Samkeppniseftirlitið gerir athugasemdir við viðskiptahætti Guðmundar

Vitnað er til bréfs Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins vegna við­skipta­hátta Guð­mundar Krist­jáns­sonar, útgerð­ar­manns, í Frétta­blað­inu í dag.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið gerir fjórar alvar­legar athuga­semdir við við­skipta­hætti Guð­mundar Krist­jáns­sonar, aðal­eig­anda Brims og HB Granda, og segir að ef frum­mat stofn­un­ar­innar sé á rökum reist sé um að ræða „alvar­leg brot“ á sam­keppn­is­lögum.

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Tilkynnt var um það í gær að Brim hf., nú Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, hefði selt þriðj­ungs­hlut sinn í Vinnslu­stöð­inni fyrir 9,4 millj­arða króna til FISK Seafood, útgerð­ar­hluta Kaup­fé­lags Skag­firð­inga.

Fyrr í mán­uð­inum var síðan greint frá því að HB Grandi hygð­ist kaupa Ögurvík af Brimi, fyrir 12,3 millj­arða króna. Á skömmum tíma hefur Brim til­kynnt um sölu á eignum upp á 21,7 millj­arð króna.

Fram kemur í bréfi frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu, sem vitnað er til í Mark­aðnum í dag, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um við­skipti, að sú staða að aðal­eig­andi Brims sé for­stjóri HB Granda kunni að leiða til brota á sam­keppn­is­lögum. Guð­mundur tók við sem for­stjóri HB Granda í júní eftir kaup á kjöl­festu hlut í fyr­ir­tæk­inu í vor, en eign­ar­hlut­ur­inn nemur um 37 pró­sentum af heild­ar­hlutafé.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir að það sé var­huga­vert í sam­keppn­is­legu til­liti að sami aðili, sem eigi allt hlutafé í einu félagi, sé á sama tíma for­stjóri félags á sama mark­aði og stjórn­ar­maður í því þriðja, að því er fram kemur í Frétta­blað­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár