ann, en búist er við því að tíð­indi ber­ist af þeirri vinnu á þessu ári.

Þá minn­ist Hösk­uldur enn fremur á það, að Arion banki hafi verið mark­aðs­fyr­ir­tæki árs­ins á árinu 2018, og náð frek­ari fót­festu með vörur sínar og þjón­ustu, ekki síst í gegnum staf­rænar leiðir. „Í raun er svo komið að staf­rænu lausn­irnar okkar vekja athygli út fyrir land­stein­ana en bank­inn fékk tvenn alþjóð­leg verð­laun fyrir þær í des­em­ber. Við höfum nú á rúmum tveimur árum kynnt um 20 nýjar staf­rænar lausnir og hefur úti­búa­net bank­ans tekið breyt­ingum í takt við vin­sældir þess­ara nýju lausna. Á fjórð­ungnum opn­uðum við tvær nýjar afgreiðslur sem taka mið af staf­rænni þjón­ustu og nýta mun minna hús­næði en eldri útbú, alls fækk­aði fer­metrum sem úti­búin okkar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nýta um tæp 40% á árinu. Það gefur auga­leið að þessi þróun hefur áhrif á hvernig við vinnum, hefur aukið skil­virkni í okkar störfum og þjón­ustu, en ekki síður hefur hún áhrif á hvernig við­skipta­vinir sækja sér fjár­mála­þjón­ustu. Í dag gera þeir það í 97% til­fella í gegnum staf­rænar leiðir, eins og appið, net­bank­ann og vef bank­ans og jókst staf­ræn sala um 125% ár árinu,“ segir Hösk­uldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár