Sólveig Anna: Kölluð vanstillt, galin og vitfirrt

Formaður Eflingar segir alls­konar hluti hafa verið sagða um kröfur verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar sem hafi verið fram­settir á óábyrgan og ótrú­legan máta. Engin hafi hins vegar dregið í land eða beðist afsök­unar á þeim.


„Ég hef verið kölluð van­stillt, galin, vit­firrt. Geð­heilsa mín og and­legt heil­brigði hefur verið dregið mjög í efa.“

Þetta segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, um þá umræðu sem stundum hefur geisað um hana á sam­fé­lags­miðlum og víðar. Slíkar árásir gegn henni per­sónu­lega snú­ist oftar en ekki að ætl­uðu ástandi geð­heilsu hennar og hug­mynda­heimi.

Sólveig Anna er við­mæl­andi Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 sem frum­sýndur verður á Hring­braut í kvöld klukkan 21:00. Þar ræðir hún meðal ann­ars ítar­lega um stöðu mála í kjara­deilum. Hægt er að sjá stiklu úr þætti kvölds­ins hér að neðan.

Sólveig Anna segir að það hafi að vissu leyti komið á óvart hversu for­hert fólk leyfði sér að vera þegar það tal­aði um kröfur verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. „Að þær væru kokk­aðar upp af bil­uðu fólk. Leið­ara­höf­undar lýstu því yfir eins og ekk­ert væri að hér væri efna­hags­leg nið­ur­sveifla hafin. Það var ekki talað um vægan sam­drátt. Alls konar hlutir sem voru sagðir á mjög óábyrgan og ótrú­legan máta. Fyrir mig sem mann­eskju sem hef ekki haft aðgang að risa­stóru plat­formi þá fannst mér ótrú­legt hvað fólk sem hefur aðgang að stóru plat­formi leyfi sér að segja svona, eins og ekk­ert væri, en þurfti svo ekki að draga í land, biðj­ast afsök­unar eða nokkurn skap­aðan hlut.“

[adspot]Hún hefur einnig legið undir ámæli fyrir að vera ein­hvers­konar tól í höndum karla sem ætla sér að koma á sós­íal­ískri bylt­ingu á Íslandi. Þar hefur Sólveig Anna oftar en ekki verið spyrnt saman við Gunnar Smára Egilsson, sem stóð ásamt öðrum að stofnun Sós­í­alista­flokks Íslands.

Sólveig Anna seg­ist einmitt hafa verið „tögguð“ á sam­fé­lags­miðlum og kölluð van­stillt strengja­brúða. „Það hefur stundum verið óþægi­legt en ég hef lagt mig fram við að svara rösk­lega og hef ekki boðið hinn vang­ann. Ég kann það ekk­ert sér­stak­lega vel. Ég held að það hafi borið ágætis árangur því ég get ekki betur séð en að það hafi slankað í mesta hasarnum. Ég upp­lifði það alla­vega þannig. Minn lær­dómur af því er þá sá að í stað þess að vera göf­ug­lynd og bjóða hinn vang­ann þá borgar það sig fyrir vinnu­aflið, fyrir tals­menn verka- og launa­fólks að svara bara af fullri hörku.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár