Aflandskrónueigendum hleypt út - Mokgræða á þolinmæðinni

Þol­in­móðir aflandskrónu­eig­endur sjá ekki eftir því að hafa beðið með að fara út úr íslensku hag­kerfi með krón­urnar sínar. Þeir geta nú fengið 37 pró­sent meira fyrir þær en Seðla­banki Íslands bauð sum­arið 2016.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rík­is­stjórnin hefur sam­þykkt að leggja fram frum­varp sem gerir eig­endum aflandskrónu­eig­enda kleift að fara með þær út úr íslensku hag­kerfi og milli­færa á erlenda reikn­inga. Um er að ræða 84 millj­arða króna sem aflandskrónu­eig­end­urnir fá að skipta á álands­mark­aði.

[links]Upp­runa­lega var aflandskrón­ustabb­inn 314 millj­arðar króna en hann hefur minnkað jafnt og þétt með ýmsum aðgerðum Seðla­banka Íslands á meðan að höft voru við lýði. Ein slík leið var fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans, sem virk­aði þannig að óþol­in­móðum aflandskrónu­eig­endum bauðst að skipta á krón­unum sínum fyrir evrur fjár­festa sem vildu inn í landið gegn því að kaupa evr­urnar á yfir­verði. Við það gáfu aflandskrónu­eig­end­urnir eftir virði en þeir sem keyptu krónur þeirra fengu allt að 20 pró­sent virð­is­aukn­ingu. Seðla­bank­inn var svo milli­göngu­að­ili í við­skipt­unum.

[adspot]Sumarið 2016 gerði Seðla­banki Íslands svo vog­un­ar­sjóðum sem eiga uppi­stöðu aflandskrón­anna til­boð sem hljóð­aði upp á það að þeir gætu fengið hverja evru á 190 krónur. þeir sem nú fá að fara höfn­uðu því til­boði og ljóst er að það marg­borg­aði sig fyrir þá. Í dag er skráð gengi evru 138,2 krónur sem þýðir að þeir fá rúm­lega 37 pró­sent fleiri evrur fyrir krón­urnar sínar en þeir hefðu fengið í júní 2016, hefðu þeir geng­ist við til­boði Seðla­banka Íslands.

Þrenns konar heimildir

Í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu segir að hinar auknu heim­ildir fyrir aflandskrónu­eig­endur til að yfir­gefa íslenskt hag­kerfi séu þrenns konar. „Í fyrsta lagi er um að ræða almenna heim­ild fyrir alla aflandskrónu­eig­endur til að losa aflandskrónu­eignir til að kaupa erlendan gjald­eyri og flytja á reikn­ing erlendis. Í öðru lagi heim­ild fyrir aflandskrónu­eig­endur, sem átt hafa aflandskrónu­eignir sam­fellt frá 28. nóv­em­ber 2008, til að losa aflandskrónu­eignir undan tak­mörk­unum lag­anna. Í þriðja lagi heim­ild fyrir ein­stak­linga til að taka út allt að 100 millj. kr. af reikn­ingum háðum sér­stökum tak­mörk­unum. Þær breyt­ingar sem hér eru lagðar til taka mið af því að ekki sé grafið undan virkni hinnar sér­stöku bind­ing­ar­skyldu á fjár­magnsinn­streymi.“

Hefðum getað þurrkað vandann upp

Aflandskrónu­með­ferðin er hápóli­tískt mál. Dag­inn eftir að til­kynnt var um losun fjár­magns­hafta í mars 2017 hélt Bene­dikt Jóhann­es­son, þá fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, ræðu á Alþingi. Þar sagði hann að mög­u­­­legt hefði verið að þurrka upp aflandskrón­u­vand­ann í kringum útboðið sem Seðla­­­bank­inn hélt um mitt ár 2016, með því að lækka gengið aðeins. Það hafi ekki verið gert og þótt að þá lægi fyrir að skyn­­­sam­­­legt hefði verið að gera það. „Í ráðu­­­neyt­inu heyri ég að lík­­­­­legt sé að á þeim tíma hefði verið hægt að þurrka snjó­­­hengj­una svo­­­nefndu upp að mestu leyti ef gengið hefði verið á milli 165 og 170 krónur á evru. Nú sjáum við glöggt að skyn­­­sam­­­legt hefði verið að ljúka við­­­skipt­unum á því gengi.

Þá­ver­andi stjórn­­­völd ákváðu að gera það ekki. Kannski vegna þess sjón­­­­­ar­miðs að með því hefði verið gert allt of vel við aflandskrón­u­eig­end­­­ur. Eftir á sjá allir að Íslend­ingar hefðu grætt mjög mikið á því að ljúka dæm­inu þá, en menn misstu af því tæki­­­færi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár