Persónuvernd og lögregla skoða afhendingu gagna Barnaverndarstofu

Per­sónu­vernd telur mögu­legt að gögn sem Barna­vernd­ar­stofa afhenti Stund­inni og RÚV hafi brotið í bága við lög.

Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri segir málið vera á borði ákærusviðs.
Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir lög­reglu­stjóri segir málið vera á borði ákæru­sviðs.

Per­sónu­vernd hefur hafið frum­kvæð­is­at­hugun á gagna­af­hend­ingu Barna­vernd­ar­stofu til Stund­ar­innar og RÚV, auk þess sem málið er til skoð­unar hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. For­stjóri Barna­vernd­ar­stofu neitar því að hafa brotið lög. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Umrædd gögn sem afhent voru til Stund­ar­innar og RÚV sneri að afskiptum fyrr­ver­andi for­stjóra stof­unnar, Braga Guð­brands­sonar, en fjöl­miðl­arnir tveir kröfð­ust þeirra eftir að vís­bend­ingar lægju fyrir að hann hefði haft óeðli­leg afskipti í ein­staka málum í starfi. Meðal ann­arra hafði gagna­pakk­inn að geyma ein­stök barna­vernd­ar­mál, deilur for­eldra um umgengn­is­rétt við börn og fund­ar­gerðir barna­vernd­ar­stofu. Öll nöfn og kenni­tölur voru afmáð úr gögn­unum.

Gögnin persónurekjanleg

Samkvæmt Frétta­blað­inu eru gögnin enn per­sónu­rekj­an­leg, þrátt fyrir að nöfn og kenni­tölur ein­stak­linga finn­ist ekki í þeim. Í per­sónu­vernd­ar­lögum er farið fram á leynd gagna, sé á ein­hvern hátt hægt að rekja upp­lýs­ingar til til­tek­inna ein­stak­linga.

„Gögn sem þessi eru lík­ast til við­kvæm­ustu upp­lýs­ing­arnar sem hægt er að kom­ast í. Það er því mik­il­vægt að skoða hvernig vinnslu per­sónu­grein­an­legra upp­lýs­inga var háttað í þessu til­viki. Við höfum skoðað málið eins og það liggur fyrir núna og teljum ástæðu til að hefja frum­kvæð­is­at­hugun,“ segir Vigdís Eva Líndal, skrif­stofu­stjóri upp­lýs­inga­ör­yggis hjá Per­sónu­vernd í sam­tali við Frétta­blaðið.

Til skoðunar hjá lögreglu og ráðherra

Samkvæmt Heiðu Björg Pálma­dóttur, for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, var beiðni fjöl­miðl­anna um upp­lýs­ingar unnin sam­kvæmt lögum og í sam­ráði við lög­fræð­inga stofn­un­ar­innar. Jafn­framt heldur hún því fram að engin lög hafi verið brotin.

Innan lög­regl­unnar er málið hins vegar litið alvar­legum augum, en Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sagði málið á borði ákæru­sviðs. Ásmundur Einar Daðason, vel­ferð­ar­ráð­herra, sagði málið einnig vera alvar­legt og til skoð­unar, en hann muni funda við for­svars­menn Barna­vernd­ar­stofu í næstu viku til að fara yfir þessi mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár