Danskir menntaskólar berjast gegn unglingadrykkju

Fjöldi mennta­skóla í Danmörku hefur inn­leitt reglur til að stemma stigu við áfeng­is­notkun nem­enda sinna á böllum og hátíðum. Regl­urnar fela meðal ann­ars í sér að ein­ungis verði hægt að selja nem­end­unum bjór á skipu­lögðum hátíðum skól­ans.

Mennta­skólar í Danmörku eru í bar­áttu við áfeng­is­notkun nem­enda sinna, en rekt­orar skól­anna eru ánægðir með nýjar reglur sem ætl­aðar eru til að „stöðva“ drykkju­menn­ing­una. Regl­urnar fela meðal ann­ars í sér bann á sölu á sterku áfengi og tak­mörkun á áfeng­is­kaupum skól­ans. Þetta kemur fram í frétt á vef danska rík­is­út­varps­ins.

Bara bjór á böllum

Nemendur danskra mennta­skóla eru að jafn­aði 16-19 ára gamlir, en hefð hefur verið fyrir því að áfengi sé haft við hönd í fjöl­mörgum af skipu­lögðum við­burðum skól­anna. Í fyrra settu mennta­skólar á Fjóni, Sjálandi og Jótlandi hins vegar upp sam­eig­in­legar áfeng­is­reglur í fyrra þar sem mælt var með því að tak­marka sölu áfengis á hátíðum skól­anna. Regl­urnar eru eft­ir­far­andi:

  1. Áfengi er alla jafna ekki leyft í busa­ferðum og öðrum lær­dóms­ferðum. Þó gæti neysla þess verið leyfð með sam­þykki og þátt­töku kenn­ara við kvöld­verð á síð­asta degi.
  2. Í mesta lagi mega mennta­skól­arnir halda fimm skóla­böll á hverju ári. Fyrir þessar hátíðir má áfengi ein­ungis vera keypt í tak­mörk­uðu magni.
  3. Ekki má gefa nem­endum drykki með meira en fimm pró­senta áfeng­is­magni á böllum skól­ans.
  4. Nemendur sem virð­ast hafa drukkið of mikið við komu á böllin verða sendir heim.
  5. Einstaka skólar munu láta nem­endur blása í áfeng­is­mæli við inn­gang­inn á böll­unum. Hafi nem­andi þar meira en 0,5 pró­milla áfeng­is­magn í lík­am­anum sínum verði hann sendur heim. [adspot]

Færri árekstrar eftir innleiðingu reglnanna

Í við­tali við danska rík­is­út­varpið segja rekt­orar mennta­skól­anna við Hró­arskeldu og Rungsted að regl­urnar hafi leitt til mik­illa breyt­inga á skóla­skemmt­un­unum sjálfum.

„Við og aðrir skólar upp­lifðum að áfeng­is­neysla væri mjög mikil, sér­stak­lega á böll­unum. Við getum séð að böllin hafa breyst (eftir inn­leið­ingu regln­anna). Þau hafa orðið huggu­legri á þann hátt að það er meira talað og færri árekstrar sem hafa nei­kvæð áhrif á félags­lífið,“ segir Ruth Kirkegaard, rektor við mennta­skól­ann í Rungsted.

Þess utan vill Ruth meina að regl­urnar hafi hjálpað til við að fjar­lægja félags­legan þrýst­ing við að byrja að drekka áfengi, sem margir ung­lingar finni fyrir. „Með dönsku drykkju­menn­ing­unni gætu sumum fund­ist að þeir þurfi að dreka áfengi þar sem aðrir gera það. Við skynjum það að það hafi orðið létt­ara fyrir þá sem frá­biðja sér áfengi að vera með,“ segir hún.

Foreldrar þurfi að vera með

Þrátt fyrir til­raunir skól­anna til að bjóða nem­endum upp á ung­linga­há­tíðir undir eft­ir­liti full­orð­inna í stað óskipu­lagðra sam­koma segja rekt­orar þeirra að þátt­taka for­eldr­anna sé mik­il­væg. „Við getum ekki gert upp drykkju­menn­ingu heils lands alein. Við þurfum að hafa for­eld­rana með, og til allrar ham­ingju höfum við mik­inn stuðn­ing frá for­eldra­hópnum, þar sem þau hafa stjórn á fyr­ir­par­tíum og geta sett áfeng­is­neysl­unni ein­hver tak­mörk,“ segir Ruth Kirkegaard.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár