Ríkisendurskoðun segir „óheppilegt“ að greining á vanda Íslandspósts liggi ekki fyrir

Íslenska ríkið ætlar að lána Íslands­pósti stórfé þrátt fyrir að ekki liggi fyrir grein­ing á því hvað valdi miklum rekstr­ar­vanda. Rík­is­end­ur­skoðun telur það óheppi­legt að ekki liggi fyrir hvernig eigi að taka á vand­anum áður en fjár­magn sé sett í það.

Íslenska ríkið ætlar að lána Íslands­pósti stórfé þrátt fyrir að ekki liggi fyrir grein­ing á því hvað valdi miklum rekstr­ar­vanda. Rík­is­end­ur­skoðun telur það óheppi­legt að ekki liggi fyrir hvernig eigi að taka á vand­anum áður en fjár­magn sé sett í það.

[links]Rík­is­end­ur­skoðun segir að það sé óheppi­legt að ekki liggi nákvæm­lega fyrir hvernig fyr­ir­hugað sé að taka á rekstr­ar­vanda Íslands­pósts þannig að til­skil­inn árangur náist „áður en tekin er ákvörðun um fram­lög úr rík­is­sjóði til félags­ins.“ Þetta kemur fram i umsögn Rík­is­end­ur­skoð­unar um fjár­auka­lög sem sam­þykkt voru síð­ast­lið­inn föstu­dag.

Í umsögn stofn­un­ar­innar, sem er end­ur­skoð­andi Íslands­pósts, segir einnig að fyrir þurfi að liggja grein­ing á því hvað valdi hinum mikla fjár­hags­vanda sem Íslands­póstur glímir við, en sam­kvæmt fjár­auka­lögum var veitt heim­ild til að veita fyr­ir­tæk­inu allt að 500 millj­óna króna lán í þessum mán­uði til að takast á við hann.

[adspot]Rík­is­end­ur­skoðun virð­ist vera á þeirri skoðun að ekki liggi fyrir hvort að fjár­hags­vand­inn sé vegna einka­rétt­ar­hluta starf­sem­innar (þ.e. dreif­ingu árit­aðra bréfa undir 50 grömmum), vegna alþjón­ustu­kvaða sem lagðar eru á fyr­ir­tækið eða vegna sam­keppn­is­starf­semi sem það stundar. „Þeir mögu­leikar sem fyrir hendi eru á að takast á við vand­ann hljóta að ráð­ast að miklu leyti af nið­ur­stöðu slíkrar grein­ingar,“ segir í umsögn­inni.

Til við­bótar við það fé sem ríkið ætlar að lána Íslands­pósti í á fjár­auka­lögum er enn frek­ari lán­veit­ing fyr­ir­huguð á árinu 2019. Í fjár­lögum þess árs er heim­ild til að end­ur­lána allt að 1,5 millj­örðum króna til Íslands­pósts til að auka eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins vegna fyr­ir­liggj­andi lausa­fjár­vanda þess. Þar segir að skil­yrði lán­veit­ing­ar­innar sé að lánið verði veitt á mark­aðs­for­sendum með full­nægj­andi trygg­ingum. Ekkert liggur þó fyrir um hvernig Íslands­póstur ætlar að greiða umrædd lán til baka.

Milljarðar í fjárfestingar

Íslands­póstur hefur varið tæp­lega sex millj­örðum króna í fjár­fest­ingar á síð­ustu tólf árum. Þeim fjár­munum hefur meðal ann­ars verið varið í að kaupa upp fyr­ir­tæki á nýjum sam­keppn­is­mörk­uðum eða skapa fyr­ir­tæk­inu stöðu á slík­um. Sú sam­keppni er meðal ann­ars við fyr­ir­tæki í aldreif­ingu á pósti á borð við aug­lýs­inga­bréf­um, í hug­bún­að­ar­gerð, í frakt­flun­ingum, í sendi­bíla­þjón­ustu, í send­la­þjón­ustu og prent­smiðju­rekstri.

Árið 2018 hefur verið Íslands­pósti margt erfitt, fyr­ir­tækið tap­aði 161,2 milj­ónum króna á fyrri helm­ing þess.

Staða Íslands­pósts var til umræðu í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í lok nóv­em­ber þar sem Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, var við­mæl­andi Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans.

Þar sagði Ólafur að sam­keppn­is­rekstur Íslands­pósts sé orð­inn með hreinum ólík­ind­um. Það sé eins og stjórn fyr­ir­tæk­is­ins hafi mis­skilið eig­enda­stefnu rík­is­ins fyrir þau félög þar sem ríkið á hlut, þar sem stendur að þau félög skuli stuðla að sam­keppni. „Það er eins og að stjórn Íslands­pósts hafi mis­skilið þetta þannig að hún eigi að keppa við allt sem hreyf­ist hel­st[...]„Ef maður fer í póst­hús þá er það í sam­keppni við sjopp­una í næstu götu, við bóka- og rit­fanga­versl­un­ina, við leik­fanga­búð­ina, við minja­gripa­versl­un­ina, af því að póst­ur­inn er kom­inn á fullt í smá­sölu á öllum þessum vör­u­m.“

Félag atvinnu­rek­enda hefur farið fram á það við sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið að fram­kvæmd verði óháð úttekt á starf­semi Íslands­pósts. „Eina leiðin sem þing­menn, sem eiga að skuld­binda einn og hálfan millj­arð af okkar pen­ing­um, inn í þessa hít sem þessi rekstur virð­ist vera að verða, eina leiðin fyrir þá að fá skýr svör við spurn­ingum um það hvaða ákvarð­anir hafa verið teknar á und­an­förnum árum og hverjir bera á byrgð á þeim er að það verði gerð ein­hvers­konar óháð úttekt,“ sagði Ólafur í þætt­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár