Einkaskilaboð frá 81 þúsund Facebook-notendum til sölu

Einka­sam­töl tug­þús­unda not­enda sam­fé­lags­mið­ils­ins víða um heim eru komin í hendur hakk­ara sem hyggj­ast selja þau á tólf krónur stykkið.

Tölvu­þrjótar í Rúss­landi hyggj­ast selja einka­skila­boð frá meira en 80 þús­und Facebook-not­endum þar sem skila­boð frá hverjum not­anda muni kosta tólf krónur. Þetta kemur fram í frétt á vef BBC.

Samkvæmt frétt­inni kom umræddur leki fyrst í ljós í sept­em­ber síð­ast­liðnum þegar not­andi að nafni "FBSaler" sagð­ist búa yfir upp­lýs­ingum um 120 millj­ónir Facebook-not­enda á ensku spjall­svæði. BBC lét rann­saka sann­leiks­gildi stað­hæf­ing­ar­innar og hefur stað­fest að einka­skila­boð meira en 81 þús­und aðganga séu í höndum tölvu­þrjót­anna.

Umræddir aðgangar eru frá fjöl­mörgum löndum, en flestir þeirra eru frá Rúss­landi og Úkraínu. Meðal ann­arra landa sem stolnu aðgang­arnir koma frá eru Banda­ríkin, Bretland og Brasilía einnig nefnd. Skila­boðin hafa að geyma ýmsar per­sónu­upp­lýs­ingar, en meðal þeirra sem lekið hafa eru ferða­ljós­myndir, spjall um nýlega Depeche Mode tón­leika og kvart­anir vegna tengda­sonar.

Hakk­ar­arnir virð­ast hafa teng­ingu við Rússland, en sam­kvæmt frétt­inni var ein vef­síða sem birti upp­lýs­ingar um aðgang­ana sett upp í Sankti Pét­urs­borg. Einnig birtu þeir aug­lýs­ingu sem dreift var um netið, en í henni buð­ust þrjót­arnir til að selja aðgang að skila­boðum hvers not­anda fyrir tíu sent, sem jafn­gildir tólf krónum.

Samkvæmt Facebook hefur upp­lýs­ing­unum verið aflað í gegnum vafra­við­bót (e. extension) sem not­end­urnir höfðu hlaðið niður. Ekki hefur enn verið greint frá því hvaða vafra­við­bót er um að ræða en Guy Rosen tals­maður Facebook segir sam­fé­lags­mið­il­inn hafa séð fyrir því að hún væri ekki lengur aðgengi­leg á vefnum. Rosen bætir einnig við að mið­ill­inn vinni nú með lög­reglu auk rúss­neskra yfir­valda í því að síðan sem birti upp­lýs­ing­arnar yrði tekin niður.

Facebook þver­tekur þó fyrir það að lek­inn sé vegna eigin mis­taka og bætir við að öryggi mið­ils­ins sé ekki í hættu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár