Ragnar Þór sjálfkjörinn formaður VR næstu tvö árin

Kjör­stjórn VR hefur úrskurðað eitt ein­stak­lings­fram­boð til for­manns VR fyrir kjör­tíma­bilið 2019-2021 lög­lega fram borið en það er fram­boð Ragnars Þór Ing­ólfs­sonar og er hann því sjálf­kjör­inn for­maður VR til næstu tveggja ára.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, er sjálf­kjör­inn for­maður til næstu tveggja ára en önnur fram­boð til for­manns bár­ust ekki til kjör­stjórnar VR. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­inu í dag. Fram­boðs­frestur vegna for­manns- og stjórn­ar­kjörs VR rann út á hádegi í dag.

Kjör­stjórn VR hefur úrskurðað eitt ein­stak­lings­fram­boð til for­manns VR fyrir kjör­tíma­bilið 2019 til 2021 lög­lega fram borið en það er fram­boð Ragnars Þórs og er hann því sjálf­kjör­inn for­maður VR til næstu tveggja ára, segir í til­kynn­ing­unni.

Þá hefur kjör­stjórn VR fengið 16 ein­stak­lings­fram­boð til stjórnar VR fyrir kjör­tíma­bilið 2019 til 2021 og vinnur í að kanna lög­mæti þeirra.

Fundur verður hald­inn með fram­bjóð­endum mið­viku­dag­inn 13. febr­úar næst­kom­andi og verða nöfn fram­bjóð­enda birt á vef VR að honum loknum.

Alls verður kosið til sjö sæta í stjórn og þriggja í vara­stjórn, segir í til­kynn­ingu VR.

Búinn að sinna embættinu í tæp tvö ár

Ragnar Þór var kjör­inn nýr for­maður VR í mars árið 2017. Kosn­inga­þátt­taka var 17,09 pró­sent, sem þýddi að ríf­lega 5.700 af þeim tæp­lega 34 þús­und sem höfðu kosn­inga­rétt greiddu atkvæð­i.

Ragnar Þór hlaut 62,98 pró­sent atkvæða, eða 3.480 atkvæði alls. Ólafía B. Rafns­dótt­ir, þáver­andi for­maður VR, hlaut 37 pró­sent atkvæði, eða 2.046 atkvæði.

Ólafía varð for­maður fyrir sex árum, árið 2013, þegar hún sigr­aði kosn­ingu til for­manns með 76 pró­sent atkvæða gegn þáver­andi sitj­andi for­manni, Stef­áni Ein­ari Stef­áns­syni. Hún var end­ur­kjörin árið 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár