Sálfræðiþjónusta aukin fyrir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn

Sam­komu­lag um sál­fræði­þjón­ustu eftir stór áföll fyrir slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­menn hefur verið sam­þykkt. Formaður LSS segir þetta mik­il­vægt skref.

Slökkviliðsmenn að störfum.
Slökkvi­liðs­menn að störfum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sam­komu­lag um sál­fræði­þjón­ustu eftir stór áföll fyrir slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­menn hefur verið sam­þykkt milli Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og LSS, Lands­sam­bands slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­manna. Frá þessu er greint í frétt á vef­síðu LSS.

Í sam­komu­lag­inu kemur fram að greiður og tryggur aðgangur að sál­fræði­þjón­ustu sé lyk­il­at­riði fyrir slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­menn, sem í dag­legum störfum þurfa að glíma við stór áföll, slys og dauðs­föll.

„Í þessu sam­komu­lagi felst við­ur­kenn­ing á því hversu mik­il­vægt það er að þessar stéttir fái full­nægj­andi sál­fræði­legan stuðn­ing strax í kjöl­far stórra áfalla, segir Jón Guð­laugs­son, vara­for­maður Félags slökkvi­liðs­stjóra á Íslandi.

Sam­komu­lagið felur í sér að slökkvi­liðs­stjórar geta óskað eftir sál­fræði­þjón­ustu þegar þeir telja þörf á fyrir starfs­menn þeirra og það sama gildir um sjúkra­flutn­inga­menn. Lands­sam­band Slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­manna mun einnig hvetja ríkið til þess að veita sjúkra­flutn­inga­mönnum sem starfa á þess vegum sömu þjón­ustu.

Þá hefur Neyð­ar­línan sam­þykkt að inn­leiða ferli sem á að virkja sál­frænan stuðn­ing við vissar aðstæður. Um er að ræða til­rauna­verk­efni sem verður end­ur­metið um ára­mót.

Magnús Smári Smárason, for­maður Lands­sam­bands slökkvið­liðs- og sjúkra­flutn­inga­manna, fagnar sam­komu­lag­inu og seg­ist von­ast til þess að fá svar sem allra fyrst frá rík­inu því þetta mál brenni á þessum stéttum sem dag­lega horfast í augu við mjög erf­iðar aðstæður, sem oft er erfitt að vinna úr sem ein­stak­lingur. „Þetta er afar mik­il­vægt skref í heild­rænni hugsun um vel­ferð okkar starfs­manna því eins og almenn­ingur veit þá geta bæði áföll og and­legt álag leitt af sér fjöl­marga kvilla með ófyr­ir­sjá­an­legum afleið­ingum,“ segir hann.

Samn­ingur hefur verið gerður við Sál­fræð­ing­ana á Lyng­hálsi til að sinna þess­ari þjón­ustu á lands­vísu, segir í frétt­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár