„Stjórnarformaður Fréttablaðsins er einnig lögmaður meirihlutaeigenda Vinnslustöðvarinnar“

Guð­mundur Krist­jáns­son hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna for­síðu­fréttar Frétta­blaðs­ins í morgun. Sam­keppn­is­eft­ir­litið sendi einnig frá sér til­kynn­ingu vegna máls­ins.

Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri og stærsti eig­andi HB Granda, setur frétta­flutn­ing Frétta­blaðs­ins af meintum athuga­semdum Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins við við­skipta­hætti Guð­mundar í sam­hengi við það að Einar Þór Sverr­is­son, stjórn­ar­for­maður Frétta­blaðs­ins, sé einnig lög­fræð­ingur meiri­hluta­eig­enda í Vinnslu­stöð­inni í Vest­manna­eyjum. Guð­mundur hefur lengi átt í ill­deilum við þann hóp, en hann var minni­hluta­eig­andi í Vinnslu­stöð­inni þar til í vik­unni, þegar hann seldi þann hlut á 9,4 millj­arða króna til FISK Seafood, útgerð­ar­hluta Kaup­fé­lags Skag­firð­inga.

[links]Í frétt Frétta­blaðs­ins sagði að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefði gert fjórar alvar­legar athuga­semdir við við­skipta­hætti Guð­mundar Krist­jáns­son­ar, aðal­eig­anda Brims og HB Granda, og segir að ef frum­mat ­stofn­un­ar­innar sé á rökum reist sé um að ræða „al­var­leg brot“ á sam­keppn­is­lög­um.

Niðurstaða í málinu liggur ekki fyrir

Eft­ir­litið sendi sjálft frá sér til­kynn­ingu í dag vegna umfjöll­un­ar­innar þar sem segir að til­kynnt hafi verið um það í júlí til kaup­hallar og birt opin­ber­lega að til skoð­unar væru mál tengd Guðmundi. Einkum væri til skoð­unar hvort breyt­ingar hafi orðið á yfir­ráðum í HB Granda þegar Brim eign­að­ist veru­legan hlut í félag­inu í maí síð­ast­liðnum og tengsl fyr­ir­tækja í gegnum eign­ar­hluti og stjórn­ar­setu Guð­mundar sem til staðar voru á þeim tíma eða áður.

[adspot]Í til­kynn­ingu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins segir: „Rétt er taka skýrt fram að end­an­leg nið­ur­staða í fram­an­greindu máli liggur ekki fyrir. Það frum­mat sem kynnt var aðilum máls byggði á fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingum á þeim tíma. Var frummatið sett fram til þess að gefa hlut­að­eig­andi aðilum tæki­færi til þess bregð­ast við því og koma skýr­ingum og sjón­ar­miðum á fram­færi. Af eðli máls leiðir að umrætt frum­mat getur því breyst.

Aðilar máls­ins hafa nú komið á fram­færi skýr­ingum og sjón­ar­miðum vegna máls­ins, þ.á.m þess efnis að Guð­mundur var geng­inn úr stjórn Vinnslu­stöðv­ar­innar þegar athugun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins hófst. Er Sam­keppn­is­eft­ir­litið nú að fara yfir fram komnar skýr­ingar og upp­lýs­ingar og afla frek­ari upp­lýs­inga áður en ákvörðun verður tekin um hvort þörf sé íhlut­unar í mál­inu.“

Stjórnarformaður er lögfræðingur VSV

Guð­mundur sendi síðan sjálfur til­kynn­ingu rétt eftir hádegi í dag. Þar segir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi kaup Brims á hluta­bréfum í HB Granda í athugun og hafi sent félög­unum af því til­efni erindi í júlí á þessu ári. „Þar kemur fram að Sam­keppn­is­eft­ir­litið skoðar fjögur atriði. Í fyrsta lagi hvort til­kynn­ing­ar­skyldur sam­runi hafi átt sér stað þegar Brim hf. eign­að­ist þann 4.maí 34 pró­sent hlut í HB Granda. Það er enn í skoðun.

Í öðru lagi hvort það stand­ist 10.gr. sam­keppn­islaga að aðal­eig­andi Brims hf. sé for­stjóri HB Granda. Það er enn í skoðun.

[adspot]Í þriðja lagi hvort að stjórn­ar­seta aðal­eig­andi Brims hf. í stjórn Vinnslu­stöðv­ar­innar brjóti gegn 10.gr. sam­keppn­islaga. Það er rangt að Guð­mundur Krist­jáns­son hafi í vor verið í stjórn Vinnslu­stöðv­ar­innar og þarfn­ast því ekki frek­ari skoð­unar.

Í fjórða lagi er athugað hvort að til­kynn­inga­skyldur sam­runi hafi átt sér stað þegar Brim hf. keypti allt hlutafé í Ögurvík árið 2016. Sam­skipti áttu sér stað við Sam­keppn­is­eft­ir­litið á þeim tíma og var það sam­eig­in­leg nið­ur­staða þá að þessi við­skipti væru ekki til­kynn­inga­skyld og er það atriði ekki lengur til skoð­unar.“

Síðan segir Guð­mundur að málið hafi verið til umfjöll­unar í fjöl­miðlum í byrjun júlí á þessu ári og þá hafi hann sagt í við­tali við Morg­un­blaðið að eðli­legt væri að eft­ir­lits­stofn­anir væru að fylgj­ast með við­skipta­líf­inu og er hann enn þeirrar skoð­unar. „En vegna for­síðu­fréttar Frétta­blaðs­ins má geta þessa að stjórn­ar­for­maður Frétta­blaðs­ins er einnig lög­maður meiri­hluta­eig­enda Vinnslu­stöðv­ar­innar í Vest­manna­eyjum hf. og vara­for­maður stjórnar VSV.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár