Undanþága ESÍ frá upplýsingalögum runnin út - Spurningum enn ósvarað

Ítar­legar upp­lýs­ingar um starf­semi ESÍ í tengslum við upp­gjör slita­búa föllnu bank­anna hafa ekki verið birtar. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son veitti félag­inu und­an­þágu frá upp­lýs­inga­lögum, en hún rann út 15. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

Und­an­þága frá upp­lýs­inga­lögum fyrir Eigna­safn Seðla­banka Íslands (ESÍ) og dótt­ur­fé­lög bank­ans, er runnin út.

Það gerð­ist 15. des­em­ber síð­ast­lið­inn, en Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, veitti félög­unum und­an­þágu frá upp­lýs­inga­lögum 27. nóv­em­ber 2015.

Eftir fyr­ir­spurn Kjarnans, og beiðni um upp­lýs­ingar um rekstur ESÍ, hefur umsögn um málið á vef stjórna­ráðs­ins nú verið breytt, og stendur að beiðni um áfram­hald und­an­þágu sé „í vinnslu“.

ESÍ og Hilda hafa ekki svarað fyr­ir­spurnum Kjarnans varð­andi félögin, og aðgengi að upp­lýs­ingum um starf­semi þeirra, mán­uðum saman, þrátt fyrir ótví­ræða laga­skyldu sam­kvæmt stjórn­sýslu­lögum um að veita svör við fyr­ir­spurnum sem þessum. Meg­in­regla stjórn­sýslu­laga er sú, að stjórn­sýslan skuli vera gagnsæ og fyr­ir­spurnum svarað fljótt og vel, er varða almanna­hags­muni.

Efnisleg svör hafa ekki borist við fyr­ir­spurnum, meðal ann­ars um yfir­lit um kaup á lög­fræði­þjón­ustu hjá félög­unum.

Kjarninn sendi for­sæt­is­ráðu­neyt­inu fyr­ir­spurn 11. des­em­ber þar sem óskað var eftir afstöðu Katrínar Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra, til þess hvort það stæði til að hafa und­an­þág­una áfram í gildi, þar sem hún væri um það bil að renna út.

Fyr­ir­spurn var einnig send til Seðla­banka Íslands og óskað eftir upp­lýs­ingum um starf­semi ESÍ, þar á meðal yfir­lit yfir aðkeypta þjón­ustu félags­ins, og fleira.

Í árs­reikn­ingum félags­ins hafa ekki komið fram ítar­legar upp­lýs­ingar um starf­semi félag­anna, og var beiðnin meðal ann­ars send af þeim ástæðum, enda miklir almanna­hags­munir í húfi þar sem félögin hafa stundað eigna­um­sýslu bak við luktar dyr leyndar, árum saman, með mörg hund­ruð millj­arða króna eignir almenn­ings.

Hefur starf­semin meðal ann­ars verið að miklu leyti utan sjóna almenn­ings, þar sem starf­semin hefur hangið saman við umfangs­mikla vinnu við upp­gjör á slita­búum föllnu bank­anna, Kaup­þings, Lands­bank­ans og Glitnis, sem nú er lokið.

ESÍ er í slita­með­ferð en Guð­mundur Ingvi Sig­urðs­son hrl. og Haukur Bene­dikts­son eru í skila­nefnd félags­ins en Steinar Þór Guð­geirs­son hrl. og fyrr­nefndur Haukur eru í skila­nefnd Hildu, að því er fram kemur í árs­skýrslu Seðla­banka Íslands fyrir árið 2017, sem kom út í apríl á síð­asta ári.

Spurt og svarað

Páll Þór­halls­son, hjá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, svar­aði fyr­ir­spurn Kjarnans í gær­morgun fyrir hönd ráð­herra, og upp­lýsti þar um að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefði það nú til umsagnar, hvort rök stæðu til þess að ESÍ og dótt­ur­fé­lög yrðu áfram und­an­skilið upp­lýs­inga­lögum. „Vísað er til fyr­ir­spurnar þinnar frá 11. des. sl. Hinn 13. des. sl. barst ráðu­neyt­inu beiðni frá Seðla­banka Íslands um áfram­hald­andi und­an­þágu til handa Eigna­safni SÍ ehf. og Hildu ehf. frá gild­is­sviði upp­lýs­inga­laga. Ráðu­neytið hefur sent Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu þessa und­an­þágu­beiðni til umsagnar, sbr. 3. mgr. 2. gr. upp­lýs­inga­laga, og óskaði eftir við­brögðum eigi síðar en 15. febr­úar næst­kom­andi. Þegar umsögn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins hefur borist verður tekin afstaða til þess af hálfu ráðu­neyt­is­ins hvort áfram­hald­andi und­an­þága verði veitt,“ sagði í svari Páls, fyrir hönd ráð­herra.

Hvaða félög eru þetta?

Starf­semi ESÍ og Hildu varðar almenn­ing miklu. Í kjöl­far falls fjár­mála­fyr­ir­tækja á Íslandi haustið 2008 varð Seðla­banki Íslands stór kröfu­hafi í bú inn­lendra fjár­mála­fyr­ir­tækja. Kröf­urnar voru tryggðar með veðum af ýmsum toga.

Hluti þess­ara krafna var færður til rík­is­sjóðs í árs­lok 2008, en Seðla­bank­inn hafði umsýslu með þeim.

Kröf­urnar voru svo færðar til Seðla­bank­ans á ný á fyrri hluta árs­ins 2010. Í lok árs 2009 voru umræddar eignir fluttar í sér­stakt félag í eigu Seðla­bank­ans, sem er Eigna­safn Seðla­banka Íslands ehf. (ESÍ).

Í árs­lok 2017 átti ESÍ tvö dótt­ur­fé­lög, Hildu ehf., sem ESÍ tók yfir á miðju ári 2011, og SPB ehf., sem ESÍ tók yfir á miðju ári 2016. Í lok árs 2017 nam efna­hagur ESÍ um 8,2 ma.kr. og hafði dreg­ist saman um ríf­lega 33,6 ma.kr. frá því í lok árs 2016 sem að mestu leyti má rekja til arð­greiðslu til Seðla­bank­ans. Hagnaður ESÍ á árinu 2017 nam um 1,9 ma.kr. eftir skatta.

Skipuð var skila­nefnd yfir ESÍ í októ­ber 2017. Inn­köllun félags­ins lauk í des­em­ber 2017, en slitum á félag­inu er ekki lokið. Í skila­nefnd SPB ehf., sem er dótt­ur­fé­lag ESÍ líkt og Hilda, eru fyrr­nefndir Guð­mundur Ingvi og Haukur.

Sigurður Ingi spyr og Bjarni svarar

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og núver­andi sam­göngu­ráð­herra, spurði Bjarna Bene­dikts­son út í mál­efni ESÍ þegar sá síð­ar­nefndi var for­sæt­is­ráð­herra. Sigurður Ingi tók við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu af Sigmundi Davíð í kjöl­far afhjúp­unar Panama­skjal­anna, og var því með mál­efni seðla­bank­ans undir sínu ráðu­neyti.

Fyr­ir­spurn Sigurðar Inga var ítar­leg, og snéri að starf­semi ESÍ. Hann spurði eft­ir­tal­inna spurn­inga:

1. Hversu margar eignir/kröfur hefur Seðla­banki Íslands selt, beint eða í gegnum dótt­ur­fé­lög, svo sem ESÍ, frá því að honum var falin umsjón þeirra eftir banka­hrunið árið 2008, hvert var sölu­and­virðið í heild og sund­ur­liðað eftir árum, hverjir keyptu og á hvaða kjörum, sund­ur­liðað ár fyrir ár?

2. Í hvaða til­vikum var lánað fyrir kaup­unum, við hversu hátt láns­hlut­fall var miðað, hvaða skil­yrði voru sett um trygg­ingar fyrir greiðslu kaup­verðs, hver var stefnan um vaxta­kjör, var í ein­hverjum til­vikum vikið frá henni og ef svo er, hvers vegna?

3. Hefur Seðla­bank­inn, beint eða í gegnum dótt­ur­fé­lög, keypt eignir/kröfur eða fengið fram­seldar með öðrum hætti, svo sem í skiptum fyrir aðrar eignir/kröfur, frá banka­hruni, hvaða eignir/kröfur voru það, sund­ur­liðað ár fyrir ár, voru þær skráðar á mark­aði, hvaða ástæður voru fyrir kaup­unum og á hvaða laga­heim­ild byggði Seðla­bank­inn eða dótt­ur­fé­lög kaupin?

4. Hafa eignir/kröfur verið seldar aftur og ef svo er, hver er mun­ur­inn á kaup- og sölu­verði, hverjir voru kaup­endur og selj­endur í þeim við­skiptum og hefur Seðla­bank­inn eða dótt­ur­fé­lög fengið fram­seldar til sín eignir sem rýrnað hafa í verði eða jafn­vel tap­ast frá því að þeirra var aflað?

5. Fyrir hvaða sér­fræði­þjón­ustu, hverjum og hve mikið, hefur Seðla­banki Íslands, beint eða í gegnum dótt­ur­fé­lög, greitt vegna sölu á eignum/kröfum frá og með árinu 2013 til dags­ins í dag, var þjón­ustan aug­lýst og/eða boðin út, hvernig var staðið að ráðn­ingu á þjón­ustu­að­ilum, hver voru sjón­ar­mið til grund­vallar ráðn­ingum og hvernig skipt­ust greiðslur milli aðila?

6. Var sala á eign­ar­hlutum/kröfum Seðla­banka Íslands eða dótt­ur­fé­laga bank­ans ávallt aug­lýst, hvernig var staðið að útboði/sölu í þeim til­vikum, við hvaða reglur var miðað, voru við­miðin sam­bæri­leg í öllum til­vikum og ef ekki, hvers vegna?

Bjarni svar­aði fyr­ir­spurn Sigurðar Inga með ítar­legu svari, en þó var ekki svarað efn­is­lega og sér­tækt, þeim atriðum sem spurt var út í. Í svar­inu var vísað til þagn­ar­skyldu Seðla­bank­ans um verk­efni ESÍ og að bank­inn myndi skila af sér skýrslu um ESÍ og starf­semi þess, þegar vinnu við slit væri lokið. Í svar­inu var full­yrt að það yrði gert fyrir lok árs 2018 en það hefur ekki verið gert enn.

Sam­an­tekin svör Bjarna við fyr­ir­spurn­inni, voru meðal ann­ars þessi.

„1. Starf­semi ESÍ og dótt­ur­fé­laga þess, utan Hildu, hefur að litlu leyti snú­ist um eigna­sölu en að mestu leyti um inn­heimtu útistand­andi krafna, aðal­lega á slitabú og end­ur­reistar fjár­mála­stofn­anir. Frá stofnun ESÍ hefur félagið þó gert fimm stóra samn­inga um sölur á veru­legum eignum sem greint hefur verið opin­ber­lega frá. Þessir samn­ingar skýra m.a. lækkun eigna á efna­hags­reikn­ingi félags­ins. Í fyrsta lagi sölu á hluta­bréfum í danska bank­anum FIH til hóps fjár­festa sem sam­an­stóð af dönsku líf­eyr­is­sjóð­unum ATP og PFA, sænska trygg­inga­fyr­ir­tæk­inu Folksam og fyr­ir­tæk­inu CPDyvig (sjá með­fylgj­andi til­kynn­ingu, dags. 19. sept­em­ber 2010). Seðla­banki Íslands vinnur nú að skýrslu um veit­ingu neyð­ar­láns til Kaup­þings og end­ur­heimtur þess. Þar verður m.a. fjallað ítar­lega um söl­una á FIH. Ráðgert er að skýrslan verði kynnt banka­ráði fyrir ára­mót. Í öðru lagi sölu á hluta­bréfum í Sjóvá – Almennum trygg­ingum hf. til fag­fjár­festa­sjóðs­ins SF1 (sjá með­fylgj­andi til­kynn­ingar, dags. 28. júlí 2011 og 30. ágúst 2011). Í þriðja lagi sam­komu­lag á milli ESÍ/Hildu, Dróma og Arion banka sem greint var frá hér að framan, en í því til­felli voru lána­söfn í eigu Hildu notuð til að gera upp kröfur Arion banka á Dróma (sjá með­fylgj­andi til­kynn­ingu, dags. 30. des­em­ber 2013). Í fjórða lagi sölu (í tvennu lagi) á samn­ings­bundnum sér­tryggðum skulda­bréfum útgefnum af Arion banka hf. til Íbúða­lána­sjóðs (sjá með­fylgj­andi til­kynn­ingar, dags. 23. októ­ber 2015 og 4. mars. 2016). Í fimmta lagi sölu á veð­tryggðu skulda­bréfi útgefnu af Íslands­banka hf. til Íbúða­lána­sjóðs (sjá með­fylgj­andi til­kynn­ingu, dags. 19. sept­em­ber 2016).

Til að varpa frekara ljósi á þetta eru í fylgi­skjali I yfir­lit sem sýna þróun efna­hags- og rekstr­ar­reikn­ings ESÍ auk sjóðs­streymis frá stofnun félags­ins og til árs­loka 2016. Þar kemur fram að upp­safn­aður hagn­aður ESÍ á tíma­bil­inu 2010 til árs­loka 2016 nemur 74.453 millj. kr. og án vaxta og geng­is­munar af láni frá Seðla­bank­anum nemur hagn­að­ur­inn 125.192 millj. kr. Í yfir­liti efna­hags­reikn­ings kemur fram að félagið var stofnað í árs­lok 2009 með eignir upp á 490.615 millj. kr. sem eru fjár­magn­aðar með láni frá Seðla­banka Íslands upp á 490.614 millj. kr. auk 1 millj. kr. í hlutafé. Í árs­lok 2016 var þessi efna­hags­reikn­ingur kom­inn niður í 42.729 millj. kr. og þar af eru 35.965 millj. kr. í hand­bæru fé og lánið frá bank­anum er upp­greitt. Í sjóðs­streym­is­yf­ir­lit­inu sést síðan ár fyrir ár undir liðnum fjár­fest­ing­ar­hreyf­ingar hvernig hinir ýmsu eigna­flokkar eru seldir og inn­heimtir sam­tals að fjár­hæð 547.255 millj. kr. og þeim fjár­munum að mestu leyti varið til að greiða Seðla­banka Íslands upp fjár­mögn­un­ar­lánið og greiða arð að auki.

2. ESÍ hefur ekki lánað fyrir kaupum þegar eignir félags­ins hafa verið seldar að frá­tal­inni sölu á FIH bank­anum, sbr. nán­ari umfjöllun í með­fylgj­andi frétta­til­kynn­ingu. Í til­viki Hildu eru ein­staka dæmi um að veitt hafi verið lán við sölu þeirra fast­eigna sem félagið eign­að­ist með sam­komu­lagi milli ESÍ/Hildu, Dróma og Arion banka, sbr. fram­an­greint. Með sam­komu­lag­inu yfir­tók Hilda um 550 fasta­númer fast­eigna frá Dróma til að vinna úr, þ.e. að koma í verð. Í slíkum til­vikum hafa lán verið veitt á mark­aðs­kjörum og með veði í við­kom­andi fast­eign, enda má starf­semi félag­anna ekki verða til þess að rýra virði eigna­safns­ins.

3. Seðla­banki Íslands ítrekar að ESÍ og dótt­ur­fé­lög þess eru félög um fulln­ustu eigna. Í því felst að félögin hafa þurft að ganga að trygg­ingum, umbreyta þeim og ráð­ast í ýmsar aðgerðir til varnar hags­munum sínum. Þetta felur óhjá­kvæmi­lega í sér umsýslu og úrvinnslu eigna sem miðar að því að hámarka virði trygg­inga og lág­marka tap Seðla­banka Íslands af hrun­inu. Þá leiðir það bein­línis af heim­ildum Seðla­banka Íslands til við­skipta, gegn fram­lögðum trygg­ingum, sbr. 1. og 2. mgr. 7. gr. laga nr. 36/2001, að bank­anum er heim­ilt að stýra og að end­ingu koma í verð fulln­ustu­eignum/trygg­ingum sem kunna að falla til bank­ans. Seðla­banki Íslands þarf ekki sér­stakar heim­ildir til þess að tak­marka tjón sitt í til­vikum þar sem hann þarf að koma í verð eignum sem lagðar hafa verið fram til trygg­ingar í við­skiptum bank­ans. Skiptir í því sam­bandi ekki máli hvers eðlis eignin er, enda er grund­vall­ar­at­riðið hið sama í öllum til­vikum: að lög­gjaf­inn hefur gert ráð fyrir slíku fyrst hann veitir bank­anum lög­bundnar heim­ildir til útlána gegn trygg­ingum.

4. Eignum sem ESÍ og dótt­ur­fé­lög þess eign­uð­ust í kjöl­far hruns­ins hefur að mestu leyti verið umbreytt í reiðufé, enda er meg­in­mark­mið félag­anna að selja þær, sbr. fram­an­greint. Um virði eigna Seðla­bank­ans er almennt upp­lýst í árs­reikn­ingi, sem stað­festur er af banka­ráði, og geta ein­stakir banka­ráðs­menn gert athuga­semdir þar að lút­andi, en árs­reikn­ing­ur­inn er loks stað­festur af ráð­herra, allt skv. 33. gr. laga nr.36/2001. Að lokum má nefna að upp­lýs­ingar um kaup­endur og selj­endur ein­stakra eigna getur Seðla­banki Íslands ekki látið af hendi með vísan til sjón­ar­miða um þagn­ar­skyldu, sbr. fram­an­greint.

5. Vegna úrvinnslu og stýr­ingar þeirra eigna sem stafa frá banka­hrun­inu hafa bæði ESÍ og dótt­ur­fé­lög þess aflað sér þjón­ustu utan­að­kom­andi sér­fræð­inga. Fjár­mála­fyr­ir­tækjum, og eftir atvikum lög­manns­stofum, hefur verið greidd þóknun vegna sölu á mark­aðs­verð­bréfum, skulda­bréfum og hluta­bréfum auk þess sem fast­eigna­sölum hefur verið greidd þóknun vegna sölu fast­eigna. Þjón­ustan hefur ekki verið boðin út. Eins og áður kom fram eru ESÍ og dótt­ur­fé­lög þess félög um fulln­ustu eigna, þar sem meg­in­sjón­ar­miðið er að hámarka virði eigna, hvort sem það er við ákvörðun á úrvinnslu til­tek­inna eigna eða til grund­vallar samn­ingum við utan­að­kom­andi sér­fræð­inga. Upp­lýs­ingar um hvaða sér­fræð­inga hefur verið leitað til, hversu mikið þeir hafa fengið greitt fyrir sér­fræði­þjón­ustu sína og skil­mála ráðn­ing­ar­samn­inga að öðru leyti getur Seðla­banki Íslands ekki veitt með vísan til sjón­ar­miða um þagn­ar­skyldu, sbr. fram­an­greint.

6. Almennt hafa ESÍ og dótt­ur­fé­lög þess aug­lýst þær eignir til sölu sem stafa frá banka­hrun­inu. Hér má þó benda á að sala skulda­bréfa til Íbúða­lána­sjóðs sem fjallað var um í 1. tölul. var nið­ur­staða beinna við­ræðna sjóðs­ins og ESÍ að und­an­gengnu sam­ráði við fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og var sá háttur hafður á í ljósi umfangs við­skipt­anna og hags­muna beggja aðila. Þá hefur þess einnig verið gætt að per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar verði ekki opin­berar. Fyr­ir­komu­lag við sölu eigna hefur eðli máls sam­kvæmt verið mis­mun­andi eftir þeim eignum sem til sölu hafa verið hverju sinni. Þótt fyr­ir­komu­lag við sölu á eigna­söfnum sé mis­mun­andi hafa starfs­menn bank­ans, ESÍ og dótt­ur­fé­laga þess leit­ast við að aug­lýsa útfærsl­una hverju sinni og hafa sölu­ferlin opin, m.a. með til­liti til jafn­ræð­i­sjón­ar­miða. Við úrvinnslu eigna hefur meg­in­mark­miðið þó, eftir sem áður, verið að hámarka end­ur­heimtur eigna og þannig tak­marka það tjón sem banka­hrunið mun á end­anum valda Seðla­banka Íslands.“

Umboðsmaður Alþingis gagnrýndi

Í októ­ber 2015, rúmum mán­uði áður en Sig­mundur Davíð sam­þykkti und­an­þág­una frá upp­lýs­inga­lögum fyrir ESÍ, þá birti Umboðs­maður Alþingis ítar­lega umfjöllun sína um ESÍ. Í bréf hans var meðal ann­ars fjallað um það að ekki hafi verið fyrir hendi laga­heim­ild fyrir stofnun félags­ins í upp­hafi. „Ég fæ ekki séð að ótví­ræður laga­grund­völlur hafi verið til staðar þegar verk­efni Seðla­banka Íslands á sviði umsýslu og fyr­ir­svars til­tek­inna krafna og ann­arra eigna bank­ans voru færð til einka­hluta­fé­lags í eigu bank­ans. (…) Ég tel mik­il­vægt að ef það er á annað borð vilji stjórn­valda að við­halda því fyr­ir­komu­lagi að verk­efni Seðla­banka Íslands séu falin sér­stöku einka­hluta­fé­lagi í eigu bank­ans verði leitað eftir afstöðu Alþingis til þess hvort setja eigi slíka heim­ild í lög,“ segir meðal ann­ars í bréf­inu.

Seðla­banki Íslands svar­aði þessu bréf Umboðs­manns, og taldi þessa athuga­semd ekki eiga við rök að styðj­ast. Rétti­lega hefði verið staðið að stofnun félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár