Áhugi á óverðtryggðum fasteignalánum eykst

Eftir því sem verð­bólgu­vænt­ingar hafa farið upp, hafa neyt­endur sýnt því meiri áhuga að taka óverð­tryggð lán.

Fólk hefur í meira mæli á þessu ári tekið óverð­tryggð lán heldur en árin á undan, en verð­tryggð hús­næð­is­lán eru þó enn vin­sælli hjá þeim sem standa í fast­eigna­við­skiptum.

Frá þessu var greint í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Samkvæmt tölum frá stóru bönk­unum þremur, Íslands­banka, Arion banka og Lands­bank­anum, hafa verð­tryggð lán verið mun vin­sælli og á heild­ina litið er um 70 pró­sent hús­næð­is­lána verð­tryggður en um 30 pró­sent óverð­tryggður.

Á þessu ári hefur fólk hins vegar meira verið að taka óverð­tryggð lán, og hefur hlut­fallið verið á milli 40 og 50 pró­sent í óverð­tryggða flokknum á móti 50 til 60 pró­sent í verð­tryggða flokknum.

Einn munur á verð­tryggðum og óverð­tryggðum lánum er sá, að greiðslu­byrðin er þyngri á óverð­tryggðu lán­unum fyrstu árin.

Eins og ítar­lega hefur verið fjallað um í frétta­skýr­ingum á vef Kjarnans að und­an­förnu, þá bendir margt til þess að verð­bólga muni á næst­unni fara hækk­andi. Þá hafa spár grein­enda um horfur á fast­eigna­mark­aði verið mis­vísandi, en grein­ing Arion banka spári verð­lækkun á mark­aði, að raun­virði, horft til næstu þriggja ára.

Flestar spár gera þó ráð fyrir að verð hækki tölu­vert minna á næstu árum en reyndin hefur verið und­an­farin ár. Fast­eigna­verðs­hækkun mælist nú 3,9 pró­sent á árs­grund­vellli, en hún mæld­ist 23,5 pró­sent á vor­mán­uðum í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár