Stuðningur við ríkisstjórnina mælist undir 40 prósent í fyrsta sinn

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist nú með undir 20 pró­sent fylgi í fyrsta sinn á kjör­tíma­bil­inu. Allir fimm stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir hafa bætt við sig fylgi frá síð­ustu kosn­ingum en rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir mæl­ast með sífellt minni stuðn­ing.

Leiðtogar ríkisstjórnarflokkanna.
Leið­togar rík­is­stjórn­ar­flokk­anna. Mynd: Samsett

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttir hefur ein­ungis stuðn­ing 37,9 pró­sent lands­manna sam­kvæmt nýrri könnun MMR. Stuðn­ingur við hana hefur aldrei mælst lægri og þetta er í fyrsta sinn sem hann fer undir 40 pró­sent í könn­unum. Þessi nið­ur­staða er nokkuð önnur en í nýj­ustu könn­unum Gallup sem sýnt hafa að stuðn­ingur við stjórn­ina hafi bragg­ast lít­il­lega eftir mikið fall frá því að hún var mynduð. Þar mælist stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina 49,8 pró­sent.

Í des­em­ber sögð­ust 66,7 pró­sent styðja stjórn­ina. Sá stuðn­ingur minnk­aði með hverri könnun fram í byrjun októ­ber þegar hann skyndi­lega reis að nýju í 47,5 pró­sent. Á þeim mán­uði sem er lið­inn frá þeim tíma hefur stuðn­ingur þjóð­ar­innar við rík­is­stjórn­ina minnkað um tæp tíu pró­sentu­stig.

Sjálfstæðisflokkurinn með undir 20 prósent fylgi

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur ekki mælst með lægra fylgi í næstum þrjú ár í könn­unum MMR, eða frá því í jan­úar 2016. Fylgi flokks­ins mælist nú 19,9 pró­sent og er það í fyrsta sinn á þessu kjör­tíma­bili sem flokk­ur­inn fer undir 20 pró­sent fylgi.

Nið­ur­staða nýj­ustu könn­unar fyr­ir­tæk­is­ins er raunar í ein­ungis þriðja sinn sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með undir 20 pró­sent fylgi. Hin tvö skiptin voru í aðdrag­anda síð­ustu þing­kosn­inga, þegar ein könnun mældi fylgi flokks­ins 19,9 pró­sent, og könnun sem birt var 20. jan­úar 2016, þegar fylgi flokks­ins mæld­ist 19,5 pró­sent.

Hinir tveir stjórn­ar­flokk­arnir, Vinstri græn og Framsókn, bæta lít­il­lega við sig milli kann­ana. Fylgi Vinstri grænna, flokks for­sæt­is­ráð­herr­ans Katrínar Jak­obs­dóttur, mælist nú 11,5 pró­sent en fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins 8,8 pró­sent.

Fylgi allra rík­is­stjórn­ar­flokk­anna er þó umtals­vert frá kjör­fylgi þeirra. Í kosn­ing­unum fyrir rúmu ári fengu þeir sam­an­lagt 52,8 pró­sent fylgi. Saman mæl­ast flokk­arnir þrír nú með 40,1 pró­sent fylgi, sem myndi lík­ast til ein­ungis skila þeim 25 til 26 þing­mönnum ef kosið yrði í dag. Því væri ómögu­legt að mynda meiri­hluta­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks við þær aðstæður.

Allir stjórnarandstöðuflokkar með meira fylgi en í kosningum

Bæði Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins mæl­ast nú með fylgi sem er yfir því sem þeir fengu í kosn­ing­unum í fyrra. Alls segj­ast 12,1 pró­sent lands­manna að þeir myndu kjósa Mið­flokk­inn og 6,9 pró­sent að þeir myndu kjósa Flokk fólks­ins.

Nokkur fylgni virð­ist vera á milli dalandi fylgi Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks og aukn­ingar á fylgi þess­ara tveggja stjórn­ar­and­stöðu­flokka, þegar þró­unin er skoðuð yfir lengra tíma­bil. Því virð­ast flokk­arnir fjórir vera að fiska eftir atkvæðum á svip­uðum slóðum.

[adspot]Hin stjórn­ar­and­stöðu­blokk­inn, sú frjáls­lynd­ari, mælist líka með umtals­vert meira fylgi en í kosn­ing­unum í októ­ber 2017. Sam­fylk­ingin er aðeins farin að dala eftir mikla sókn í könn­unum und­an­farið og mælist nú með 16,6 pró­sent fylgi. Hún fékk 12,1 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum. Píratar tapa tveimur pró­sentu­stigum milli kann­ana en mæl­ast samt með 11,3 pró­sent fylgi, sem er rúmum tveimur pró­sentu­stigum meira en þeir fengu í síð­ustu kosn­ingum. Þá mælist Viðreisn með 7,8 pró­sent fylgi, eða rúmu pró­senti meira en í síð­ustu kosn­ingum. Fylgi flokks­ins dalar einnig um tæp tvö pró­sentu­stig milli kann­ana.

Athygli vekur að fjöldi þeirra sem myndu kjósa eitt­hvað annað er mun hærri nú, 4,7 pró­sent, en í síð­ustu könnun var hún 2,3 pró­sent. Fjöldi þeirra sem ætlar ekki að kjósa þá flokka sem eru með full­trúa á þingi hefur því tvö­fald­ast milli mán­aða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár