Allir ráðherrabílarnir verða rafbílar

Rík­is­stjórnin sam­þykkti til­lögu for­sæt­is­ráð­herra um að raf­bíla­væða allan ráð­herra­bíla­flot­ann. Það verður gert „á næstu árum“.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lagði tillöguna fram.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra lagði til­lög­una fram. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra lagði í morgun fram til­lögu á rík­is­stjórn­ar­fundi um að allar ráð­herra­bif­reiðar yrðu raf­væddar. Tillagan var sam­þykkt. Fram­kvæmdin er þó ekki sér­stak­lega tíma­sett að öðru leyti en að til standi að skipta út öllum ráð­herra­bíl­unum fyrir raf­magns­bíla á næstu árum.

Í til­kynn­ingu segir að þetta sé gert í sam­ræmi við lofts­lags­stefnu Stjórn­ar­ráðs­ins og aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum.

Á rík­is­stjórn­ar­fund­inum var sam­þykkt að hefja þegar und­ir­bún­ing að útboðum í takt við þróun raf­bíla á mark­aði hér á landi. “Stefnt er að því að skipta út öllum ráð­herra­bif­reiðum á næstu árum með það að mark­miði að þeim tíma liðnum verði allar ráð­herra­bif­reiðar knúnar raf­magni.“

Í til­kynn­ing­unni segir að þegar hafi verið settar upp raf­hleðslu­stöðvar á bíla­stæði for­sæt­is­ráðu­neytis, umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytis, dóms­mála­ráðu­neytis, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytis og atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytis og að stefnt sé að upp­setn­ingu slíkra stöðva á bíla­stæðum allra ráðu­neyta á næstu mán­uðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár