„Kannski ætti lögmaðurinn að prófa sitt eigið meðal“

Stjórn­endur síð­unnar Karlar gera merki­lega hluti hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu.

Stjórn­endur facebook-síð­unnar Karlar gera merki­lega hluti hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem fram kemur að síðan sé lif­andi vett­vangur fyrir konur til að fá útrás í heimi þar sem karllæg gildi eru metin ofar kven­lægum. Þar sé nú á tíunda þús­und kvenna sem í lang­flestum til­fellum gera góð­lát­legt grín að frétta­mati fjöl­miðla þar sem hver karla­hóp­ur­inn á fætur öðrum er mærður fyrir skóflustungur og bolta­spark á meðan fram­lag kvenna til sam­fé­lags­ins er sjaldan til umfjöll­unar.

Undir yfir­lýs­ing­una skrifa Sóley Tóm­as­dóttir, Hildur Lilli­endahl Vigg­ós­dóttir og Sæunn Ingi­björg Mar­in­ós­dóttir.

Forsaga máls­ins er sú að Jón Steinar Gunn­laugs­son hæsta­rétt­ar­lög­maður lýsti í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í gær nei­kvæðum ummælum sem sögð eru um hann í rúm­lega níu þús­und manna lok­uðum hópi á Facebook. Þar væri hann nafn­greindur og meðal ann­ars kall­aður við­bjóður og kvik­indi. Þá væri það sagt til­efni til að skála í kampa­víni ef hann deyr. Þeir sem skrifa í hópnum koma fram undir nafni.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að í stórum og virkum hópi séu inn­legg og ummæli mis­fyndin og mis­við­eig­andi eins og gengur og rit­stjórnir fjöl­miðla með athuga­semda­kerfi ættu að þekkja mæta­vel. „Í umfjöllun um hóp­inn und­an­farna daga hafa verið tínd til ummæli sem sum hver hafa verið óvið­eig­andi. Þó skal tekið fram að flest þeirra eru látin falla vegna við­tals þar sem þekktur verj­andi kyn­ferð­is­af­brota­manna ætl­að­ist til þess að þolendur fyr­ir­gæfu ger­endum sínum.

Í við­tal­inu kom Jón Steinar Róbert Downey til varnar, en hann var dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn fjórum stúlkum fyrir tíu árum. Kannski ætti lög­mað­ur­inn að prófa sitt eigið meðal og fyr­ir­gefa kon­unum sem tala um hann á inter­net­inu frekar en að hringja í þær og skrifa um þær greinar í blöðin,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

[adspot]

Ætla að gæta að umræðan sé innan siðferðismarka

Þær telja að síðan Karlar gera merki­lega hluti sé mik­il­vægur og vald­efl­andi vett­vangur en til­vist hans verði hvorki útskýrð eða rök­rædd við mann sem skrifar feðra­veldi innan gæsalappa og skilur ekki hvað „öruggt svæði“ er.

„Við munum hér eftir sem hingað til leggja okkur fram um að stýra þessum hóp og gæta þess að þar sé umræða innan sið­ferð­is­marka þó vissu­lega geti eitt­hvað farið fram­hjá okkur eins og ein­staka ummæli sem birt hafa verið í fjöl­miðlum að und­an­förnu sýna,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár