Segir ekki fara Guðmundi vel að umgangast sannleikann, lög og reglur með réttum hætti

Stjórn­ar­for­maður Frétta­blaðs­ins sendir frá sér yfir­lýs­ingu til að svara yfir­lýs­ingu Guðmunar í Brimi, sem setur fréttir Frétta­blaðs­ins í sam­hengi við störf stjórn­ar­for­manns­ins fyrir Vinnslu­stöð­ina sem Guð­mundur hefur staðið í deilum við.

Einar Þór Sverr­is­son stjórn­ar­for­maður eig­anda Frétta­blaðs­ins og vara­for­maður stjórnar Vinnslu­stöðv­ar­innar hf. í Vest­manna­eyjum hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu í kjöl­far þess að Guð­mundur Krist­jáns­son, kenndur við Brim, sak­aði blaðið um að láta störf Einars fyrir Vinnslu­stöð­ina ráða frétta­flutn­ingi af meintum athuga­semdum Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins við við­skipta­hætti Guð­mundar.

[links]Einar segir að Guð­mundur ákveði að gera lítið úr öllum blaða­mönnum og rit­stjórum Frétta­blaðs­ins, vega að starfs­heiðri þeirra og dylgi um að þeir lúti boð­valdi stjórnar félags­ins varð­andi frétta­flutn­ing. Samkvæmt fjöl­miða­lögum séu rit­stjórnir fjöl­miðla sjálf­stæðar og lúti ekki boð­valdi eig­enda eða stjórn­ar­manna. Þær reglur eru árétt­aðar í rit­stjórn­ar­reglum Frétta­blaðs­ins og er þeim fylgt í starf­semi Frétta­blaðs­ins.

„Ég sem for­maður stjórnar útgáfu­fé­lags Frétta­blaðs­ins skrifa ekki fréttir Frétta­blaðs­ins, ákveð ekki efn­is­tök, eða veit yfir­höfuð hvað birt­ist í blaði morg­un­dags­ins. Þannig er það, hefur verið og mun verða. Störf mín fyrir Vinnslu­stöð­ina í Vest­manna­eyjum og útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins tengj­ast ekki á nokkurn hátt,“ segir Einar.

Einar seg­ist oft hafa séð til þess að það fari ekki Guðmundi vel að umgang­ast sann­leik­ann og lög og reglur með réttum hætti. Þann veik­leika sinn getur hann ekki yfir­fært yfir á aðra. Um yfir­lýs­ingu Guð­mundar verður það eitt sagt að margur heldur mig sig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár